Erlent

Brasilíski sjóherinn finnur meira brak úr vélinni

Brasilíski sjóherinn er kominn á þær slóðir þar sem talið er að Airbus farþegaþota Air France flugfélagsins hafi hrapað aðfaranótt mánudags. Talið er að flugriti vélarinnar, eða hinn svokallaði svarti kassi, muni aldrei finnast þar sem hann er staðsettur á gríðarlega miklu dýpi.

Samkvæmt upplýsingum frá sjóhernum hafa menn ekki enn fundið lík á svæðinu en þeir hafi þó fundið meira brak úr vélinni, en í gær fundust einhverjar leifar. Vélin var með 228 farþega innanborðs og var að koma frá Rio de janero í Brasilíu og var á leið til Parísar. Nær útilokað er talið að einhver finnist á lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×