Ekki hægt að bera kennsl á mörg líkanna 4. september 2009 20:15 Frá Afganistan í dag. Mynd/AP
Uppundir 100 manns féllu þegar orrustuþotur NATO gerðu árás á tvo olíubíla sem Talibanar höfðu rænt í Afganistan. Óljóst er hvort óbreyttir borgarar voru á meðal þeirra. Mörg líkanna voru svo illa brunnin að ekki var hægt að bera kennsl á þau. Þegar Talibanar rændu olíubílunum drápu þeir annan bílstjórann en hinum tókst að flýja. Talibanar reyndu svo að komast undan með ránsfenginn en festu bílana í á sem þeir þurftu að fara yfir. Þar var gerð á þá loftárás og þeir sprengdir í tætlur. Herstjórn NATO segir að fjölmargir skæruliðar hafi fallið í árásinni. Engir óbreyttir borgarar hafi verið á vettvangi. Afganski héraðsstjórinn í viðkomandi héraði segir að 90 manns hafi fallið. Hann nefndi ekki óbreytta borgara en lögreglumaður sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði að fjörutíu slíkir hafi verið meðal hinna föllnu. Þeir hafi verið að reyna að ná sér í eldsneyti úr olíubílunum. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO sagði að málið yrði rannsakað. Margir hinna föllnu voru jarðsettir í fjöldagröf í dag. Mörg líkanna voru svo illa brunnin að ekki var hægt að bera kennsl á þau. Framkvæmdastjóri sjúkrahúss héraðsins sagði að þar væru tólf manns til aðhlynningar vegna alvarlegra brunasára. Hann kvaðst ekki vita hvort það væru skæruliðar eða óbreyttir borgarar, en meðal þeirra er allavega einn tíu ára gamall drengur.
Tengdar fréttir NATO gerði loftárás á stolna flutningabíla Um 90 manns eru ýmist slasaðir eða látnir eftir að orrustuvélar á vegum NATO gerðu loftárás snemma í morgun á tvo eldsneytisflutningabíla sem stolið hafði verið í norðurhluta Afganistan. 4. september 2009 08:35 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
NATO gerði loftárás á stolna flutningabíla Um 90 manns eru ýmist slasaðir eða látnir eftir að orrustuvélar á vegum NATO gerðu loftárás snemma í morgun á tvo eldsneytisflutningabíla sem stolið hafði verið í norðurhluta Afganistan. 4. september 2009 08:35