Fleiri fréttir

Brasilíski sjóherinn finnur meira brak úr vélinni

Brasilíski sjóherinn er kominn á þær slóðir þar sem talið er að Airbus farþegaþota Air France flugfélagsins hafi hrapað aðfaranótt mánudags. Talið er að flugriti vélarinnar, eða hinn svokallaði svarti kassi, muni aldrei finnast þar sem hann er staðsettur á gríðarlega miklu dýpi.

Cameron vill þingkosningar

Þingmenn Verkamannaflokksins í Bretlandi safna nú undirskriftum til að knýja á um að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga flokksins, víki. Talið er að framtíð hans í stjórnmálum geti ráðist af úrslitum Evrópu- og sveitastjórnakosningar sem fara fram í Bretlandi í dag. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, vill að þing verði rofið og boðað verði til kosninga.

Obama vill byrja upp á nýtt

Barack Obama Bandaríkjaforseti vill nýtt upphaf í samskiptum Bandaríkjanna og Múslimaríkja. Múslimatrú sé ekki vandamálið í baráttunni við öfgamenn heldur eitthvað sem nota skuli til að boða frið. Þetta sagði forsetinn í ávarpi í Egyptlandi í morgun.

Api tók rafmagn af 7.000 japönskum heimilum

Apa nokkrum tókst að rjúfa rafstraum til um það bil 7.000 heimila í Aomori-héraðinu í Japan á þriðjudaginn. Apinn komst inn í spennistöð svæðisins og tók að fikta þar í ýmsum rofum þar til hann greip um aðalöryggi stöðvarinnar og fékk heiftarlegt rafstuð.

Breti dæmdur til lífstíðar í Laos

Tvítug bresk kona, Samantha Orobator, hefur verið dæmd í lífstíðarfangelsi í Laos fyrir að reyna að smygla rúmum 700 grömmum af heróíni þaðan og til Taílands í ágúst í fyrra.

Obama á ferðalagi um Mið-Austurlönd

Barack Obama Bandaríkjaforseti hóf tveggja daga ferð sína um Mið-Austurlönd með því að heimsækja Abdullah, konung Sádi-Arabíu, í gær. Abdullah og Obama ræddu saman stuttlega fyrir framan blaðamenn en héldu síðan til fundar.

Lögregla í Fredericia eykur viðbúnað

Lögregla í bænum Fredericia á Jótlandi er í viðbragðsstöðu og hefur fjölgað í liði sínu á götum bæjarins eftir tvær skotárásir sem áttu sér stað þar nú í vikunni.

Kosið til Evrópuþings

Kosningar til Evrópuþingsins hefjast í dag og ganga Bretar og Hollendingar fyrstir til kjörklefanna. Kosið er í öllum 27 Evrópusambandslöndunum á fjögurra daga tímabili en þingsætin eru 736.

Brown berst í bökkum

Breski forsætisráðherrann Gordon Brown á í vök að verjast þessa dagana en sótt er að honum úr öllum áttum, meðal annars vegna hins eldfima kostnaðarmáls sem heldur betur hefur hrist upp í breskum þingheimi undanfarnar vikur.

Kassinn finnst kannski aldrei

Mögulegt er að svarti kassi flugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafinu á sunnudag finnist aldrei. Flugvélar og skip leituðu að meira braki úr vélinni við mjög erfiðar aðstæður í gær.

Aðgangur að torginu bannaður

Erlendum blaðamönnum var meinaður aðgangur að Torgi hins himneska friðar í gær, þegar tuttugu ár voru liðin frá því að friðsamleg mótmæli fyrir lýðræðisumbótum voru brotin á bak aftur.

Vinstrisigur á Grænlandi

Vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit sigraði í þingkosningunum á Grænlandi. Flokkurinn hlaut 44 prósent atkvæða og 14 af 31 þingsæti.

Bréf til Brown: Kæri forsætisráðherra segðu af þér

Nauðavörn Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands heldur áfram en samflokksmenn hans eru nú að safna undirskriftum svo þeir geti sent bréf þar sem hann er hvattur til þess að stíga til hliðar svo nýr leiðtogi geti leitt Verkamannaflokkinn inn á nýjar sigurbrautir.

Svindlaði sér inn í Arkitektaskólann í Árósum

25 ára gamall Íslendingur hlaut í dag 40 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Vestur Landsrétti Danmerkur fyrir skjalafals. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa falsað inntökubréf í Arkitektaskólann í Árósum.

Meira brak fundið úr vél Air France

Meira brak sem talið er vera úr flugvél Air France sem hrapaði yfir Atlandshafi hefur fundist. Þar á meðal er um sjö metra langt stykki úr vélinni. Í gær hafði fundist meira brak sem talið er vera úr sömu vél.

Aðstæður á leitarsvæðinu afar erfiðar

Óttast er að flugritar Air France farþegaflugvélarinnar sem talið er að hrapað hafi í Atlantshaf finnist ekki þar sem aðstæður á svæðinu þar sem brak hefur fundist eru mjög erfiðar.

Annar ráðherra Browns segir af sér

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála í Bretlandi, hafi sagt af sér embætti sökum óheimilla útgjaldaliða.

Skákbókasafn Bobbys Fischer á uppboð

Hundruð skákbóka, og annarra gagna sem tengjast skák, úr safni Bobbys heitins Fischer fara á uppboð í New York og á uppboðssíðu Bonhams í næstu viku.

Vinstristjórn líkleg á Grænlandi

Þingkosningar fóru fram á Grænlandi í gær. Kosningarnar voru þær síðustu sem fram fara áður en Grænlendingar öðlast aukið sjálfstæði 21. júní.

Ráðuneytismenn fá námskeið í uppistandi

Líf japanskra embættismanna er allt annað en hlægilegt þessa dagana og liggur stjórnarandstaðan þeim meðal annars á hálsi fyrir að sóa fé skattborgaranna ráðleysislega á krepputímum.

Hundruð þúsunda dollara hrundu úr bíl

Tveir heiðarlegir vegfarendur skiluðu til lögreglu rúmlega 275.000 bandaríkjadollurum sem hrundu út úr peningaflutningabíl í Syracuse í New York í síðustu viku en dyrum bílsins hafði ekki verið lokað almennilega áður en haldið var af stað.

Erfitt gæti reynst að finna flugrita Air France-þotunnar

Enn er leitað að Airbus-þotu franska flugfélagsins Air France sem hvarf yfir Atlantshafi um helgina með 228 farþega innanborðs. Brak, sem talið er að sé úr vélinni, hefur sést í sjónum en það voru leitarflugmenn frá Brasilíu sem komu auga á það í gær.

Tveggja mánaða fangelsi fyrir framhjáhald

Breskt par hefur verið dæmt í tveggja mánaða fangelsi fyrir framhjáhald í Daubai. Þau Sally Anita og Mark Hawkins voru handtekin þar sem þau yfirgáfu fimm stjörnu Radisson Blu Hótel í síðasta mánuði.

Hugsanleg afsögn innanríkisráðherra Bretlands

Breskir miðlar greina frá því í dag að Jacqui Smith, innanríkisráðherra Bretlands, muni segja af sér á næstu dögum vegna enn eins hneykslismáls þingmanna breska þingsins er varðar óheimil útgjöld þeirra.

Brak úr frönsku flugvélinni fundið

Brak úr farþegaþotu Air France, sem hvarf með 228 manns innanborðs yfir Atlantshafinu í fyrrinótt, fannst í dag um 640 kílómetra norðaustur af Brasilíu. Flugvélasæti er sagt meðal þess sem flýtur um í sjónum en það voru hermenn úr brasilíska sjóhernum sem fundu brakið.

Dýrkar van Damme

Verðandi leiðtogi Norður-Kóreu elskar hraðskreiða bíla og Jean Claude Van Damme. Kim Jong-il, leiðtogi landsins, hefur látið í ljós þá ósk sína að sonur hans, Kim Jong Un taki sæti hans þegar hann er allur.

Myrti nágranna sína fyrir að þvo þvott

Maður, sem handtekinn var í Kawasaki í Japan á laugardaginn fyrir að stinga þrjá nágranna sína til bana snemma um morguninn, gaf þá skýringu á athæfinu að hann hefði hreinlega ekki þolað að hlusta á hávaðann í þeim við að þrífa íbúðir sínar og opna og loka dyrum.

Darling biðst afsökunar vegna kostnaðarmála

Breski fjármálaráðherrann Alistair Darling baðst afsökunar á því í gær að hafa látið ríkissjóð greiða kostnað af íbúð sinni í London eftir að hann tók upp búsetu í embættisbústað við Downing-stræti 11.

Hnífaæði meðal breskra unglinga

Sífellt fleiri breskir unglingar ganga nú um vopnaðir hnífum og hafa þarlend yfirvöld látið í ljós áhyggjur af þróuninni.

Leitin að þotu Air France hefur engan árangur borið

Leit að farþegaþotu Air France, sem hvarf með 228 manns innanborðs yfir Atlantshafinu í fyrrinótt, stendur enn yfir en nú er talið að vélin, sem er af gerðinni Airbus A330, hafi verið nær Brasilíu en Afríku þegar hún fórst á leið sinni frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Charles de Gaulle-flugvallarins í París.

Bandaríkin ættu að sýna gott fordæmi

Bandaríkin ættu fremur að sýna öðrum ríkjum gott fordæmi en að hlutast til um það hvernig þeim er stjórnað. Þetta var meðal þess sem Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í ræðu sem hann hélt í Kaíró í Egyptalandi í gær.

Motzfeldt of drukkinn í flug

Jonathan Motzfeldt, fyrrverandi formaður grænlensku landstjórnarinnar, fékk ekki að fara um borð í þyrlu, sem var á leið frá Qaqortoq til Narsarsuaq um miðjan maí, þar sem hann þótti of drukkinn.

Gerði mistök en leiðrétti þau

Talið hefur verið víst að Gordon Brown láti Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, fara eftir Evrópuþingskosningarnar í þessari viku. Annað var hins vegar uppi á teningnum í gær.

Feðgum smyglað frá Rússlandi

Deila er komin upp milli finnskra og rússneskra stjórnvalda eftir að sendiráðsstarfsmaður Finna í Sankti Pétursborg í Rússlandi smyglaði nýlega föður og ungum syni hans frá Rússlandi yfir landamærin til Finnlands í skottinu á bíl sínum.

Dómur hafnar kröfu fríríkisins

Eystri landsréttur í Danmörku hefur nú úrskurðað að fríríkið Kristjanía hafi ekki landnýtingarréttinn á svæðinu þar sem fríríkið stendur.

Grefur undan friði í heiminum

Norður-kóresk stjórnvöld undirbúa nú að skjóta annarri eldflaug á loft, þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni. Talið er að henni verði skotið á loft í kringum 16. júní og hún sé af sömu gerð og sú sem var skotið upp 5. apríl síðastliðinn.

Sjá næstu 50 fréttir