Erlent

Aðstæður á leitarsvæðinu afar erfiðar

Óttast er að flugritar Air France farþegaflugvélarinnar sem talið er að hrapað hafi í Atlantshaf finnist ekki þar sem aðstæður á svæðinu þar sem brak hefur fundist eru mjög erfiðar.

Brasilíski herinn fann í gær brak sem talið er vera af flugvélinni um sex hundruð og fimmtíu kílómetra norðaustur af Brasilíu. Brakið fannst á tveimur stöðum um sextíu kílómetra frá hvor öðrum. Á meðal þess sem fannst voru flugvélasæti og björgunarvesti. Herskip eru væntanleg á svæðið í dag.

Allt kapp er lagt á það að finna flugrita vélarinnar eða svokallað svarta kassa hennar til að hægt sé að varpa ljósi á hvað gerðist. Flugritarnir geyma einu áreiðanlegu upplýsingarnar úr flugvélinni. Rannsakendur eru hins vegar í kapphlaupi við tímann því svörtu kassarnir senda aðeins frá sér merki í þrjátíu daga.

Rannsakendur óttast að ekki náist að finna þá í tæka tíð þar sem aðstæður eru afar erfiðar. Vitað er að kassarnir eru á svæði þar sem dýpið er þrjú þúsund til sex þúsund metrar og hafstraumarnir sterkir.

Tvö hundruð tuttugu og átta manns voru um borð í flugvélinni þegar hún hvarf af ratsjám aðfaranótt mánudagsins og eru litlar líkur taldar á að nokkur finnist á lífi. Vélin var á leið frá borginni Rio des Janero í Brasilíu til Parísar í Frakklands og var stödd um 300 kílómetra undan ströndum Brasilíu þegar slysið varð en hún hafði skömmu áður flogið í gengum þrumuveður.


Tengdar fréttir

Erfitt gæti reynst að finna flugrita Air France-þotunnar

Enn er leitað að Airbus-þotu franska flugfélagsins Air France sem hvarf yfir Atlantshafi um helgina með 228 farþega innanborðs. Brak, sem talið er að sé úr vélinni, hefur sést í sjónum en það voru leitarflugmenn frá Brasilíu sem komu auga á það í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×