Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigið af þaki Turnsins í fyrstu íslensku hasarmyndinni Skotbardagar, blóðsúthellingar, þyrluflug, sprengingar og sig niður af þaki Turnsins í Kópavogi er meðal þess sem fyrir augu ber í nýjasta þætti 12:00, en það er skemmtiþáttur Verzlinga sem nemendur við skólann eiga veg og vanda að. Til að kynna sig til leiks útbjó nefndin sem stendur að baki þættinum eins konar stuttmynd, sem formaður nefndarinnar tekur undir að sé eiginlega fyrsta alvöru íslenska hasarmyndin. Þar bregða nefndarmenn sér í hlutverk sérsveitar sem þarf að berjast við hryðjuverkamenn sem hyggjast sprengja upp Turninn. 21.9.2009 16:57
Stöð 2 með 12 af 17 helstu Emmy-verðlaunum Þættir Stöðvar 2 hlutu langflest Emmy-verðlaun samanborið við þætti keppinautanna hér á landi. Þættir Stöðvar 2 hlutu alls 12 af 17 helstu verðlaunum sem veitt voru á Emmy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í gær. 21.9.2009 15:34
Sýslumaður skrifar smásögur „Þetta eru sögur og lífið og tilveruna. Flestar snúast um einhverskonar hrun og átök í mannlegri tilveru og uppbygginguna. Ein sagan fjallar svo um það að konur séu miklu betri en karlmenn í að reka íþróttafélög. Þetta er allt skáldskapur. Það eru engar fyrirmyndir.“ 21.9.2009 09:00
Íslenskir þýðendur hunsa Lars von Trier „Við höfum aðeins einu sinni lent í þessu áður, það var fyrir kvikmyndina Zoo þar sem maður hefur mök við hest og deyr,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu. Þýðendur neita að texta kvikmyndina Anti Christ eftir Lars von Trier. 21.9.2009 05:00
Bretar logandi hræddir við Ofurketti Bretar eru nokkuð áhyggjufullir vegna nýrrar kattategundar sem er að festa rætur þar í landi en um er að ræða ofurkött sem er ræktaður úr kattardýri sem svipar til blettatígurs. Kattartegundin sem um ræðir heitir Savannah-kötturinn sem mætti þýða sem hitabeltiskötturinn. 20.9.2009 19:50
Losnar ekki við risastórt Legóhús Síðhærði Top Gear töffarinn, James May, byggði hús í raunstærð úr Legokubbum. Húsið er nokkuð tilkomumikið, í því er klósett sem virkar, heit sturta og óþægilegasta rúm sem James hefur sofið í. 20.9.2009 11:35
Ræktaði gulrótarhönd Bretanum Peter Jackson var heldur brugðið á dögunum þegar hann hugðist taka upp gulrætur í garðinum. Þá blasti við honum gulrót sem er nákvæmlega eins í laginu og mannshönd. 19.9.2009 15:37
Safnar kjól fyrir hvern dag ársins „Hugmyndin er að gefa gömlum kjólum framhaldslíf í gegnum þennan gjörning. Gjörningurinn felst í því að safna 365 kjólum frá íslenskum konum frá átján ára aldri og upp úr. Kjólarnir mega vera af öllum stærðum og gerðum og þarf saga kjólsins að fylgja með,“ segir Gíslína Dögg Bjarkadóttir, textíl- og fatahönnuður í Vestmannaeyjum. 19.9.2009 07:00
Frímann striplast í Noregi og Finnlandi Úttekt Frímanns Gunnarssonar, hugarfósturs Gunnars Hanssonar, á skandinavísku gríni er hafin. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru hyggst Frímann heimsækja marga af þekktustu grínurum Norðurlandanna. Nú eru tökur sem sagt hafnar og fyrsta ferðin var farin til Finnlands. Þar hittu Frímann og Gunnar fyrir Andre Vikström, grínista sem er í miklum metum hjá Finnum og Svíum. 19.9.2009 06:00
Frá Seyðisfirði til Havarí „það var gríðarlegur þrýstingur frá poppsenunni í Reykjavík að fá okkur aftur í bæinn, svo það var bara opnuð búð til að hafa okkur í,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson í hljómsveitinni Skakkamanage. Hann og Berglind Häsler, kona hans, hafa búið á Seyðisfirði um nokkra hríð en eru flutt aftur á mölina til að stýra nýrri verslun, Havarí. „Seyðisfjörður er náttúrulega algjört unaðspleis og við eigum örugglega eftir að fara þangað aftur, en svona er þetta: Ævintýrið er búið í bili.“ 19.9.2009 05:00
Eyðir áramótunum á Íslandi „Ég er alveg ótrúlega hamingjusamur yfir að vera kominn til Íslands, brosi bara allan hringinn,“ segir þýski leikarinn Daniel Brühl sem leikur eitt aðalhlutverkanna í íslensku kvikmyndinni Kóngavegur 7 en leikstjóri hennar er Valdís Óskarsdóttir. 19.9.2009 04:00
Auðvitað er fyndið að syngja með GusGus þegar maður er orðinn afi Það er í nógu að snúast hjá Daníel Ágústi Haraldssyni. Hann varð faðir í annað sinn fyrir skemmstu en þarf að taka sér frí frá bleyjuskiptingum innan tíðar til að spila á tónleikum úti í heimi með teknóhljómsveitinni sinni, GusGus. 19.9.2009 03:30
Ösku Swayze dreift í Nýju Mexíkó Aska leikarans Patrick Swayze verðu í geymlsu á skrifstofu lögmanns hans þar til eiginkona hans, Lisa Niemi ákveður hvar henni skuli dreift, eftir því sem fram kemur á dánarvottorði hans. Það er vefsíðan RadarOnline sem heldur þessu fram í dag. 18.9.2009 21:55
Grínkóngurinn Dóri DNA þjálfar ræðulið MH „Þetta leggst bara ferlega vel í mig, við erum að móta liðið núna og komum sterk inn,“ segir gúmmelaðibóndinn Dóri DNA, en hann verður þjálfari MORFÍS liðs Menntaskólans við Hamrahlíð á komandi tímabili. Sjálfur var hann meðmælandi liðsins fyrir um fimm árum og keppti til úrslita árið 2004. 18.9.2009 17:00
Býst við 200 manns á kvöldvöku Nördafélagsins Nördafélagið og Tölvuakademían svokallaða í MR standa undir nafni um helgina, en félögin standa fyrir heljarinnar kvöldvöku sem hefst annað kvöld klukkan 20 og lýkur klukkan 8 á sunnudag. Matthías Páll Gissurarson, formaður beggja félaga, segir mikla stemningu fyrir viðburðinum í skólanum. 18.9.2009 15:45
Forsetinn skorar á Guðna Ólafur Ragnar Grímsson skorar á Guðna Ágústsson að taka þátt í spurningakeppni á Morgunvakt Rásar 2 í sinn stað. 18.9.2009 14:00
Meðlimir Rammstein leggja fyrir sig klámmyndaleik Þýsku öfgarokkararnir og Íslandsvinirnir í Rammstein eru komnir aftur á stjá eftir nokkurt hlé en á dögunum var myndband við lagið "Pussy" frumsýnt á netinu. 18.9.2009 12:43
Útvarpskona hló alla leiðina á spítalann „Það er mesta mildi að það var ekki bíll á eftir mér. Þá hefði getað farið miklu verr,“ segir Margrét Erla Maack, plötusnúður í Popplandi Rásar 2. Hún lenti í vespuslysi á miðvikudagskvöldið. 18.9.2009 07:00
Opnar barnafatabúð í banka „Okkar fannst þetta tímanna tákn,“ segir Kári Jónsson, bassaleikari 200.000 naglbíta, sem er búinn að opna barnafataverslun ásamt konu sinni Lovísu Guðmundsdóttur í fyrrverandi útibúi Kaupþings á Glerártorgi á Akureyri. „Þetta var reyndar lítið útibú, bara 40 fermetrar, og þar sem peningageymslan var er lagerinn okkar núna,“ segir hann. „Ég efast samt um að það hafi einhvern tímann verið einhverjir peningar þarna. Var þetta ekki bara loft?“ 18.9.2009 06:00
Dönum vel við Stefán Mána „Ég veit ekkert af hverju Dönum er svona vel við mig, þeir eru bara yndislegir og það fer bara vel á með okkur,“ segir Stefán Máni rithöfundur. 18.9.2009 05:00
Brown uppseldur um helgina Búist er við því að nýjasta bók Dans Brown, The Lost Symbol, seljist upp hér á landi um helgina. Í gær voru rúmlega eitt hundrað bækur eftir á lager af þeim fimm hundruð sem pantaðar voru. Næsta upplag er ekki væntanlegt í búðir fyrr en í þarnæstu viku. 18.9.2009 04:00
Bandaríkjamenn sigla við landið á risastórri snekkju „Við erum alltaf að leita að nýjum stöðum og margir af okkar viðskiptavinum hafa lýst yfir áhuga sínum á að sigla í kringum Ísland,“ segir Tom Armstrong, upplýsingafulltrúi bandarísku ferðaskrifstofunnar Tauck. Ferðaskrifstofan sérhæfir sig í siglingum um allan heim og er með skip á hundrað áfangastöðum. 18.9.2009 03:30
Ramsay trylltist í beinni útsendingu Stjörnukokkurinn skapbráði Gordon Ramsay trylltist í beinni útsendingu á BBC í morgun þegar spjallþáttstjórnandi spurði hvort hann myndi sjálfur elda á veitingastöðum sínum. 17.9.2009 20:31
Lögreglan mætti ekki á pókermót Verzló „Þetta gekk alveg rosalega vel,“ segir Agnes Jóhannsdóttir, formaður íþróttaráðs Verzlunarskólans, um pókermót sem ráðið stóð fyrir í gærkvöld. Alls mættu 64 strákar til leiks og spiluðu fram eftir kvöldi. Að sögn Agnesar borguðu keppendur þúsund króna þátttökugjald, og voru þeir spilarar sem lengst héldu út leystir út með veglegum gjafabréfum hjá nágranna Verzló, Kringlunni. 17.9.2009 17:23
Forsetinn kemst ekki í spurningakeppni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var sleginn út úr spurningakeppni á Morgunvakt Rásar 2 í morgun. Þegar Sigmundur var beðinn um að tilnefna þátttakanda til að mæta Atla Steini Guðmundssyni, sem hafði betur í viðureigninni í morgun, skoraði Sigmundur á Ólaf Ragnar Grímsson að mæta Atla Steini. 17.9.2009 15:35
DR vill Jóhönnu í jólaþátt „Já, þeir vilja fá hana til að syngja í sérstökum jólaþætti. Við erum bara að skoða dagskrána hjá okkur og sjá hvernig þetta lítur út allt saman,“ segir María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar. 17.9.2009 08:00
GK Reykjavík opnar vefverslun Tískuvöruverslunin GK Reykjavík heldur opnunarteiti í kvöld í tilefni af nýrri vefverslun sem verður formlega sett á laggirnar í dag. Vefversluninni er ætlað að koma til móts við viðskiptavini búsetta utan höfuðborgarsvæðisins og við þá sem vilja skoða vöruúrvalið áður en lagt er af stað í bæjarferð. 17.9.2009 07:00
Ingó Veðurguð í Wipeout „Ég er svolítið spennt fyrir þessu, smá hrædd líka en aðallega spennt,“ segir Alexandra Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland árið 2008. Hún verður meðal þátttakenda í sérstakri „celebrity“-útgáfu af Wipeout sem Stöð 2 hyggst sýna frá í vetur. 17.9.2009 06:00
Krummi kominn í poppið Krummi Björgvinsson er staddur í Atlanta þar sem hann vinnur að sólóplötu. Auk þess hefur rokkarinn verið að fikra sig út í danspopptónlist 17.9.2009 05:00
Steindi semur um átta þætti Samningar hafa náðst um að nýir gamanþættir með Steinda og Ágústi Bent hefji göngu sína á Skjá einum í lok janúar. 17.9.2009 04:00
Þúsund manns á biðlista eftir Stieg Larsson „Þetta kom okkur skemmtilega á óvart,“ segir Guðrún Vilmundardóttir hjá bókaforlaginu Bjarti. 17.9.2009 03:30
Varalitaðir og ómálaðir busar: Þurftu ekki að blása á Kvennóballi Því fer fjarri að allir framhaldsskólar láti nemendur sína blása á böllum, en líkt og Skólalíf greindi frá í gær er sá hátturinn hafður á hjá bæði Verzló, MR og fleiri skólum. Þannig var til dæmis ekki beitt áfengismælum á busaballi Kvennó. Sindri Már Hjartarson, gjaldkeri nemendafélagsins Keðjunnar, segir ballið þrátt fyrir það hafa gengið vel fyrir sig. 16.9.2009 20:01
Nýstárleg þjálfun: MORFÍS og Gettu betur á kennsluskrá Fjölbrautarskólinn í Garðabæ fer ótroðnar slóðir við þjálfun keppnisliða í Gettu betur og MORFÍS, en báðar greinarnar eru kenndar sem áfangi við skólann í ár. 16.9.2009 18:37
Svona hverfa graftarkýlin Vísri hafði samband við Hönnu Kristínu Didrikssen sem rekur Didrix spa meðal annars um lausnir á bólum og erfiði í húð. 16.9.2009 11:51
Höllinni breytt í geimskip Tölvuleikjafyrirtækið CCP heldur árlega ráðstefnu fyrir aðdáendur tölvuleiksins EVE Online nú í byrjun október. Ráðstefnunni lýkur með stórri veislu sem haldin verður í Laugardalshöllinni og hefur fyrirtækið ákveðið að bjóða Íslendingum upp á sérstakt miðaverð svo að sem flestir geti komið og upplifað þennan viðburð. Starfsmenn CCP hafa unnið að undirbúningi fyrir ráðstefnuna frá því í mars í samvinnu við fyrirtækið Exton. 16.9.2009 07:00
Ósáttir við gagnrýni Hollywood Reporter „Það er eitthvað mikið að hjá þessum manni, það er einfaldlega ekki hægt að hata þessa mynd svona mikið. Þetta er létt og skemmtileg mynd og þessi dómur er algjörlega úr takti við allt raunveruleikaskyn,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson, einn af framleiðendum The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson. 16.9.2009 06:00
Stjörnurnar sakna Swayze Leikarinn Patrick Swayze er látinn, 57 ára gamall, eftir tæplega tveggja ára baráttu við krabbamein í brisi. 16.9.2009 05:00
Vinnur við að spila póker „Þetta var náttúrlega mjög mikil heppni,“ segir Axel Einarsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í póker. Mótið var haldið á Hilton Nordica-hótelinu um síðustu helgi. 16.9.2009 04:00
Þrjátíu erlendir blaðamenn Hátt í þrjátíu erlendir blaðamenn eru væntanlegir á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem stendur yfir frá 17. til 27. september. Wendy Mitchell frá kvikmyndasíðunni Screendaily.com kemur hingað, auk blaðamanna frá Politiken, Jyllandsposten, Berlingske Tidende, Boston Phoenix, Tagesspiegel, Sight and Sound og fleiri fjölmiðlum. „Þetta er mesti fjöldi blaðamanna sem hefur komið á hátíðina. Það hefur aldrei verið meiri áhugi á henni,“ segir Hrönn Marínósdóttir hjá RIFF. 16.9.2009 03:30
Kelly Osbourne: „Ég myndast feit“ Kelly Osbourne dóttir rokkarans Ozzy og dómarans Sharon segir aðdáendur sína ávallt mjög hissa á því hve grönn hún sé þegar þeir hitta hana. Hún segir ástæðu þess vera að myndavélin bæti yfirleitt nokkrum kílóum á sig. Þetta útskýrði hún í samtali við hið Breska Star magazine. 15.9.2009 21:13
Allir busar látnir blása á Verzlóballi Busaball Verzlunarskólans fer fram nú á fimmtudagskvöldið á skemmtistaðnum Broadway. Árni Kristjánsson, forseti NFVÍ, var í óða önn við að undirbúa ballið þegar Skólalíf náði tali af honum. 15.9.2009 20:04
Áfengismælar frumsýndir: Aðeins tíu dauðir á busaballi MR Aðeins tíu manns enduðu í sjúkragæslu, sem jafnan gengur undir gælunafninu „dauðaherbergið,“ á busaballi MR sem fram fór í upphafi mánaðarins, en það þykir í minna lagi. Árni Freyr Snorrason, Inspector Skólafélagsins, sagðist ánægður með hversu vel ballið fór fram og bætir við að skólastjórnin hafi verið ánægð. 15.9.2009 19:30
Þátttökugjöld í framhaldsskólamóti KSÍ hækka ekki í kreppunni Frestur til að tilkynna þátttöku í framhaldsskólamóti KSÍ í knattspyrnu rennur út þann 18. september, en samkvæmt tilkynningu frá KSÍ verður ekki tekið við skráningum eftir þann tíma. Þátttökugjald er 15.000 krónur á lið í ár, en hver skóli getur alls sent fjögur lið í keppnina; tvö kvennalið og tvö karlalið. 15.9.2009 18:59
Týnda táknið rennur út eins og heitar lummur Nýjasta bók Dans Brown, Týnda táknið, rennur út eins og heitar lummur en sala á bókinni hófst gær. 15.9.2009 16:09
Milljónir lesa um tískuslys í Keflavík Tímaritið The New York Magazine birtir harðorða grein á heimasíðu sinni um tískusýningu Iceland Fashion Week sem var haldin á Ljósanótt í Reykjanesbæ þar síðustu helgi. 15.9.2009 15:27