Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líklegt að Darling verði látinn fjúka Gordon Brown segir að hann muni ekki láta af embætti forsætisráðherra Bretlands þótt stjórn hans sé rúin trausti. Hins vegar er líklegt að Alastair Darling fjármálaráðherra verði látinn fjúka. 1.6.2009 12:01
Farþegavél með 228 farþega hvarf yfir Atlantshafi Farþegaflugvél með 228 farþega innaborðs frá franska flugfélaginu Air France er saknað eftir að hún hvarf yfir Atlantshafinu. Vélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var á leið til París. Samkvæmt flugmálayfirvöldum á Charles de Gaulle flugvellinum í París misstu þeir samband við vélina um sex leytið í morgun. Það er BBC sem greinir frá. 1.6.2009 10:13
Rukkaði ríkið fyrir skattaskýrslugerð Líkur á því að Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé á útleið hafa enn aukist eftir að dagblaðið Daily Telegraph upplýsti að hann sendi ríkisstjóði reikning fyrir að láta endurskoðanda gera skattskýrslu sína. 1.6.2009 10:00
Elísabet Fritzl komin með kærasta Austurrískir fjölmiðlar skýra frá því að Elísabet Fritzel hafi fundið ástina í fyrsta skipti. Sá útvaldi er einn af lífvörðum hennar. Faðir Elísabetar hélt henni í fangelsi í tuttugu og fjögur ár og eignaðist með henni sjö börn. Hún er nú fjörutíu og fjögurra ára gömul en kærastinn er sagður allnokkuð yngri. Þau eru sögð hafa hafið sambúð. 1.6.2009 09:56
Síðasti eftirlifandi Titanic farþeginn látinn Síðasti eftirlifandi farþeginn af Titanic lést í gær 97 ára að aldri. Elisabeth Gladys Dean, sem oft var kölluð Millvina, lést á hjúkrunarheimili nærri Southampton, en þar hafði hún dvalið í boði Leonardo Di Caprio og Kate Winslet, sem léku aðalhlutverkin í Titanic myndinni. 1.6.2009 09:00
Sex menn fórust í átökum Hamas og Fatah Sex menn fórust þegar sérsveitir Fatah hreyfingarinnar börðust við Hamasliða í borginni Qalqilya á Vesturbakkanum í gær. Vefsíða breska blaðsins Telegraph segir að um sé að ræða verstu bardagar milli Palestínumanna, sem eiga sér stað utan Gaza, í mörg ár. 1.6.2009 08:00
Meintur morðingi kvensjúkdómalæknis fundinn Lögreglan í Wichita í Kansasfylki í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem hún grunar um að hafa myrt George Tiller, lækni sem er þekktur fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem ganga með mjög þroskuð fóstur. 31.5.2009 23:45
Óhugnalegt yfirstéttarmorð í Frakklandi Lögreglan í Bretlandi leitar Ian Griffins auðjöfurs sem grunaður er um að hafa barið kærustuna sína til bana á lúxushóteli í París fyrir fáeinum dögum. 31.5.2009 17:43
Þróa nýja krabbameinsmeðferð Eftir 30 ára þrotlausar tilraunir hefur læknum hefur tekist að finna leið til þess að fá ónæmiskerfið til þess að berjast gegn krabbameini. 31.5.2009 15:48
Brown vill Darling burt úr ríkisstjórninni Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, er reiðubúinn til þess að skipta Alistair Darling út úr fjármálaráðuneytinu í staðinn fyrir Ed Balls menntamálaráðherra og nánasta pólitíska samherja sinn. Þetta hefur vefútgáfa breska blaðsins Timess eftir hátt settum embættismönnum úr Downingstræti. 31.5.2009 10:15
Blæs á gagnrýni á útnefningu dómara Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, blæs á alla gagnrýni á útnefningu Soniu Sotomayor sem hæstaréttadómara og vonast til þess að Öldungadeild þingsins muni styðja ákvörðun hans sem fyrst. 31.5.2009 08:00
Saka dönsk stjórnvöld um ritskoðun Gagnrýnendur stjórnvalda í Danmörku setja þau á stall með stjórnvöldum í Kína og Norður - Kóreu vegna strangs aðhalds með netnotkun. Í lesendabréfi sem sent hefur verið Berlingske Tidende sem stjórnendur nokkurra risafyrirtækja senda frá sér eru stjórnvöld sökuð um ritskoðun. 30.5.2009 22:30
Enn eitt áfallið fyrir Brown Ný fylgiskönnun Sunday Telegraph er enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown, forsætisráðherra Breta. Samkvæmt könnuninni er Verkamannaflokkur Browns þriðji stærsti flokkurinn í Bretlandi. Íhaldsflokkurinn mælist með 40% fylgi, 30.5.2009 20:26
Gengst við 21 barni Desmond Hatchett, 29 ára gamall íbúi í Tennessee í Bandaríkjunum gengst við því að 21 kona hafi alið honum barn. Tvisvar sinnum var honum alin fjögur börn á einu ári. Þetta kom fram þegar Hatchett var leiddur fyrir rétt í vikunni fyrir að standa ekki skil á meðlagsgreiðslum. 30.5.2009 15:43
Kínverjar hundfúlir yfir samskiptum Dana við Dalai Lama Fundur danska forsætisráðherrans með Dalai Lama skaðar vináttusamband Danmerkur og Kína. Þetta segir í tilkynningu frá kínverska utanríkisráðuneytinu í dag, en Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hitti Dalai Lama bústað ráðherrans í gær. 30.5.2009 13:24
Svínaflensan komin til Líbanon Svínaflensa hefur greinst í fyrsta sinn í Líbanon. Þrír hafa veikst af flensunni þar í landi að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Fólkið fái nú læknismeðferð og sé á batavegi. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin segir að fleiri en fimmtán þúsund og fimm hundruð manns hafi smitast af svínaflensunni víða um heim. Níutíu og níu hafi látist af völdum hennar, flestir í Mexíkó. Aðeins er vitað um eitt smit á Íslandi. 30.5.2009 10:24
Brown mun gjalda afhroð Útlit er fyrir að Verkamannaflokkur Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, gjaldi afhroð í næstu þingkosningum sem haldnar verða í síðasta lagi næsta vor. 30.5.2009 10:19
Aung San Suu Kyi sögð sjúk Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma (Myanmar), er í brýnni þörf fyrir læknisaðstoð í fangelsinu þar sem hún dvelur á meðan réttað er yfir henni. Þetta fullyrða samflokksmenn hennar. 30.5.2009 05:00
Fyrrum ráðherra víkur vegna útgjaldahneykslisins Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það hafi verið mistök hjá sér að láta breska þingið greiða af húsnæðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri en hann hefur setið á þingi um árabil fyrir Verkamannaflokkinn. 29.5.2009 20:44
Þúsundir minntust fyrrum forseta S-Kóreu Tugir þúsunda komu saman á götum Seoul í dag og minntust Roh Moo-Hyun, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu, sem framdi sjálfsmorð fyrir rúmri viku. Forsetinn fyrrverandi var afar vel liðinn af fjölmörgum samlöndum sínum. Útför hans fór fram í dag og þar sagði Han Seung-soo, forsætisráðherra landsins, að Roh yrði meðal annars minnst fyrir að hafa barist fyrir mannréttindum og stéttlausu samfélagi. 29.5.2009 18:41
Segja Bandaríkjamenn standa að baki sprengjuárás í Íran Írönsk yfirvöld segja að Bandaríkjamenn hafi staðið að baki sprengjuárás í mosku í suð-austurhluta Írans í gærkvöldi. Minnst nítján féllu í árásinni og um sextíu særðust. 29.5.2009 12:26
„Ofurfangelsi“ í Colorado tekur hugsanlega við af Guantanamo Öryggisfangelsið í Florence í Colorado gæti orðið næsta prísund þeirra fanga sem nú dvelja í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. 29.5.2009 08:11
Vítisenglar sagðir nota geðsjúka í skítverkin Vélhjólasamtökin Vítisenglar í Danmörku eru sögð beita andlega vanheilu fólki fyrir sig til að fremja gróf ofbeldisverk. 29.5.2009 07:25
Hvað á að gera við Norður-Kóreumenn? Bandarísk sendinefnd er nú á leið til Asíu til að ráðfæra sig við nokkra þjóðarleiðtoga þar, um hvað skuli eiginlega gera í málefnum Norður-Kóreumanna sem hafa allt á hornum sér þessa dagana og hóta Suður-Kóreumönnum og fleirum öllu illu. 29.5.2009 07:21
Rændu feðga dulbúnir sem pizzasendlar Ráðist var inn á heimili feðga í danska bænum Skibby laust eftir miðnætti í nótt, þeir bundnir og heimilið rænt verðmætum. Faðirinn er rúmlega fertugur en sonur hans fjögurra ára og voru ræningjarnir tveir. 29.5.2009 07:19
Bing er nýjasta leitarvél Microsoft Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft, hleypti í gær af stokkunum tilraunaútgáfu nýrrar leitarvélar hugbúnaðarfyrirtækisins sem gengur undir nafninu Bing og er ætlað að verða eins konar keppinautur og jafnvel arftaki Google-leitarvélarinnar sem einnig er runnin undan rifjum Microsoft. 29.5.2009 07:18
Obama fundaði með Abbas í gær Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fund með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, þar sem þjóðhöfðingjarnir ræddu málefni Vesturbakkans. 29.5.2009 07:13
Eton-skólanum lokað vegna svínaflensu Hinn virti breski einkaskóli Eton verður lokaður næstu vikuna eftir að einn nemenda hans greindist með svínaflensu. 29.5.2009 07:10
Bandaríski bílarisinn GM endar í ríkiseigu Samkvæmt því sem lekið hefur út um drög að samkomulagi milli bandaríska fjármálaráðuneytisins og helstu lánardrottna bílarisans GM stefnir í að ríkið eignist yfir 70 prósent í endurreistu fyrirtæki eftir hraðgjaldþrot. Óljóst um örlög Opel. 29.5.2009 04:30
Fjögur börn sögð hafa farist Minnst fjórir létust í Hondúras í gær þegar sterkur jarðskjálfti, 7,1 á Richterkvarða, reið yfir undan ströndum Mið-Ameríkulandsins. Hús hrundu bæði í Hondúras og nágrannalandinu Belís og fólk allt til höfuðborgarinnar í Gvatemala flúði híbýli sín á náttfötunum. 29.5.2009 04:15
Fimmtán féllu í mosku í Íran Að minnsta kosti 15 manns biðu bana og meira en 50 særðust í sprengjuárás ódæðismanna á mosku í borginni Zahedan í suðausturhluta Írans í kvöld. Sprengja sprakk í moskunni þegar fjölmargir sjíta-múslimar voru þar við kvöldbænir. 28.5.2009 22:45
Vill að Ísraelar hætti við landtökubyggðir Barack Obama, Bandaríkjaforseti, ætlar að beita sér fyrir því að Ísraelar hætti við frekari framkvæmdir við landtökubyggðir á Vesturbakka Palestínu en þær eru afar umdeildar og stangast á við alþjóðalög. Obama fundaði með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í kvöld. Þar ræddu þær um leiðir til að koma á friði í heimshlutanum. 28.5.2009 21:59
Pelosi vill að Kínverjar beiti sér í málefnum N-Kóreu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fordæmir kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Jafnframt hvetur hún ráðamenn í Kína til að beita áhrifum sínum og fá Norður-Kóreumenn til að láta af tilraunum sínum með skammdrægar eldflaugar. 28.5.2009 21:08
Mannskæðar sprengjuárásir í Pakistan Að minnsta kosti tíu eru látnir og hið minnsta 70 eru slasaðir eftir tvær sprengjuárásir í borginni Peshawar sem er í norðausturhluta Pakistans. Tvær sprengjur sprungu á markaði í miðbæ borgarinnar og þar er talið að sex einstaklingar hafi fallið. Á sama tíma sprengdi karlmaður með sprengjubelti sig í loft upp við starfsstöð hersins í útjaðri borgarinnar og þar munu að minnsta kosti fjórir hafa dáið. 28.5.2009 18:01
Að minnsta kosti fjórir látnir í Hondúras Nú er ljóst að fjögur börn eru látin í kjölfar jarðskjálfta úti fyrir ströndum Hondúras í Mið-Ameríku. Skjálftinn var 7,1 á Richter kvarðanum og óttast hjálparstarfsmenn á svæðinu að tala látinna eigi eftir að hækka. 28.5.2009 14:48
Öflugur skjálfti undan ströndum Hondúras Öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter-kvarða reið yfir undan ströndum Hondúras í morgun. Upptök skjálftans eru um 64 kílómetra undan ströndum landsins og var hann á tiltölulega grunnu dýpi að því er landfræðistofnun Bandaríkjanna segir. Fylgst er með því hvort skjálftanum fylgi flóðbylgja. Engar fréttir hafa borist af tjóni af völdum skjálftans en hann fannst greinilega í Hondúras og í Gvatemala. 28.5.2009 10:19
Sjálfsvíg aldrei fleiri í Japan Sjálfsvígum fjölgar nú sem aldrei fyrr í Japan en rúmlega eitt hundrað manns styttu sér aldur þar í landi í apríl. Sjálfsmorðstíðni Japana hefur lengi verið ein sú hæsta í þróuðum löndum og mælist nú 24 tilfelli á hverja 100.000 íbúa landsins. 28.5.2009 08:31
Skart rappara hríðfellur í verði Harðnandi árferði gerir það að verkum að rapptónlistarmenn draga nú úr gullskreytingum sínum og bera jafnvel gerviskartgripi. 28.5.2009 08:14
Nautgripaþjófum vex fiskur um hrygg vestra Þegar hjónin Chrissy og Benny Pinckard risu úr rekkju í smábæ nokkrum í Alabama fyrr í vor og fóru á stjá kom í ljós að tvö verðlaunanaut í eigu þeirra voru horfin. 28.5.2009 08:11
Skotinn í brjóstið í Kaupmannahöfn Tuttugu og sex ára gamall maður liggur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn eftir að hafa verið skotinn í brjóstið í Sydhavn skömmu eftir miðnætti í nótt. 28.5.2009 08:09
Felldu 34 talibana í Pakistan Hersveitir NATO létu til skarar skríða ásamt afgönskum lögreglumönnum í nótt og drápu 34 talibana í árás á þorp í suðausturhluta Pakistans. 28.5.2009 07:32
Bandaríkin nálgast jafnvægi Jafnvægi er að komast á bandarískt efnahagslíf eftir erfiðasta krepputímabil í áratugi. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði fjáröflunarsamkomu Demókrataflokksins í gær. 28.5.2009 07:30
John Yettaw í vitnastúkuna Bandaríkjamaðurinn John Yettaw, sem heimsótti stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi á Búrma í stofufangelsi hennar, kom fyrir rétt í gær og bar vitni í réttarhöldunum yfir henni. 28.5.2009 07:25
Vopnahlé Kóreumanna frá 1953 úr sögunni Norður-Kóreumenn slitu í dag vopnahléi sínu gagnvart Suður-Kóreu sem staðið hefur allar götur síðan Kóreustríðinu lauk árið 1953. 28.5.2009 07:23
Fundu nærri 700 kíló af kóki Franskir tollverðir lögðu hald á 684 kíló af kókaíni við reglubundið eftirlit í flutningabíl sem var að koma frá Spáni. Tollayfirvöld í Frakklandi segja að þetta sé einn stærsti fíkniefnafundur í þeirra sögu. Talið er að verðmæti fíkniefnanna nemi 4600 milljónum íslenskra króna. Tveir voru handteknir, grunaðir um að tengjast smyglinu, en ekki hefur verið upplýst um það hverjir þeir eru eða af hvaða þjóðerni. 27.5.2009 23:12