Lífið

Sigið af þaki Turnsins í fyrstu íslensku hasarmyndinni

Skólalíf skrifar
Sérsveitarmennirnir hlaupa inn í Turninn.
Sérsveitarmennirnir hlaupa inn í Turninn.
Skotbardagar, blóðsúthellingar, þyrluflug, sprengingar og sig niður af þaki Turnsins í Kópavogi er meðal þess sem fyrir augu ber í nýjasta þætti 12:00, en það er skemmtiþáttur Verzlinga sem nemendur við skólann eiga veg og vanda að. Til að kynna sig til leiks útbjó nefndin sem stendur að baki þættinum eins konar stuttmynd, sem formaður nefndarinnar tekur undir að sé eiginlega fyrsta alvöru íslenska hasarmyndin. Þar bregða nefndarmenn sér í hlutverk sérsveitar sem þarf að berjast við hryðjuverkamenn sem hyggjast sprengja upp Turninn.

Nefndarmenn áttu í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Localice um að gera stuttmyndina, en Davíð Örn Símonarson, formaður nefndarinnar, segir þá hafa kynnst aðstandendum fyrirtækisins er þeir dvöldust í Danmörku í sumar.

Ekki fyrir lofthrædda - sigið niður Turninn.
„Þegar fólk kemur saman á svona erfiðum tímum og vill gera eitthvað skemmtilegt, þá þarf það ekki að kosta mikið," segir Davíð Örn, sem segir myndina hafa kostað um 160 þúsund krónur með öllu. Hann bætir við að Localice hafi boðið fram hjálp sína fyrir litla sem enga greiðslu, og litið svo á að þetta væri gott tækifæri til að koma sér á framfæri. Meðal annarra sem lögðu strákunum lið er sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir, sem leikur fréttakonu í myndinni.

„Við erum búnir að fá ótrúlega góðar viðtökur. Fólk er að segja við okkur að þetta slái við öllum íslenskum þáttum og að við ættum bara að tala við sjónvarpsstöðvarnar og fá að gera eitthvað sjálfir. Þetta er allavega það umfangsmikið og kemur vel út - miðað við að þannig séð eru þetta bara menntaskólastrákar að leika sér," segir Davíð Örn.

Myndbandið hefur vakið nokkra athygli á Facebook, en þeir sem hafa aðgang að síðunni geta horft á myndina hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×