Cameron vill þingkosningar 4. júní 2009 12:11 Hart er sótt að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga Verkamannaflokksins, þessa dagana og vill David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins þingkosningar. Mynd/AP
Þingmenn Verkamannaflokksins í Bretlandi safna nú undirskriftum til að knýja á um að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga flokksins, víki. Talið er að framtíð hans í stjórnmálum geti ráðist af úrslitum Evrópu- og sveitastjórnakosningar sem fara fram í Bretlandi í dag. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, vill að þing verði rofið og boðað verði til kosninga. Kosið er til nokkurra sveitastjórna og Evrópuþingsins í Bretlandi í dag en Evrópuþingskosningar standa næstu fjóra daga í öllum 27 ríkjum ESB. Aðeins er kosið í Bretlandi og Hollandi í dag. Ekki er búist við mikilli kosningaþátttöku í nokkru ESB ríki, þar með talið Bretlandi, en þó er litið svo á að kosningarnar í dag geti ráðið miklu um framtíð Browns í embætti. Fari svo að Verkamannaflokkurinn gjaldi afhroð líkt og spáð er þá verði herði flokksbræður forsætisráðherrans sóknina gegn honum. Tölvupósti var lekið í breska miðla í gær þar sem ónafngreindir þingmenn í Verkamannaflokknum hvetja flokksmenn til að skrifa undir bréf til Brown þar sem hann er hvattu til að víkja. Þeir sem standa að bréfinu ætla ekki að koma fram undir nafni fyrr en fimmtíu hafa skrifað undir. Sjötíu þingmenn Verkamannaflokksins hið minnsta af nærri þrjú hundruð og sextíu á þingi geta knúið fram leiðtogakosningum í flokknum með því að útnefna annan þingmann sem leiðtoga. Brown á í vök að verjast, ekki síst vegna kostnaðarhneykslisins þar sem upplýst hefur verið að þingmenn á breska þinginu hafa teygt reglur og jafnvel farið á svig við þær til að fá endurgreidd útgjöld sín af opinberu fé. Tveir þungaviktarráðherrar í ríkisstjórn hafa sagt af sér í vikunni vegna málsins. Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála, í gær og Jacqui Smith, innanríkisráðherra, í fyrradag. Verkamannaflokkurinn getur í síðasta lagi boðað til kosninga í byrjun maí á næsta ári. Síðustu kannanir benda til að Íhaldsmenn hafi þar ríflega tuttugu prósentustiga forskot á Verkamannaflokkinn. Brown átti í vök að verjast í fyrirspurnartíma í gær. Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, sagði að Verkamannaflokkurinn væri búinn að vera og Frjálslyndir eða Íhalsmenn einu raunverulegu valkostirnir fyrir kjósendur. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, sagði að eina lausnin fyrir Brown nú væri að fara til drottningar og biðja um að þing yrði leist upp og boða síðan strax til kosninga. Brown sagðist einfaldlega halda sinni vinnu áfram í efnahagskreppunni. Ringulreið yrði í landinu ef Íhaldsmenn kæmust til valda og myndu skera niður í opinberum útgjöldum á þessum erfiðu tímum.
Tengdar fréttir Brown berst í bökkum Breski forsætisráðherrann Gordon Brown á í vök að verjast þessa dagana en sótt er að honum úr öllum áttum, meðal annars vegna hins eldfima kostnaðarmáls sem heldur betur hefur hrist upp í breskum þingheimi undanfarnar vikur. 4. júní 2009 07:10 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Brown berst í bökkum Breski forsætisráðherrann Gordon Brown á í vök að verjast þessa dagana en sótt er að honum úr öllum áttum, meðal annars vegna hins eldfima kostnaðarmáls sem heldur betur hefur hrist upp í breskum þingheimi undanfarnar vikur. 4. júní 2009 07:10