Erlent

Kassinn finnst kannski aldrei

minningarathöfn Fjöldi manns kom saman við minningarathöfn í og við Notre Dame-kirkju í París í gær. Þeirra á meðal voru frönsku forsetahjónin, fjöldi ættingja fórnarlamba og starfsfólk Air France.Fréttablaðið/ap
minningarathöfn Fjöldi manns kom saman við minningarathöfn í og við Notre Dame-kirkju í París í gær. Þeirra á meðal voru frönsku forsetahjónin, fjöldi ættingja fórnarlamba og starfsfólk Air France.Fréttablaðið/ap

Mögulegt er að svarti kassi flugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafinu á sunnudag finnist aldrei. Flugvélar og skip leituðu að meira braki úr vélinni við mjög erfiðar aðstæður í gær.

Sjö metra langur hluti af vélinni fannst um 90 kílómetrum sunnar en það brak sem hafði fundist á þriðjudag.

Sérfræðingar reyna nú að finna orsök slyssins, en án svarta kassans er það talsvert erfiðara. Ef kassinn er á hafsbotni verður mjög erfitt að finna hann þar sem dýpið er sums staðar fimm kílómetrar og að auki mikið fjalllendi. Kenningar eru uppi um það að mikið óveður eða eldingar hafi valdið því að flugvélin fórst. Alain Bouillard, sem stýrir rannsókninni, sagði í gær mögulegt að elding hafi grandað vélinni, ef eldingin hefur lent á olíutanki eða náð að slá út rafmagnskerfi.

Annars eru flugvélar eins og sú sem fórst hannaðar til að þola að fá í sig eldingar. Eins og er eru engar upplýsingar um að nokkuð hafi verið að vélinni áður en hún fór á loft.

Ef enginn finnst á lífi verður slysið það mannskæðasta í sögu Air France, og það mannskæðasta í heiminum í tæp átta ár, eða frá því að farþegavél American Airlines hrapaði á íbúðahverfi í New York í nóvember 2001. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×