Erlent

Loka fjölda netsíðna til að hindra umfjöllun um torgið 1989

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Víðfræg mynd AP-fréttastofunnar sem blasti við heimsbyggðinni í júní 1989 og sýnir kínverskan mótmælanda bjóða her Alþýðulýðveldisins birginn.
Víðfræg mynd AP-fréttastofunnar sem blasti við heimsbyggðinni í júní 1989 og sýnir kínverskan mótmælanda bjóða her Alþýðulýðveldisins birginn. MYND/AP

Kínversk stjórnvöld hafa lokað aðgangi að vissum hlutum Netsins til að fyrirbyggja of mikla umfjöllun um atburðina á Torgi hins himneska friðar fyrir 20 árum.

Ríkisstjórn Alþýðulýðveldisins Kína er þekkt fyrir allt annað en að stjórna landinu með einhverjum silkihönskum og enn eitt dæmið um þá stefnu blasir nú við kínversku þjóðinni. Í dag og á morgun eru 20 ár liðin frá því að um eitt hundrað þúsund námsmenn mótmæltu kínverskum stjórnvöldum og kommúnisma á Tiananmen-torginu í Peking, svonefndu Torgi hins himneska friðar, í júní 1989.

Þeir sem minnast þeirra atburða vita að á torginu ríkti allt annað en himneskur friður 3. og 4. júní 1989 og nú ætla stjórnvöld í Kína að tryggja að þjóðin fari ekki að velta sér allt of mikið upp úr þessum atburðum. Það gera þau með því að loka tímabundið á aðgang að ýmsum netsíðum, svo sem síðu breska ríkisútvarpsins BBC, Hotmail-tölvupóstinn, Flickr-myndasíðu Yahoo og síðast en ekki síst Bing, hina nýju leitarvél Microsoft.

Þá sæta erlend dagblöð og sjónvarpsstöðvar hálfgerðri ritskoðun í dag og á morgun og hafa kínverskir sjónvarpsáhorfendur tekið eftir því að útsending BBC hverfur af skjánum í hvert sinn sem vikið er að fjöldamorðunum á torginu en kínversk stjórnvöld hafa allar götur síðan 1989 þverneitað að biðjast afsökunar á gerðum sínum þessa örlagaríku daga þegar hundruð, eða jafnvel þúsundir, létu lífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×