Erlent

Leitin að þotu Air France hefur engan árangur borið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ættingjar bíða milli vonar og ótta.
Ættingjar bíða milli vonar og ótta. MYND/AP

Leit að farþegaþotu Air France, sem hvarf með 228 manns innanborðs yfir Atlantshafinu í fyrrinótt, stendur enn yfir en nú er talið að vélin, sem er af gerðinni Airbus A330, hafi verið nær Brasilíu en Afríku þegar hún fórst á leið sinni frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Charles de Gaulle-flugvallarins í París. Vélin flaug inn í ókyrrðarsvæði áður en samband við hana rofnaði en klukkan 4:15 að frönskum tíma bárust flugstjórnarmönnum í París sjálfvirk skilaboð frá viðhaldstölvum þotunnar þar sem greint var frá því að einhver af kerfum hennar væru í ólagi og virkuðu ekki sem skyldi. Skip og flugvélar frá Brasilíu, Spáni, Senegal og Frakklandi taka þátt í leitinni auk þess sem Bandaríkjamenn leita með aðstoð gervihnatta. Einn Íslendingur var um borð í þotunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×