Erlent

Málverk á uppboð eftir nær öld í einkaeigu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Málverkauppboð hjá Sotheby's.
Málverkauppboð hjá Sotheby's.

Löngu horfið málverk eftir franska listmálarann Jacques-Louis David var sýnt opinberlega í fyrsta sinn í 84 ár í New York í gær. Málverkið er frá árinu 1813 og hefur verið í einkaeigu allan þennan tíma. Nú verður það hins vegar boðið upp hjá Gregory Rubinstein í London á næstu dögum og áætla þeir sem til þekkja að allt að 800.000 pund fáist fyrir verkið, jafnvirði um 160 milljóna króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×