Fleiri fréttir

Yfir áttahundruð bjargað af sökkvandi ferju

Yfir áttahundruð manns var í morgun bjargað af sökkvandi ferju á Filipseyjum. Þrír létu lífið og áttatíu og átta er saknað. Talið er að flestir þeirra hafi bjargast um borð í fiskibáta.

Bróðir Jackson gagnrýnir upptöku af jarðarförinni

Randy Jackson, einn af bræðrum Michael, hefur gagnrýnt "leynilegar" upptökur af jarðarför bróður síns í Los Angeles. Bein útsending af gestum að koma í jarðarförin hafði verið skipulögð en var stöðvuð þegar lík poppstjörnunnar kom í kirkjugarðinn.

Viltu stunda öruggt kynlíf? Þá þarftu brauð

Sumar Breskar konur halda að brauð, matarfilma og kjúklingahúð geti komið í stað smokka, ef marka má skoðanakönnun sem var kynnt í dag. Úrtakið var um þúsund konur á aldrinum 18 til 50 ára og útkoman sýndi nokkrar mjög skrýtnar hugmyndir um fjölskyldulífið.

G20: Efnahagsástandið betra nú en í apríl

Tuttugu helstu iðnveldi heims segja að efnahagsástandið í heiminum sé mun betra en á fundi þeirra í apríl síðastliðnum. Á þeim fundi var aðallega rætt um neyðarráðstafanir gegn kreppunni.

Lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun og morð

Bandaríski hermaðurinn Steven Green sem nauðgaði og myrti 14 ára gamla íraska stelpu eftir að hafa skotið foreldra hennar og yngri systur til bana hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Látinn laus vegna olíu

Jack Straw dómsmálaráðherra Bretlands hefur viðurkennt að olíusamningur hafi ráðið miklu um að einum líbysku Lockerbie morðingjanna var sleppt úr fangelsi. Gordon Brown forsætisráðherra hafði áður harðneitað því.

Ofurbónusar enn gagnrýndir

Fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar 20 stærstu iðnríkja heims hittust í London í gær til að undirbúa leiðtogafund ríkjanna, sem haldinn verður í Bandaríkjunum 24. og 25. september.

Innbrotsþjófar á unglingsaldri drepnir

Eigandi einbýlisshús í Texas í Bandaríkjunum skaut tvo 16 ára unglinga til bana, og særði annan lífshættulega, þegar ungmenninn brutust inn á heimili hans í dag. Fjórði unglingurinn komst ósærður undan. Ekki er vitað hvað þeim gekk til.

Ekki hægt að bera kennsl á mörg líkanna

Uppundir 100 manns féllu þegar orrustuþotur NATO gerðu árás á tvo olíubíla sem Talibanar höfðu rænt í Afganistan. Óljóst er hvort óbreyttir borgarar voru á meðal þeirra. Mörg líkanna voru svo illa brunnin að ekki var hægt að bera kennsl á þau.

Bjössi fær nýtt búr

Ísbirnirnir í dýragarðinum í Kaupmannahöfn fá nýja gryfju til að hreiðra sig um í árið 2012. Dýrin fá gryfjuna að gjöf frá góðgerðarsamtökum í tilefni af 150 ára afmæli dýragarðsins eftir því sem fram kemur í Berlingske Tidende.

NATO gerði loftárás á stolna flutningabíla

Um 90 manns eru ýmist slasaðir eða látnir eftir að orrustuvélar á vegum NATO gerðu loftárás snemma í morgun á tvo eldsneytisflutningabíla sem stolið hafði verið í norðurhluta Afganistan.

Viðkvæmur sannleikur um Arctic Sea

Rússneskur blaðamaður hefur flúið heimaland sitt eftir að hafa vakið athygli á hinu dularfulla máli flutningaskipsins Arctic Sea.

Hið ameríska jihad

Bandaríkjamaður um tvítugt er fyrir rétti, ákærður fyrir morð og mannrán sem hann segist hafa framið til dýrðar Allah.

Óvíst hvar Jackson hvílir til frambúðar

Óljóst er hvort Forest Lawn-kirkjugarðurinn í Glendale í Kaliforníu verður hinsti hvílustaður poppgoðsins Michales Jackson. Jarðneskar leifar hans munu þó að minnsta kosti hvíla þar fyrst um sinn en athöfnin fór fram í gærkvöldi.

Nálgast lokastig auðgunar

Norður-Kóreumenn eru að nálgast lokastigið í því ferli að auðga úran og plútón og koma þessum efnum í það ástand að þau verði nothæf til gerðar kjarnavopna.

Tannlæknir hótaði Sarkozy lífláti

Tannlæknir og arkitekt eru meðal ellefu manna sem handteknir voru í gær, grunaðir um að hafa sent Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og átta frönskum ráðherrum líflátshótanir.

Bretland síðast úr krumlum kreppunnar

Bretland verður síðasta stóra hagkerfi heimsins sem losnar úr viðjum fjármálakreppunnar, ef marka má spár OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu.

Tilkynningum um ólöglega starfsmenn fjölgar

Lögreglan í Danmörku fær sífellt fleiri tilkynningar um útlendinga sem starfa ólöglega í Danmörku. Á öðrum ársfjórðungi þessa árs fékk lögreglan 139 tilkynningar um slíkt en 96 tilkynningar á sama tíma í fyrra.

Flæmdur frá heimalandi sínu

Mikhail Voitenko blaðamaður hefur flúið Rússland vegna ásakana hans um að Arctic Sea, skipið sem menn telja að hafi verið rænt í júlí, hafi verið í vopnaflutningum. Voitenko segir að honum hafi verið sagt að flýja frá landinu eða eiga hættu á handtöku.

Flóttamenn handteknir við komuna til Íraks

Íraska lögreglan hefur handtekið fimm flóttamenn sem dönsk yfirvöld sendu heim til Íraks í gær. Sautján flóttamenn sem einnig var flogið með til Íraks munu á leið til norðurhluta landsins þar sem vinir og vandamenn eru sagðir bíða þeirra.

Fjarskiptagervitungl komst ekki á sporbaug

Indónesískt fjarskiptagervitungl, sem skotið var á loft frá Kína á mánudaginn, komst ekki á sporbaug eftir að hreyfill í þriðja þrepi burðarflaugar þess fór ekki í gang.

Geimrusl nálgast Alþjóðlegu geimstöðina

Bandaríska geimferðastofnunin NASA fylgist nú grannt með torfu af geimrusli sem er margir metrar í þvermál og svífur um geiminn í nágrenni við Alþjóðlegu geimstöðina og geimskutluna Discovery sem nú er stödd við stöðina.

Enn sverfur til stáls í Mexíkó

Sautján eru látnir eftir að tólf grímuklæddir byssumenn réðust inn í meðferðarstöð í mexíkósku borginni Ciudad Juarez í gær, stilltu vistmönnum þar upp við vegg og hófu skothríð.

Tala látinna á Jövu komin í 46

Tala látinna í indónesíska bænum Cianjur er kominn upp í 46 eftir að snarpur jarðskjálfti skók eyjuna Jövu í gær. Í kjölfar skjálftans féll aurskriða á bæinn og kaffærði ellefu heimili.

Hugðust myrða samnemendur sína

Tveir breskir unglingar lögðu á ráðin um að sprengja sprengju í verslunarmiðstöð í Manchester og fara því næst í skólann og skjóta eins marga samnemenda sinna til bana og þeir gætu.

Bónusar bankamanna lækki

Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins fagna frumkvæði Frakka og Þjóðverja, sem vilja fá Bandaríkjastjórn og fleiri ríki í lið með sér til þess að hafa hemil á bónusgreiðslum til yfirmanna í bönkum.

Hælisleitendurnir farnir til Bagdad

Hælisleitendurnir frá Írak, sem handteknir voru í kirkju í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, voru í gær sendir með flugvél til Íraks. Óvissa er um örlög þeirra í heimalandinu, en dönsk stjórnvöld segjast hafa farið rétt að öllu.

Lögreglan flæðir um götur

Tugir þúsunda ungra manna og kvenna hafa bæst í lögregluliðið í Kína. Tilefnið er sextíu ára afmæli kommúnistastjórnarinnar, sem komst til valda í byrjun október árið 1949.

Viðræður ráðamanna hefjast

Háttsettir ráðamenn Ísraelsstjórnar og Palestínustjórnar hittust í gær í fyrsta sinn frá því að Benjamin Netanjahú tók við sem forsætisráðherra Ísraels.

Obama ávarpar þingið í næstu viku

Barack Obama flytur ræðu um tillögur sínar um uppstokkun á bandaríska heilbrigðiskerfinu á sameiginlegum fundi fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag. Forsetinn hefur sagt núverandi kerfi allt of dýrt og þungt í vöfum.

Ósiðleg hegðun öryggisvarða í Kabúl rannsökuð

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mál sem varðar öryggisverði í sendiráði landsins í Afganistan. Verðirnir eru sakaðir um ósiðlega hegðun, þar á meðal að drekka áfengi af afturenda hvors annars.

Stjórnandi afgönsku leyniþjónustunnar drepinn

Talíbanar felldu í dag einn æðsta stjórnanda afgönsku leyniþjónustunnar. Skömmu áður tilkynntu Sameinuðu þjóðirnar um að tekist hefði að draga úr einni helstu tekjulind Talíbana, ópíumrækt.

Karzai eykur við forskot sitt

Sitjandi forseti Afganistans Hamid Karzai hefur aukið við forystu sína í forsetakosningunum sem haldnar voru þann 20. ágúst síðastliðinn. Enn er verið að telja atkvæði en nú þegar um 60 prósent þeirra hafa verið talin er Karzai með rúm 47 prósent atkvæða en helsti keppinautur hans Abullah Abdullah er með 32 prósent. Verði þetta niðurstaðan er ljóst að kjósa þarf á ný á milli tveggja efstu frambjóðendanna því fimmtíu prósent atkvæða þarf til þess að sigra.

Að minnsta kosti fimmtán létust í Indónesíuskjálfta

Að minnsta kosti fimmtán eru látnir í Indónesíu eftir að stór jarðskjálfti reið þar yfir í morgun. Flóðbyljguviðvörun var gefin út fyrir öll lönd sem eiga strönd að Indlandshafi en hún hefur nú verið dregin til baka.

Stór skjálfti skók Indónesíu

Stór jarðskjálfti skók Indónesíu í morgun og er flóðbylgjuviðvörun í gangi fyrir öll lönd sem eiga strönd að Indlandshafi. Skjálftinn var 7,4 á Richter-kvarðanum og voru upptök hans um 240 kílómetra frá höfuðborginni Jakarta. Engar fregnir hafa enn borist af skemmdum eða dauðsföllum af völdum skjálftans.

Sjá næstu 50 fréttir