Fleiri fréttir

Útséð að sumir munu ekki snúa aftur

Ljóst er að sumir þeirra ungu geislafræðinga sem starfa á Landspítalanum og hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín munu ekki hefja störf þar að nýju.

Engin gengisfelling á hundraðkallinum

Ágúst Kvaran efnafræðiprófessor við HÍ var fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa hundrað kílómetrana. Hann er nú sextíu og eins árs, ný risinn upp úr erfiðum meiðslum og löngu fjallahlaupi en stefnir á hundrað mílna hlaup í Grikklandi.

Enn einn í varðhald vegna grófra árása

Sjö manns hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á nokkrum hrottafengnum líkamsárásarmálum. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Ekki útilokað að fleiri verði handteknir. Eldfimum vökva var skvett á eitt fórnarlambið og eldur borinn að.

Segir framlag háskólans duga til að steypa upp húsið

Hægt væri að steypa upp Hús íslenskra fræða við Suðurgötu og ganga frá umhverfi þess fyrir eftirstöðvarnar af beinu framlagi Háskóla Íslands til verkefnisins, að sögn forstöðumanns Árnastofnunar.

Skipuleggjendur kannabisræktunar óttast ekki lögreglu

Íslenski kannabis-markaðurinn er orðinn sjálfum sér nógur. Innflytjendur einbeita sér að harðari efnum. Skipuleggjendur kannabisræktar nota millimenn í skítverk og telja sig ósnertanlega. Eftirspurnin eftir kókaíni hrundi með bankakerfinu.

Hrafn sem talar og mjálmar

Krumminn Byko er einn magnaðasti fugl landsins og jafnvel heimsins því hann talar og mjálmar eins og köttur. Hann segir meðal annars halló á ensku og íslensku.

"Geggjað að ná að sigrast á þessu“

Birkir Alfons Rúnarsson var aðeins fimmtán ára gamall þegar hann greindist með bráðahvítbæði árið 2011. Í dag er hann laus við krabbameinið.

Hald lagt á fíkniefni í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á tæp 30 grömm af kannabisefnum í heimahúsi í Vestmannaeyjum í dag.

Bjarni boðar ný og öguð vinnubrögð

Ár eftir ár hefur Ríkisendurskoðun skilað skýrslu um framkvæmd fjárlaga þar sem bent er á agaleysi í rekstri ríkisins. Fjármálaráðherra segir að ríkisstjórnin taki nýrri skýrslu stofnunarinnar mjög alvarlega. Tekin verði upp ný og öguð vinnubrögð við fjármál ríkisins.

"Yngra fólkið er ekki mjög ánægt og maður skilur það"

Mikillar óánægju gætir meðal ungra geislafræðinga um samkomulag við Landspítalann sem undirritað var í gærkvöldi. Uppsagnir 40 geislafræðinga tóku gildi á miðnætti og enn er óljóst hversu margir snúa aftur til starfa. Einhverjir hafa þegar ráðið sig annað.

Telur veiðar á hnúfubökum brot á alþjóðasamþykktum

Veiðar á hnúfubökum væru brot á alþjóðasamþykktum sem Íslendingar eru aðilar að, að mati talsmanns Alþjóðadýraverndunarsjóðsins. Fjöldi hnúfubaka við landið hafði sjöfaldast á 20 árum þegar síðasta talning fór fram árið 2007.

Bíða enn eftir frumvarpi um staðgöngumæðrun

„Okkur finnst þessi vinna ekki ganga neitt sérstaklega hratt fyrir sig,“ segir talskona stuðningsfélags staðgöngumæðrunar á Íslandi. Tæpt ár er síðan hópur var skipaður sem skila átti frumvarpi til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.

Íbúar Árnessýslu óttast um öryggi sitt

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að sífelldur niðurskurður til löggæslunnar í Árnessýslu á undanförnum árum sé farinn að bitna á þjónustunni. En nú stefni í að 21 lögreglumaður sinni víðfemu svæði með 15 þúsund íbúum sem verði allt að 25 þúsund yfir sumartímann.

Innanríkisráðherra undirbýr millidómstig

Í tilkynningu ráðherra segir að meðal markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sé að tekið verði upp millidómstig bæði í einkamálum og sakamálum og að Hæstiréttur starfi í einni deild.

"Íslendingar eiga að bjóða Snowden hæli“

Kristinn Hrafnsson talsmaður WikiLeaks segir fagnaðarefni að Rússar hafi orðið við ósk uppljóstrans Edward Snowden um tímabundið hæli í Rússlandi, eins og staðfest var í morgun.

Fíkniefni í Eyjum

Eitt fíkniefnamál hefur komið upp í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögreglan fann 25 grömm af maríjúana í fórum farþega um borð í Herjólfi.

Þakkar fyrir stuðninginn í hjartnæmu myndbandi

"Í dag 1. ágúst hef ég lokið krabbameinsmeðferð og hef unnið baráttuna gegn krabbameininu,“ segir Birkir Alfons Rúnarsson frá Keflavík í hjartnæmu myndbandi sem birtist á vef Víkurfrétta í morgun.

Geislafræðingar fá allt að 15% launahækkun

Óvíst er hversu margir geislafræðingar snúa aftur til starfa eftir að samkomulag náðist í deilu þeirra í gærkvöldi. Formaður Félags geislafræðinga er sátt við samkomulagið og segir það gefa félagsmönnum allt að 15 prósenta launahækkun.

Hélt að það væri kominn 1. apríl

Talsmaður Alþjóðadýraverndunarsjóðsins á Íslandi segir þá hugmynd að hefja hnúfubaksveiðar á nýjan leik eina vitlausustu hugmynd sem hann hafi heyrt lengi.

Rútubílstjórinn fer af landi brott í hádeginu

Svissneski rútubílstjórinn, sá sem losaði úr kamri rútu sinnar á Selfossi fyrr í vikunni, fer af landi brott nú í hádeginu með Norrænu. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn segir að þetta sé nokkuð sem við eigum ekki að láta yfir okkur ganga.

Snowden fær pólitískt hæli í Rússlandi

Umsókn uppljóstrarans Edward Snowden um pólitískt hæli í Rússlandi var samþykkt rétt í þessu. Snowden hefur yfirgefið flugvöllinn í Moskvu þar sem hann hefur dvalið síðustu vikur.

Óvíst hvað margir snúa aftur til starfa

Geislafræðingar komu saman til fundar klukkan níu í morgun til að ræða samkomulag sem náðist milli þeirra og yfirstjórnar Landsspítalans um miðnætti í nótt.

Bílstjóri í djúpum skít

Svissneski rútubílsstjórinn, sem losaði kamar rútu sinnar í vegkanti á Selfossi, var yfirheyrður og sektaður á Egilsstöðum í fyrradag um 150 þúsund krónur. Lögreglan rakti slóð hans þvert yfir landið.

Ekki keyra full

Langan tíma tekur fyrir áfengi að brotna niður í líkamanum.

Geislafræðingar semja

Uppsagnir 40 geislafræðinga tóku samt gildi á miðnætti, þar sem ekki er búið að bera samkomulagið undir geislafræðingana, sem sögðu upp.

Flugdólgurinn í haldi

Íslenskur karlmaður gistir fangageymslur lögreglunnar í Keflavík og bíður yfirheyrslu, eftir að hann var handtekinn um borð í flugvél Icelandair, vegna óspekta þar.

Jeppi fastur í Krossá

Nokkrir íslenskir ferðamenn komust í hann krappann, þegar jeppi þeirra festist út í miðri Krossá í Þórsmörk í gærkvöldi.

Æfa sig í brennustandi

Nokkrum aðkomumönnum í Eyjum brá í brún þegar þeir lögðu leið sína inn í Herjólfsdal, því svo var að sjá að búið væri að kveikja í stóra bálkestinum, en það á ekki að gera fyrr en annað kvöld.

Vilja hefja hnúfubaksveiðar

Hrefnuveiðimenn hvetja til þess að veiðar á hnúfubaki hefjist í vísindaskyni. Hnúfubakur hefur ekki verið veiddur hér síðan 1955. Sérfræðingur frá Hafró telur það skynsamlegt en til þurfi pólitíska ákvörðun.

Lögreglan hringir út menn í sumarfríum

Lögreglumenn á Selfossi og Borgarnesi komast oft ekki á vettvang vegna manneklu. Innbrotstilkynningar bíða oft afgreiðslu til næsta dags. Lögreglan í Borgarnesi ætlaði að leita í veikindasjóð en búið var að ráðstafa honum í annað.

Annríki vegna ferðamanna

Gífurlegt álag var á leitarmönnum Landsbjargar á þriðjudag og fram á miðvikudag vegna ferðafólks sem týndist. Alls voru níu björgunarsveitir kallaðar út í þrjár umfangsmiklar leitir að fimm erlendum ferðamönnum. Alls tóku 88 leitarmenn þátt í leitunum, að sögn Björns Þorvaldssonar hjá Landsbjörg.

Lögmaðurinn ekki ákærður

Íslenskur héraðsdómslögmaður, sem sætti fyrr á árinu gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann tengdist innflutningi á tæpum 300 grömmum af kókaíni til landsins, var ekki ákærður í málinu. Í dómi yfir einum smyglaranna segir að margt styðji þann framburð lögmannsins að hann hafi aldrei hitt smyglarann.

Sjá næstu 50 fréttir