Höllinni breytt í geimskip 16. september 2009 07:00 Diljá Ámundadóttir og Oddur Örn Halldórsson skipuleggja Fan Fest ráðstefnu á vegum tölvuleikjafyrirtækisins CCP. Ráðstefnan verður haldin í Laugardalshöllinni sem verður búið að breyta í geimskip. fréttablaðið/stefán
Tölvuleikjafyrirtækið CCP heldur árlega ráðstefnu fyrir aðdáendur tölvuleiksins EVE Online nú í byrjun október. Ráðstefnunni lýkur með stórri veislu sem haldin verður í Laugardalshöllinni og hefur fyrirtækið ákveðið að bjóða Íslendingum upp á sérstakt miðaverð svo að sem flestir geti komið og upplifað þennan viðburð. Starfsmenn CCP hafa unnið að undirbúningi fyrir ráðstefnuna frá því í mars í samvinnu við fyrirtækið Exton. „Laugardalshöllinni verður breytt í geimstöð og þar verður haldið heljarinnar partí fyrir ráðstefnugesti og alla þá sem hafa gaman að góðri tónlist og góðu partíi. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru plötusnúðurinn Dj Alienhand/RealX, sem leikur tónlist sem líkist þeirri sem er í EVE Online, Dj Margeir ásamt sextán manna strengjasveit auk húsbandsins RöXöR. Þetta verður mjög glæsilegur viðburður og ég hvet sem flesta til að mæta og taka þátt í gleðinni,“ segir Diljá Ámundadóttir, framleiðandi hjá CCP, sem skipuleggur viðburðinn ásamt Oddi Erni Halldórssyni, stjórnanda Fan Fest-ráðstefnunnar. Um 300 þúsund manns spila EVE Online að staðaldri og í fyrra sóttu 800 erlendir spilarar ráðstefnuna. „Við reiknuðum út að hver og einn hafi eytt sem nemur 120 þúsund krónum í flug og uppihald í fyrra sem gerir um hundrað milljónir. Við gerum ráð fyrir svipuðum fjölda í ár þannig þetta ætti að hafa góð áhrif á íslenskt efnahagslíf,“ segir Diljá. Aðspurð segir Diljá að ráðstefnan sé vel sótt af dyggum spilurum EVE Online ár hvert. Þeir koma á ráðstefnuna til að hlýða á fyrirlestra, taka þátt í ýmiskonar verkefnavinnu og til að hitta hver annan. „Þetta er fólk sem hefur verið í sambandi næstum daglega síðastliðin ár og þarna gefst þeim tækifæri á að hittast og spjalla saman og jafnvel undirbúa næstu árás. Það eru einnig margir sem vilja hlýða á fyrirlestur um nýjan leik sem er enn í framleiðslu og kallast Dust 504 og gerist í sýndarveruleika sem svipar til íslensks landslags og getur haft áhrif á gang mála í EVE Online og öfugt. Þetta er tækninýjung sem hefur aldrei verið notuð áður. Dyggustu spilurunum finnst einnig mjög gaman að fá tækifæri til að hitta starfsfólk fyrirtækisins sem er hálfgerðar stjörnur í þeirra augum,“ segir Diljá. Ráðstefnan fer fram 1. til 3. október, en lokahófið sjálft verður laugardagskvöldið 3. október og geta áhugasamir nálgast miða á viðburðinn á vefsíðunni midi.is.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira