Erlent

Prófessor í samkynhneigð við Harvard

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ein af byggingum skólans.
Ein af byggingum skólans.

Harvard-háskóli er fyrsti háskóli Bandaríkjanna til að koma á fót prófessorstöðu í málefnum samkynhneigðra.

Nokkrir bandarískir háskólar hafa kennt ýmis fræði tengd kynhegðun en það er Harvard-skólinn í Boston sem ríður á vaðið með fræði sem tengjast samkynhneigðum beinlínis auk þess sem nýja prófessorstaðan nær til stöðu kyn- og klæðskiptinga í samfélaginu.

Gert er ráð fyrir að um stöðu gistifræðimanns verði að ræða fyrst um sinn sem táknar að ekki er um fastan prófessor að ræða heldur er staðan veitt hinum og þessum sem uppfylla skilyrði skólans til að gegna stöðu prófessors og hafa yfirgripsmikla þekkingu á málefnum og stöðu samkynhneigðra.

Stofnaður hefur verið sérstakur sjóður við skólann til að standa undir stöðunni og er sá kenndur við Francis Otto Matthiessen, sem kenndi bókmenntir og sögu við Harvard, en hann var fyrsti samkynhneigði kennarinn sem vitað var um við skólann þótt hann hafi ávallt haldið kynhneigð sinni leyndri. Matthiessen lést árið 1950.

Námsgreinar tengdar við kynhegðun hafa blómstrað við bandaríska háskóla undanfarin ár og auk Harvard hafa Berkeley, Yale og Háskólinn í Minnesota boðið upp á nám í slíkum fræðum en Harvard er fyrstur til að koma á fót stöðu prófessors í greininni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×