Erlent

Annar ráðherra Browns segir af sér

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála
Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála Mynd/Getty
Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála í Bretlandi, hafi sagt af sér embætti sökum óheimilla útgjaldaliða.

Blears er annar ráðherrann á tveimur dögum sem segir af sér vegna persónulegra útgjalda en í gær greindi Vísir frá því að Jacqui Smith, innanríkisráðherra, hafi sagt af sér af sömu ástæðu.

Meðal annars færði Blears til kostnaðar á ráðuneyti sitt kaup á húsgögnum að andvirði 1 milljónar íslenksra króna, auk ýmiss kostnaðar vegna þriggja mismunandi fasteigna í hennar eigu.

“Með afsögn minni langar mig að aðstoða Verkamannaflokkinn að tengjast fólkinu í landinu á nýjan leik og minna þau á að okkar gildi eru þeirra gildi„ lét Blears meðal annars hafa eftir sér.

Eru þessi mál öll hin skammarlegustu fyrir breska Verkamannaflokkinn og auka enn á vandræði Gordon Brown, forsætisráðherra, sem þykir orðinn ansi valtur í sessi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×