Erlent

Erfitt gæti reynst að finna flugrita Air France-þotunnar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Airbus A380-þota, sú sem fórst var af gerðinni A330.
Airbus A380-þota, sú sem fórst var af gerðinni A330.

Enn er leitað að Airbus-þotu franska flugfélagsins Air France sem hvarf yfir Atlantshafi um helgina með 228 farþega innanborðs. Brak, sem talið er að sé úr vélinni, hefur sést í sjónum en það voru leitarflugmenn frá Brasilíu sem komu auga á það í gær. Varnarmálaráðherra Brasilíu segir nær öruggt að brakið sé úr vélinni. Einnig var olíubrák á yfirborði sjávar. Ekki hefur þó verið staðfest að brakið sé úr vélinni sem hvarf. Talið er að mjög erfitt geti reynst að finna flugrita vélarinnar þar sem mikið hafdýpi sé á þeim slóðum sem brakið sást á og miklir neðansjávarfjallgarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×