Fleiri fréttir

Engin sækir um þegar stöður eru auglýstar

Á Vesturlandi vantar sjö heimilislækna en skortur er á læknum þar líkt og á heilsugæslum og víða um land. Stjórnarmaður í Félagi íslenskra heimilislækna segir enga sækja um þegar stöður eru auglýstar lausar.

Þess vegna heitir það Ísland

Það er nokkuð ljóst að nægur er snjórinn á Íslandi nú þegar að desember fer að verða hálfnaður. Af þessari mynd að dæma má sjá að landið er snævi þakið. Myndin var tekin í fyrradag um hádegi.

Leki hjá ríkisskattstjóra

Slökkiliðið var kallað út vegna þriggja leka á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn slökkviliðsins var mikill leki í íþróttahúsinu í Dalsmára og í húsnæði embættis ríkisskattstjóra að Laugavegi 166. Töluverðar skemmdir urðu á þeim stöðum. Leki kom einnig upp á hjúkrunarheimilinu Eir, en hann var þó talsvert minni en á hinum stöðunum.

Tölvum stolið úr skóla í Kópavogi

Brotist var inn í skóla í Kópavoginum laust fyrir klukkan tvö í nótt og þaðan stolið tölvubúnaði. Þjófarnir komust undan en málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Gistu í fangaklefa vegna leiðinda

Tveir gistu í fangaklefa á Akureyri í nótt en að sögn varðstjóra voru þeir handteknir vegna ölvunar og almennra leiðinda, eins og hann orðar það sjálfur. Einn var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna fyrir norðan í nótt en nokkuð mikill erill var hjá lögreglunni. Þá var einn tekinn grunaður um ölvunarakstur nú rétt fyrir klukkan sex í umdæmi lögreglunnar á Selfossi.

Ölvaður klessti bílinn

Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og segir varðstjóri að um 80 verkefni séu skráð niður frá miðnætti og til átta í morgun.

Óveður á Austfjörðum

Mikið óveður er á Austfjörðum og með norðurströnd landsins. Í aðvörun frá Vegagerðinni kemur fram að ófært er á Víkurskarði og á Hófaskarðsleið.

Opið í Bláfjöllum í dag

Skíðaunnendur á höfuðborgarsvæðinu geta glaðst því í opið er í Bláfjöllum í dag, í fyrsta sinn í vetur. Í tilkynningu frá staðarhöldurum segir að þar séu frábærar aðstæður í troðnum brautum og gott færi. Þá er einnig opið í Hlíðarfjalli á Akureyri.

Harður árekstur á Kjalarnesi

Tveir bílar skullu saman við brúnna yfir Blikadalsá á Kjalarnesi um níu leytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var einn fluttur á slysadeild. Tveir aðrir voru með minniháttar meiðsli, en þó ekki eins alvarleg. Töluverð seinkunn var á umferð um veginn og var bílum hleypt í áföngum framhjá slysstað. Afar slæmt veður hefur verið á Kjalarnesi í kvöld og hafnaði rúta, sem fer á milli Akraness og Reykjavíkur, utan vegar.

Jón Gnarr fann tré drauma sinna

Borgarstjórinn fann draumajólatréð í Grýludal í Heiðmörk í dag. Þá var boðið upp á jólakræsingar beint frá býli á jólamatarmarkaði í höfuðborginni.

Eyjamaður fær 27 milljónir

Fyrsti vinningurinn í lottóinu í kvöld fór til Vestmannaeyja og til spilara með miða í áskrift. Og fær hvor spilari um 27 milljónir í sinn hlut. Þrír voru með 2. vinning og fá þeir rúmlega 200 þúsund krónur. Tölur kvöldsins: 2 - 17 - 18 - 20 - 24 Bónustala: 10 Jókertölur: 3 - 0 - 7 - 3 - 2

Vantar 22 heimilislækna í Reykjavík - 4 vikna bið eftir tíma

Tuttugu og tvo heimilislækna vantar á heilsugæslustöðvar í Reykjavík. Stjórnamaður í Félagi íslenskra heimilislækna segir stefna í óefni en í dag getur fólk þurft að bíða í allt að fjórar vikur eftir tíma hjá sínum heimilislækni.

Ökumenn sitja fastir í bílum sínum í Vestmannaeyjum

Mikið óveður hefur verið í Vestmannaeyjum nú eftir hádegið og að sögn varðstjóra hjá lögreglunni er íbúum ráðlagt að vera ekki á ferli að ástæðulausu. Mikil snjókoma og skafrenningur er í bænum eru lögreglumenn og björgunarsveitamenn að aðstoða ökumenn sem sitja margir hverjir fastir í bílum sínum. Þá hafa björgunarsveitarmenn einnig aðstoðað fólk að komast til síns heima. Svo slæmt var veðrið um tíma eftir hádegi í dag að ekki sást á milli húsa og þurftu starfsmenn bæjarins að hætta að ryðja götur bæjarins vegna veðurs en að sögn varðstjóra sáu þeir varla einn meter fram fyrir sig.

Rúta út af veginum

Rúta sem gengur á milli Reykjavíkur og Akraness fór út af veginum við Blikdalsá í dag. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru um tíu farþegar í rútunni en þá sakaði ekki. Björgunarsveitarmenn eru á leið á staðinn til að sækja fólkið sem er um borð í rútunni. Mikið óveður er á svæðinu og færðin afar erfið.

Ölvaður ökumaður velti bíl á Grindavíkurvegi

Björgunarsveitarmenn hafa líka verið að störfum á Suðurnesjum í allan dag. Lögreglan segir að fjölmargir ökumenn hafi fest bíla sína í umdæminu. Tveir árekstrar urðu á Reykjanesbraut í morgun og þá valt bíll á Grindavíkurvegi nú eftir hádegi. Engin slys urðu á fólki, en sá sem velti bílnum nú eftir hádegið er grunaður um ölvun við akstur.

Ríkisstjórnin styður Stelpurnar okkar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent kvennalandsliði Íslands í handbolta hamingju- og baráttukveðjur fyrir þann glæsilega árangur að hafa tryggt sér þáttöku í 16 liða úrslitum á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, sem nú fer fram í Brasilíu. Jóhanna segir í kveðjunni að stelpurnar geti verið afar ánægðar með framgöngu sína á mótinu og sigrar liðsins fylli þá sem fylgjast með mótinu hér heima miklu stolti.

Tunglmyrkvinn sést vel norðanlands

Tunglmyrkvinn í dag ætti að geta sést á öllu norðanverðu landinu, allt frá norðanverðum Vestfjörðum til Austurlands, miðað við skýjahuluspá Veðurstofunnar. Spáð er að heiður himinn verði allt frá Ísafjarðardjúpi, um Norðurland og austur til Fljótsdalshéraðs, meðan tunglmyrkvinn stendur yfir.

Tækifæri fyrir ný framboð í þessu ástandi

Tækifæri fyrir nýja flokka og framboð liggja í því hversu fáir eru tilbúnir að styðja þá sem fyrir sitja á Alþingi samkvæmt nýrri könnun. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir ástandið til marks um óvissu og óánægju með flokkana.

Lokað í Bláfjöllum

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs. Í morgun var vindurinn 25 metrar á sekúndu. Á vefsíðu Bláfjalla segir að farið sé að skafa vel að austan sem skilji eftir mikinn snjó í brekkum og girðingum. Ekki verður lögð göngubraut í dag.

Ógnuðu manni með leikfangabyssu

Tveir karlmenn eru nú í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Vogahverfinu í Reykjvík á níunda tímanum í gærkvöldi.

Heppnir Norðlendingar

Skíðaáhugamenn á Norðurlandi geta fagnað því opið verður í Hlíðarfjalli á Akureyri og á skíðasvæði Tindastóls á Sauðárkróki í dag. Í Hlíðarfjalli opnaði klukkan tíu og verður opið til klukkan fjögur. Stólalyfta, Skálbraut, Auður og Töfrateppið verða opnar og þá var 3,5 kílómetra göngubraut troðin klukkan níu í morgun. Á Sauðárkróki verður opnað klukkan tólf og verður opið klukkan 16.

Nokkuð um slagsmál í miðbænum

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Margir lögðu leið sína í miðbæinn og var nokkuð um slagsmál á milli manna, enginn meiddist þó alvarlega. Þá þurfti lögregla að fara í nokkur útköll vegna skemmtana í heimahúsum og hávaða vegna þeirra. Sex gista fangageymslur lögreglu eftir nóttina.

Rannsaka aðbúnað fatlaðra

Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að rannsaka aðbúnað fatlaðra barna sem vistuð hafa verið á vegum hins opinbera. Kannað verður hvort börnin hafi búið við ofbeldi eða sætt illri meðferð meðan á vistun á stofnunum stóð.

Tollar og vörugjöld verði endurskoðuð

Alþingi Sex þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að íslensk vörugjalda- og tollalöggjöf verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Mælst er til þess að skipuð verði fimm manna nefnd með fulltrúum Hagfræðistofnunar, hagsmunaaðila og fjármálaráðherra, með það að markmiði að afnema viðskiptahindranir.

Ólíkar áherslur um breytta ríkisstjórn

Óhætt er að segja að titringur hafi komið upp á stjórnarheimilinu þegar tillögur starfshóps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu birtust á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Ríkisstjórnin hafði skipað ráðherranefnd til að fara með málið, sem var áður á forræði fagráðherrans Jóns Bjarnasonar.

Yfir 20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu

Yfir 20 árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Í þremur árekstranna kvörtuðu ökumenn undan smávægilegum meiðslum, samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is Sex bifreiðanna voru fluttar af vettvangi með kranabíl þar sem þær voru óökuhæfar eftir óhöppin.

Bein útsending frá Degi rauða nefsins

Bein útsending frá landsöfnun fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) milli klukkan 19.30 og miðnættis. Slagorð útsendingarinnar er "Skemmtun sem skiptir máli“ og markmiðið er að safna heimsforeldrum, mánaðarlegum styrktaraðilum UNICEF. Að vanda mun fjöldi valinkunnra skemmtikrafta leggja söfnuninni lið með einum eða öðrum hætti.

Þingmennirnir stigu dansinn

Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi stigu villtan dans í útsendingu á Stöð 2 undir slagorðinu „Skemmtun sem skiptir máli" og er haldin til söfnunar fyrir Unicef. Það var mál manna að dansinn væri vel samhæfður og þingmenninnirnir hafi unnið vel saman þótt þeir hafi karpað töluvert á þinginu undanfarið. Þeir þingmenn sem tóku þátt voru Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ólína Þorvarðardóttir frá Samfylkingunni, Þuríður Backman úr VG, Höskuldur Þórhallsson úr Framsóknarflokknum, Margrét Tryggvadóttir úr Hreyfingunni og Pétur Blöndal úr Sjálfstæðisflokknum.

Á slysadeild eftir árekstur

Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Háaleitisbraut nú undir kvöld. Hann mun ekki hafa verið alvarlega slasaður. Þetta var fimmta umferðaróhappið sem hafði orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Þá hafa tvö hálkuslys orðið.

Pressan hótar málsókn

Vefpressan ehf, sem meðal annars á og rekur Pressuna, ætlar að fela lögmönnum að höfða mál á hendur einstaklingum sem hafa staðið fyrir herferð undanfarna daga í því skyni að fá fyrirtæki sem auglýsa á miðlum Vefpressunnar til að hætta birtingu auglýsinga sinna þar.

Gefandi reynsla að vinna með íslenskum ljósmyndurum

„Þetta er örugglega ekki síðasta verkefnið sem ég vinn með íslenskum ljósmyndurum,“ segir Celina Lunsford ljósmyndafræðingur. Celina var myndritstjóri ljósmyndabókarinnar Ný náttúra sem kom út hjá forlaginu Crymogeu í haust. „Þetta hefur verið afar gefandi reynsla og komið mér í samband við marga íslenska ljósmyndara.“

Hálkan varhugaverð

Tveir fótgangandi vegfarendur hafa slasast í höfuðborginni í dag eftir að hafa runnið á hálku. Þá hafa fimm umferðaróhöpp orðið og má í einhverjum tilfellum rekja þau til hálku. Nú þegar frost hefur verið í marga daga og snjór yfir klakanum er vert að hvetja fólk til þess að hafa varan á hvort sem ferðast er innanborgar eða utan borgarmarkanna.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og fengi um 50% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag, samkvæmt könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Frá síðustu Alþingiskosningum hafa aldrei færri tekið afstöðu til þess hvaða lista þeir myndu kjósa.

Dómari gagnrýnir ákæruvaldið harðlega í Baugsmálinu

Óeðlilegur og óafsakanlegur dráttur sem varð á málsmeðferð í skattahluta Baugsmálsins hafði áhrif á þann dóm sem féll í dag yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni. Málið má rekja allt aftur til ársins 2002, eða níu ár aftur í tímann. Ríkissjóður þarf að greiða helminginn af málsvarnarlaunum verjenda hinna dæmdu.

Amnesty International: Bréf til bjargar

Ár hvert stendur Amnesty International fyrir bréfamaraþoni á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember. Í tilkynningu frá samtökunum er minnt á að við eigum öll öflugt vopn í baráttunni fyrir mannréttindum, nafnið okkar. „Því getum við beitt til að hafa jákvæð áhrif á líf þeirra sem brotið er á,“ segir einnig.

Leigubílstjórinn fundinn

Leigubílstjórinn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í tengslum við nauðgunarmál er varðar Egil Gillz Einarsson og unnustu, er kominn í leitirnar. Lögreglan þakkar veitta aðstoð.

Lögreglan leitar að Sigurði Brynjari

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sigurði Brynjari Jenssyni. Sigurður Brynjar, sem er fæddur árið 1996, er búsettur í Grindavík en hefur dvalið að undanförnu á Háholti í Skagafirði.

Vinna að aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Drög að aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum er nú til kynningar innan borgarinnar. Verið er að gefa starfsfólki tækifæri til að koma með ábendingar og tillögur að úrbótum til að fyrirbyggja ofbeldi.

Friðrik Þór heiðraður í Eistlandi

Leikstjórinn Friðrik Þór Fiðriksson tók við verðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar í lok nóvember á fimmtándu Tallin Black Night Film Festival. Það var menntamálaráðherra Eistlands sem afhenti honum verðlaunin.

Sjá næstu 50 fréttir