Erlent

Myrti nágranna sína fyrir að þvo þvott

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kawasaki-borg.
Kawasaki-borg.

Maður, sem handtekinn var í Kawasaki í Japan á laugardaginn fyrir að stinga þrjá nágranna sína til bana snemma um morguninn, gaf þá skýringu á athæfinu að hann hefði hreinlega ekki þolað að hlusta á hávaðann í þeim við að þrífa íbúðir sínar og opna og loka dyrum. Eins kvartaði maðurinn, sem er tæplega sextugur, yfir því að nágrannarnir hikuðu ekki við að þvo þvott á morgnana með miklum látum. Hin myrtu eru öll um sjötugt og voru stungin til bana með 20 sentimetra löngu hnífsblaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×