Erlent

Vinstrisigur á Grænlandi

Grænlenskt barn,
Grænlenskt barn,

Vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit sigraði í þingkosningunum á Grænlandi. Flokkurinn hlaut 44 prósent atkvæða og 14 af 31 þingsæti.

Leiðtogi flokksins, Kuupik Kleist, hefur lýst því yfir að hann sé reiðubúinn í samstarf með öllum flokkum nema Siumut. Siumut fékk 26 prósent atkvæða og tapaði miklu fylgi, eftir að hafa verið við stjórnvölinn á Grænlandi allt frá því að landið fékk heimastjórn fyrir þrjátíu árum.

Kosningarnar voru þær síðustu fyrir aukið sjálfstæði Grænlendinga frá Dönum, sem verður að veruleika 21. júní. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×