Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannætan í Miami þekkti fórnarlamb sitt Talið er að maðurinn sem reyndi að rífa af andlit annars manns með tönnunum fyrir nokkrum vikum í Miami hafi þekkt fórnarlamb sitt nokkuð vel. 16.7.2012 19:09
Endurheimti bíl sinn eftir 40 ár Karlmaður sem varð fyrir því óláni að bíl hans var stolið árið 1970 endurheimti bílinn í dag. Maðurinn, sem heitir bob Russel, var nemandi við Temple háskóla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hann ók um á Austin-Healy 3000 Mk III sem hann hafði keypt af vini sínum á 3000 dali árið 1968. 16.7.2012 10:30
Nauðganir vekja óhug í Svíþjóð Sænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að tilkynnt hefur verið um 21 nauðgun í landinu á síðustu þremur dögum. Þetta er óvenjumikill fjöldi nauðgana á svo stuttum tíma í Svíþjóð en nauðganir eru yfirleitt fleiri á sumrin en veturna í landinu. 16.7.2012 06:46
Miklir bardagar í úthverfum Damaskus Miklir bardagar geisuðu í í Damaskus höfuðborg Sýrlands í gærdag og langt fram á kvöld milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna. Sennilega er um mestu bardagana að ræða síðan átökin hófust í landinu í mars í fyrra. 16.7.2012 06:19
Condolezza Rice óvænt í sviðsljósinu í Bandaríkjunum Condolezza Rice fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur óvænt stolið hinu pólitíska sviðsljósi vestan hafs um helgina. 16.7.2012 06:11
Frakklandsforseti skipar sambýliskonu sinni að þegja Francois Hollande forseti Frakklands er búinn að fá nóg af umdeildum opinberum ummælum sambýliskonu sinnar, Valerie Trierweiler og hefur því skipað henni að halda kjafti í framtíðinni. 16.7.2012 06:49
Rændu formanni Ólympíunefndar Líbíu Vopnaðir menn klæddir eins og hermenn rændu Nabil Elalem formanni Ólympíunefndar Líbíú á götu úti í Trípolí í gærdag. Enginn veit hvar hann er niðurkominn í augnablikinu né hverjir rændu honum. 16.7.2012 06:39
Yfirmanni hersins í Norður Kóreu vikið frá störfum Æðsta yfirmanni hersins í Norður Kóreu, Ri Yong-ho hefur óvænt verið vikið frá störfum og jafnframt hefur honum verið vikið úr öllum opinberum stöðum sínum en hann var háttsettur í Verkamannaflokki landsins og varaformaður hinnar valdamiklu miðstjórnar hersins. 16.7.2012 06:30
Þúsund mannlegir dómínókubbar setja heimsmet Um eitt þúsund sjálfboðaliðar slógu nýtt heimsmet sem mannlegir dómínókubbar í borginni Sjanghæ í Kína í dag. 15.7.2012 20:40
Öflugir skýstrókar í Póllandi Að minnsta kosti einn lét lífið og tíu slösuðust þegar öflugir skýstrókar gengu yfir norðvesturhluta Póllands í gær. Yfir hundrað hús eyðilögðust. 15.7.2012 19:24
Drengur skaut óvart föður sinn til bana Þriggja ára drengur í Bandaríkjunum skaut föður sinn til bana eftir að hafa komist í byssu sem var á heimilinu. 15.7.2012 19:17
Clinton hitti yfirmann herráðsins Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti yfirmann herráðsins í Egyptalandi í dag og ræddi við hann um lýðræði. 15.7.2012 18:32
Konur orðnar greindari en karlar Konur ná núna hærri meðaleinkunn á greindarprófum en karlmenn í fyrsta sinn síðan greindarmælingar hófust. 15.7.2012 13:20
Fjórar stórar borgir rýmdar Á þriðja hundrað þúsund Japana flýja nú heimili sín vegna flóðahættu. Að minnsta kosti 20 manns hafa látið lífið í flóðum þar um helgina. 15.7.2012 13:00
Vísa ásökunum um þungavopn á bug Stjórnvöld í Sýrlandi vísa á bug fullyrðingum sendinefndar Sameinuðu þjóðanna um að stjórnarherinn hafi notað þungavopn þegar hann gerði innrás í bæinn Tremseh í Hama héraði á fimmtudag. Talið er að tvö hundruð almennir borgarar hafi látið lífið í árásinni. Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna heimsótti þorpið í gær en fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa fordæmt árásina. 15.7.2012 12:46
Fyrsti skipsfarmurinn frá Bandaríkjunum til Kúbu Fimmtíu ára viðskiptabanni Bandaríkjanna á Kúbu lauk á föstudaginn var þegar skipið Ana Cecilia sigldi til eyjarinnar með skipsfarm af hjálpargögnum. Frá þessu er sagt á Al Jazeera. 15.7.2012 12:38
Öryggismál fyrir ólympíuleikana í ólestri Landaverðir á Heathrow flugvelli í London hafa verið ásakaðir um að hleypa einstaklingum sem tengdir eru við hryðjuverkaógn inn í landið nú þegar styttist í Ólympíuleikana. 15.7.2012 11:57
Obama skýtur enn að Romney Barack Obama Bandaríkjaforseti hélt uppteknum hætti gærkvöldi þegar hann gagnrýndi störf Mitt Romney, forsetaframbjóðanda repúblikana, á kosningafundi í Virginíu-fylki. Obama, sem lét ekki úrhellisrigningu á sig fá og stóð gegnvotur í pontu, sagði að að fólk vildi ekki fá sérfræðing í útvistun starfa í Hvíta húsið, heldur einhvern sem gæti fjölgað störfum og fengið fyrirtækin til að auka starfsemi að nýju heima fyrir. Kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar í nóvember næstkomandi hefur harðnað mikið að undanförnu, sérstaklega í fylkjum eins og Virginíu þar sem mjótt er á munum. Obama hefur eytt nokkru púðri í að stilla Romney upp sem fram efnaðum bankamanni með forréttindabakgrunn sem sé úr tengslum við almenna kjósendur. 15.7.2012 10:29
Um 5000 manns hrakist frá heimilum sínum Tuttugu og tveir hafa farist og yfir 5000 manns hafa hrakist frá heimilum sínum í borginni Yame í suðvesturhluta Japan vegna úrhellisrigningar og flóða. Aurflóð og fallin tré hafa lokað flestum vegum á svæðinu, en þar hefur stanslaust ringt frá því á miðvikudag. Á myndum sem voru sýndar af svæðinu í morgun sjást hermenn færa fólki nauðsynjar á borð við mat, vatn og drykk í herþyrlur á svæði þar sem fólkið dvelur nú. Yfirvöld hafa sent þangað björgunarþyrlur til þess að flytja veikt folk og aldraða af svæðinu. 15.7.2012 08:34
Stallone birti myndir á Facebook skömmu fyrir andlát sitt Vangaveltur eru nú uppi um það hvort Sage Moonblood Stallone, sonur Sylvesters Stallone leikara, kunni að hafa legið látinn í íbúð sinni í marga daga áður en lík hans fannst. Líkið fannst á heimili hans í Hollywood í gær og er talið að hann hafi látist af ofneyslu lyfja. Samkvæmt frásögn slúðurfréttamiðilsins People hafnar lögmaður Sages og bernskuvinur, George Braunstein, því með öllu. Hann bendir á að myndir af Sage hafi verið birtar á Facebook einungis 17 klukkustundum áður en hann fannst látinn. 14.7.2012 23:42
Bastilludagurinn í myndum Þjóðhátíðardagur Frakka var haldinn hátíðlegur í dag. Hann nefnist í daglegu tali Bastilludagurinn en þá minnast Frakkar árásarinnar á bastilluna þann 14. júlí árið 1989. Sá atburður markaði upphaf Frönsku byltingarinnar. 14.7.2012 20:16
Fornar beinagrindur í miðri Mexíkóborg Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið fimmtán beinagrindur í grafreit sem talinn er vera frá tímum Asteka. Grafreiturinn fannst á byggingarsvæði í miðri Mexíkóborg. 14.7.2012 19:30
Mótmælin harðna á Spáni Spænska óeirðalögreglan beitti í nótt táragasi gegn mótmælendum sem hafa gengið um götur höfuðborgarinnar í landinu síðasta sólarhringinn og krafið þarlend stjórnvöld um að falla frá niðurskurðaráætlunum. 14.7.2012 19:20
Hillary Clinton styður Mohammed Mursi Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti fund með nýkjörnum forseta Egyptalands, Mohammed Mursi, í dag. Eftir fundinn ítrekar hún að Bandaríkin styðji algera skiptingu yfir í lýðræði í landinu. 14.7.2012 18:21
Starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna á vettvang fjöldamorðanna Starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna eru komnir til þorpsins Tremseh í Sýrlandi þar sem fjöldamorð áttu sér stað á fimmtudaginn. Þeir eru þangað komnir til að taka út ástandið á svæðinu. 14.7.2012 17:46
Ralph Lauren: Ólympíubúningurinn verður saumaður heima Fatahönnuðurinn Ralph Lauren hefur lofað að bandarískir ólympíufarar verði í fötum sem saumuð eru í Bandaríkjunum á næsta ári eftir að kom á daginn að föt íþróttamannanna í ár eru í raun saumuð í Kína. 14.7.2012 16:09
Stúlkan sem varð undir heyböggum er látin Danska stúlkan sem slasaðist illa þegar stórir heybaggar, fjögur hundruð kíló að þyngd, hrundu yfir hana og systur hennar á bóndabæ á Jótlandi á fimmtudag er látin. Stúlkan, sem var sex ára, var stödd í hesthúsi ásamt systrum sínum tveim þegar slysið átti sér. Hinar stúlkurnar voru níu og þrettán ára en þær voru úrskurðaðar látnar skömmu eftir slysið. 14.7.2012 15:09
Flóð valda spjöllum og manntjóni Um fjögur hundruð þúsund íbúar á eyjunni Kyushu í Japan hafa þurft að yfirgefa hemili sín vegna mikilla flóða. Að minnsta kosti tuttugu hafa látið lífið og níu er saknað. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu daga og hafa aurskriður og flóð valdið miklum skemmdum á mannvirkjum. 14.7.2012 15:04
Skotárás í Svíþjóð Tveir menn særðust, þar af annar lífshættulega, í skotárás á skemmtistað í Malmö í Svíþjóð í nótt. Þetta kemur fram á vef sænska ríkissjónvarpsins. Mennirnir eru á þrítugs og fimmtugsaldri en lögreglan hefur tekið skýrslur af vitnum. Enginn hefur hins vegar verið handtekinn vegna málsins. 14.7.2012 12:41
Bastilludagurinn er í dag Hinn svonefndi Bastilludagur, er í dag. 14. júlí er þjóðhátíðardagur Frakklands en þá minnast Frakkar árásarinnar á Bastilluna í Frönsku byltingunni. Margskyns hátíðarhöld eru víðsvegar um landið og meðal annars er herskrúðganga á Champs-Élysées í París. Það er elsta og stærsta herskrúðganga sem haldin er reglulega í allri Evrópu. Á myndinni tekur frakklandsforseti, Francois Hollande, þátt í skrúðgöngunni í morgun. 14.7.2012 10:34
Sjálfsmorðssprengjuárás í brúðkaupi Að minnsta kosti tuttugu létu lífið og ríflega sextíu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í brúðkaupsveislu í Afganistan í gær. 14.7.2012 10:27
Mestu fjöldamorðin frá upphafi átaka Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að stjórnarherinn hafi drepið á þriðja hundrað manns í bænum Tremseh í Hama-héraði í Sýrlandi á fimmtudag. Ef rétt reynist var gærdagurinn því einn sá blóðugasti í borgarastyrjöldinni í landinu. 14.7.2012 06:00
Hugðist myrða Barack Obama Dómstóll í Alabama dæmdi í gær Ulugbek Kodirov, 22 ára úsbeka, í rúmlega fimmtán ára fangelsi fyrir að skipuleggja tilræði við Barack Obama Bandaríkjaforseta. Kodirov hóf að undirbúa tilræðið eftir að hann komst í samband við úsbesk hryðjuverkasamtök á netinu. Af því varð aldrei því að hann var handtekinn þegar hann reyndi að kaupa vopn af leynilögreglumanni. 14.7.2012 04:00
Lemúrar í útrýmingarhættu Vísindamenn óttast nú að lemúrar séu í útrýmingarhættu. Af þeim 109 tegundum lemúra sem hafa til á Madagaskar eru rúmlega 90 á barmi útrýmingar. 13.7.2012 11:57
Vopn Bonnie og Clyde á uppboð Skammbyssur úr eigu Bonnie og Clyde, eins frægasta glæpapars Bandaríkjanna, verða seldar á uppboði seinna á þessu ári. 13.7.2012 10:32
Vatnsflóð valda náttúruhamförum á Grænlandi Óeðlilegt hlýtt veðurfar á Grænlandi hefur leitt til náttúruhamfara í bænum Kangerlussuag við Syðri Straumfjörð þar sem alþjóðaflugvöllur landsins er staðsettur. 13.7.2012 08:57
Segja nær 200 borgara myrta af sýrlenska stjórnarhernum Fregnir hafa borist af því að allt að 200 almennir borgarar hafi verið myrtir af sýrlenska stjórnarhernum í þropinu Tremseh í héraðinu Hama í gær. 13.7.2012 06:37
Bretland birtir skjöl um geimverur Varnarmálaráðuneyti Bretlands hefur birt tæplega sjö þúsund skjöl en í þeim má finna frásagnir af fólki sem telur sig hafa haft kynni af geimverum og öðrum furðuverum. 13.7.2012 16:58
Heiðraði eiginkonu sína með hjartalaga engi Bóndi í Bretlandi heiðraði minningu eiginkonu sinnar með því að gróðursetja tré í hjartalaga mynstur. Virðingarvotturinn hefur hingað til verið fjölskylduleyndarmál enda er ómögulegt að sjá hjartað frá veginum. 13.7.2012 16:45
Þrír létust í flugslysi Að minnsta kosti þrír létust þegar einkaflugvél varð eldi að bráð stuttu eftir lendingu í suður-Frakklandi. Talið er að flugmaðurinn og farþegar flugvélarinnar hafi verið bandarískir ríkisborgarar. 13.7.2012 16:29
Annan fordæmir fjöldamorðin í Sýrlandi Kofi Annan, friðarsamningamaður Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins, sagði í dag að fjöldamorðin í þorpinu Tremesh í Homs-héraði í gær væru hneykslanleg og ófyrirleitin. 13.7.2012 13:35
Óléttar konur eiga ekki að borða fyrir tvo Sagan segir að óléttar konur eigi að borða fyrir tvo en staðreyndirnar tala öðru máli. 13.7.2012 07:13
Sértrúarsöfnuður myrti og át sjö galdramenn Lögreglan í Nýju Papúa Gíneu hefur handtekið 29 meðlimi sértrúarsafnaðar þar í landi, þar af átta konur, sem lagði stund á mannát. 13.7.2012 06:55
Þeir fjórir sem saknað var úr snjóflóðinu eru heilir á húfi Þeir fjórir fjallamenn sem saknað var eftir snjóflóðið í frönsku Ölpunum í gærdag reyndust allir heilir á húfi. 13.7.2012 06:49
Condolezza Rice líkleg sem varaforsetaefni Romney Auknar líkur eru taldar á því að Condolezza Rice fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna verði varaforsetaefni Mitt Romney í komandi forsetakosningum þar í landi. 13.7.2012 06:40