Erlent

Las ræningja pistilinn og sneri honum til trúar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Upptaka öryggismyndavélar, verslunareigandinn er vinstra megin með byssuna og þylur fræðin yfir syndaranum.
Upptaka öryggismyndavélar, verslunareigandinn er vinstra megin með byssuna og þylur fræðin yfir syndaranum.

Verslunareigandi nokkur á Long Island í New York sneri vörn í sókn þegar maður, vopnaður hafnaboltakylfu, gerði tilraun til að ræna verslun hans nú fyrir mánaðamótin. Eigandinn dró haglabyssu undan afgreiðsluborðinu og beindi henni að ræningjanum. Svo tók hann að lesa honum pistilinn. Hann lét syndaselinn lofa sér því að ræna engan aftur en lét ekki þar við sitja heldur bað fyrir honum að sið múhameðstrúarmanna og gaf honum að lokum 40 dollara og brauðhleif. Þar með lauk samskiptum þeirra og hefur ræninginn vonandi látið af sinni vafasömu iðju eftir þessa reynslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×