Erlent

Skákbókasafn Bobbys Fischer á uppboð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Fischer tæplega þrítugur við skákborðið.
Fischer tæplega þrítugur við skákborðið.

Hundruð skákbóka, og annarra gagna sem tengjast skák, úr safni Bobbys heitins Fischer fara á uppboð í New York og á uppboðssíðu Bonhams í næstu viku. Um er að ræða safn sem bandarísk yfirvöld lögðu hald á eftir að Fischer tefldi við Boris Spassky í Svartfjallalandi árið 1992 og braut með því viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna við Serbíu og Svartfjallaland. Safn Fischers er metið á jafnvirði allt að 10 milljóna íslenskra króna og inniheldur meðal annars gögn tengd skákeinvíginu við Spassky hér á landi árið 1972.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×