Innlent

Bein útsending frá Degi rauða nefsins

Bein útsending frá landsöfnun fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) milli klukkan 19.30 og miðnættis.

Slagorð útsendingarinnar er „Skemmtun sem skiptir máli" og markmiðið er að safna heimsforeldrum, mánaðarlegum styrktaraðilum UNICEF. Að vanda mun fjöldi valinkunnra skemmtikrafta leggja söfnuninni lið með einum eða öðrum hætti.

Kynnar kvöldsins eru hin óborganlegu Þorsteinn Guðmundsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Þau Björn Bragi Arnarson og Þórunn Antonía Magnúsdóttir úr Týndu kynslóðinni og útvarpsmaðurinn góðkunni Freyr Eyjólfsson standa vaktina í símaveri Vodafone og flytja áhorfendum nýjustu fregnir af söfnuninni. Dagskráin, sem telur fjóra klukkutíma, verður stútfull af sprenghlægilegu skemmtiefni sem samið var sérstaklega að þessu tilefni.

Meðal þeirra sem fram koma eru Spaugstofan, Mið-Ísland, Steindi Jr., Ari Eldjárn, Pétur Jóhann, Sigurjón Kjartansson, Ómar Ragnarsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, María Heba Þorkelsdóttir, Inga María Valdimarsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Kjartan Guðjónsson, Gói, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Gunnar Hansson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ugla Egilsdóttir, Björgvin Halldórsson og Guðni Ágústsson, Pörupiltar, Brother Grass og fleiri og fleiri og fleiri...

Auk þess má nefna að Páll Óskar Hjálmtýsson og Halldóra Geirharðsdóttir koma talsvert við sögu í útsendingunni þar sem sagt verður frá ferðalögum þeirra á vegum UNICEF til Síerra Leóne og Haítí.

Auk þess kemur Páll Óskar til með að syngja lag sem samið verður sérstaklega að þessu tilefni. Lagið er úr smiðju Red Lights, sem meðal annars hafa samið fyrir Steinda Jr, til að mynda lagið Gull af mönnum. Stórskemmtileg og eftirminnileg stund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×