Erlent

Lögregla í Fredericia eykur viðbúnað

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögregla í bænum Fredericia á Jótlandi er í viðbragðsstöðu og hefur fjölgað í liði sínu á götum bæjarins eftir tvær skotárásir sem áttu sér stað þar nú í vikunni. Auk skotárásanna var 16 ára piltur handtekinn með AK47-hríðskotariffil úti á götu aðfaranótt þriðjudags. Íbúar Frederica, sem er rólyndisbær, eru ekki vanir uppákomum af þessu tagi og eru felmtri slegnir vegna atburðanna. Lögregla bæjarins hefur óskað eftir ábendingum frá almenningi um vopnaburð fólks sem ekki hefur skotvopnaleyfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×