Erlent

Kim Jong-il vill yngsta soninn sem eftirmann

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur látið í ljós þá ósk sína að yngsti sonur hans taki sæti hans þegar hann er allur. Suðurkóreskir fjölmiðlar greindu frá þessu. Stjórnmálaskýrendur telja kjarnorkuvopnabrölti Norður-Kóreumanna upp á síðkastið einkum hafa verið ætlað að sýna þau heljartök sem Kim Jong-il hefur á ríki sínu og þar með auðvelda honum að kveða upp úrskurð um það hver leysi hann af hólmi án þess að því verði mótmælt. Leiðtoginn er talinn heilsuveill og staðfest er að hann hafi fengið heilablóðfall í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×