Erlent

Aðgangur að torginu bannaður

Blóðbaðsins minnst Atburðanna á Torgi hins himneska friðar fyrir tuttugu árum var minnst víðs vegar um heiminn í gær, meðal annars í Taívan, þar sem frægar myndir úr mótmælunum voru til sýnis. fréttablaðið/ap
Blóðbaðsins minnst Atburðanna á Torgi hins himneska friðar fyrir tuttugu árum var minnst víðs vegar um heiminn í gær, meðal annars í Taívan, þar sem frægar myndir úr mótmælunum voru til sýnis. fréttablaðið/ap

Erlendum blaðamönnum var meinaður aðgangur að Torgi hins himneska friðar í gær, þegar tuttugu ár voru liðin frá því að friðsamleg mótmæli fyrir lýðræðisumbótum voru brotin á bak aftur.

Dagana á undan höfðu þeir blaðamenn og ljósmyndarar sem reyndu að taka myndir á torginu eða ræða við andspyrnufólk verið handteknir. Þá var þekktu andspyrnufólki ýmist haldið heima hjá sér eða það neytt til að fara frá Peking í gær. Mikill fjöldi lögreglumanna gætti torgsins og þurfti fólk að framvísa skilríkjum til þess að komast nálægt því.

Á þriðjudag hafði samskiptavefjum á borð við Twitter og Face­book, myndasíðum og fjölmörgum spjallborðum á netinu verið lokað. Allar þessar öryggisaðgerðir voru gerðar til að koma í veg fyrir umræðu og möguleg mótmæli vegna atburðanna.

Aðfaranótt 4. júní 1989 höfðu friðsamleg mótmæli þúsunda Kínverja, að mestu leyti stúdenta, staðið í nokkrar vikur. Þá lét herinn til skarar skríða gegn fólkinu og jafnvel mörg hundruð eða þúsund manns voru drepnir og enn fleiri voru handteknir. Kínversk stjórnvöld hafa aldrei leyft óháða rannsókn á málinu. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×