Amnesty International: Bréf til bjargar 9. desember 2011 15:18
Ár hvert stendur Amnesty International fyrir bréfamaraþoni á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember. Í tilkynningu frá samtökunum er minnt á að við eigum öll öflugt vopn í baráttunni fyrir mannréttindum, nafnið okkar. „Því getum við beitt til að hafa jákvæð áhrif á líf þeirra sem brotið er á,“ segir einnig. Þá segir að Íslandsdeild Amnesty International hvetji fólk til að taka þátt og skrifa kveðjur til þolenda mannréttindabrota og þrýsta á stjórnvöld að virða mannréttindi. „Ljóst er að bréfin hafa vigt og hver undirskrift er lóð á vogarskálar mannréttindabaráttunnar. Opið hús verður laugardaginn 10. desember frá kl.13-18 á skrifstofu Íslandsdeildarinnar Amnesty International að Þingholtsstræti 27, Reykjavík. Gestum gefst kostur á að skrifa undir áköll til yfirvalda og senda kveðjur til fórnarlamba mannréttindabrota. Tónlistafólkið Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur koma fram. Á síðasta ári voru í kjölfar bréfamaraþonsins send rúmlega 3.000 bréf frá Íslandi. Slíkur fjöldi bréfa og korta skapar verulegan þrýsting á stjórnvöld. Í fyrra þrýsti íslenskur almenningur á stjórnvöld víða um heim vegna mála sex einstaklinga. Fimm þeirra fengu að hluta eða öllu leyti lausn sinna mála í kjölfar bréfaskrifanna.“Nánar um bréfamaraþon Amnesty International: Bréfamaraþonið fer fram um land allt í kringum 10. desember. Íslandsdeild Amnesty International biður fólk að gefa eina til tvær klukkustundir af tíma sínum í þágu þolenda mannréttindabrota á þeim stað sem næstur þeim er. Dagskrá bréfamaraþons Amnesty International 2011 Reykjavík, Skrifstofa Íslandsdeildar Amnesty International Þingholtsstræti 27, þriðju hæð laugardaginn 10.desember frá 13 til 18. Reykjavík Miðbær, á Borgarbókasafni Reykjavíkur 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Reykjavík Grafarvogur, á Foldasafni 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Reykjavík Gerðuberg, á Gerðubergssafni 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Ísafjörður, í Edinborgarhúsinu 10. desember frá 14 til 17. Egilsstaðir, í Húsi Handanna (Nían) 10. desember frá 10 til 17 og á Jólakettinum í Barra 17. desember frá 11 til 17. Akureyri, á Amtsbókabókasafninu 10. desember frá 11 til 16. Vestmannaeyjar, á bókasafni Vestmannaeyja frá 2.til 10. desember á opnunartíma safnsins. Akranes, á Bókasafni Akraness frá 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Reykjanesbær, á bókasafninu í Reykjanesbæ 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Grindavík, á Bókasafninu í Grindavík frá 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Selfoss, á Bókasafninu á Selfossi 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins. Hafnarfjörður, á Bókasafninu í Hafnarfirði 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira