Erlent

Svindlaði sér inn í Arkitektaskólann í Árósum

25 ára gamall Íslendingur hlaut í dag 40 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Vestur Landsrétti Danmerkur fyrir skjalafals. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa falsað inntökubréf í Arkitektaskólann í Árósum.

Áður hafði maðurinn verið sýknaður í undirrétti. Það var einróma álit þriggja dómara í landsrétti að maðurinn væri sekur um skjalafals.

Aðferð mannsins við fölsunina var með þeim hætti að hann skipti út neðri hluta bréfsins þar sem kom fram að hann hefði ekki hlotið inngöngu, og skeytti þess í stað við hluta þar sem stóð að hann hefði hlotið inngöngu. Útskýrði hann undarlegt útlit bréfsins með þeim hætti að hann hefði hellt kaffi yfir bréfið en blessunarlega verið búinn að skanna bréfið inn áður.

Maðurinn hafði verið við nám í tvö ár í skólanum og því langt kominn með að öðlast BA-gráðu. Ólíklegt þykir að maðurinn fái að ljúka námi sínu við skólann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×