Erlent

Tveggja mánaða fangelsi fyrir framhjáhald

Frá Dubai
Frá Dubai Mynd úr safni
Breskt par hefur verið dæmt í tveggja mánaða fangelsi fyrir framhjáhald í Daubai. Þau Sally Anita og Mark Hawkins voru handtekin þar sem þau yfirgáfu fimm stjörnu Radisson Blu Hótel í síðasta mánuði.

Lögfræðingur Hawkins sagði við Sky News að þau hefðu verið dæmd í tveggja mánaða fangelsi, en skjólstæðingur sinn væri mjög sáttur með þá niðurstöðu.

Svo virðist vera sem eiginmaður Anítu, Vincent, hafi tilkynnt lögreglu um grunsemdir sínar í síðasta mánuði. Skilnaðarferli er nú í gangi á milli þeirra.

Aníta skrifaði nefnilega nýlega á á vefsíðu sína hjá Friends Reunited:

„Hefur búið í Dubai síðustu tólf árin. Giftur með tvær stúlkur sem nú eru 11 og 13 ára. Nýtur þess að vera í sólinni, en er oft heima að horfa á leik. Mikill United aðdáandi. Glaður og heilbrigður......geturðu beðið um eitthvað meira?"

Framhjáhald er litið mjög alvarlegum augum í Dubai og hægt er að dæma fólk í allt að eins árs fangelsi verði það staðið að framhjáhaldi. Önnur bresk kona, Marnie Pearce, sat í fangelsi í þrjá mánuði fyrr á þessu ári og missti forræði yfir tveimur sonum sínum, eftir að Egypskur fyrrum eiginmaður hennar ásakaði hana um framhjáhald í landinu.

Kate Allen frá Amnesty International segir í samtali við The Times að þau Saylly og Mark hefðu aldrei átt að fara í fangelsi fyrir athæfi sem þetta.

„Kynlíf fullorðinna á ekki að vera glæpsamlegt, það ætti að sleppa þeim lausum nú þegar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×