Erlent

Darling biðst afsökunar vegna kostnaðarmála

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Alistair Darling.
Alistair Darling.

Breski fjármálaráðherrann Alistair Darling baðst afsökunar á því í gær að hafa látið ríkissjóð greiða kostnað af íbúð sinni í London eftir að hann tók upp búsetu í embættisbústað við Downing-stræti 11. Sagðist Darling hafa í hyggju að endurgreiða það sem ekki væri réttilega hans en fjármálaráðherrann er talinn standa verulega höllum fæti og var eftir því tekið að Gordon Brown forsætisráðherra vék sér fimlega undan því að svara spurningum um Darling og framtíð hans í sjónvarpsviðtölum í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×