Fleiri fréttir

Tannhvíttunarfræðingur sýnir tannlæknum tennurnar

"Þetta er búið að hafa skaðleg áhrif á reksturinn,“ segir tannhvíttunarfræðingurinn Rúna Óladóttir, en Tannlæknafélag Íslands sendi frá sér yfirlýsingu þar sem starfsemin var harðlega gagnrýnd.

Engin smálúða

Skipverjarnir á Kleifabergi ÓF 2 kræktu í sannkallaða risalúðu í gær. Ferlíkið er 258 sentimetrar að lengd og halda menn að þar fari ein af stærstu lúðum sem veiðst hafa við landið síðustu ár. "Til samanburðar má geta þess að lúðan sem þjóðverji nokkur veiddi á stöng fyrir vestan í fyrra og mun vera stærsta lúða í heimi sem veiðst hefur á stöng var 248 cm," segir Trausti Gylfason háseti á Kleifaberginu en hann giskar á að lúðan sem veiddist í gær sé allt að 250 kg. Eins og sjá má á myndunum er enda ekki um neitt síli að ræða.

Flugvallarmenn vilja tré burt úr Öskjuhlíð

„Það er einkennilegt að borgin ákveði að stráfella þarna fjölda trjáa út af flugvelli sem hvort sem er á að fara," segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem er andvígur því að orðið verði við ósk flugmálayfirvalda um grisjun trjáa í Öskjuhlíð vegna umferðar um Reykjavíkurflugvöll.

Mikið fannfergi í Grindavík

Vetrarríki er nú í Grindavík eftir mikið fannfergi þar í fyrrinótt. Starfsmenn bæjarins unnu hörðum höndum í allan gærdag við aða ryðja helstu umferaðræðar um bæinn og í nótt fór frostið í Grindavík niður í 13 gráður.

Óveður á flestum miðum, togarar liggja í vari

Óveður er á flestum miðum við landið og eru sára fá skip á sjó. Þó nokkur loðnuskip hafa leitað inn til Ísafjarðar og nokkrir togarar liggja í vari undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp. Ekki er vitað til að neitt óhapp hafi hent skipin. Óvenju lítil sjósókn hefur verið að undanförnu vegna þráláts óveðurs á miðunum.

Um 64% vilja að Jón hætti

Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vilja að Jón Bjarnason láti af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Alls segjast 35,7 prósent þeirra sem afstöðu taka vilja að Jón sitji áfram sem ráðherra. Um 64,3 prósent vilja að hann hætti.

Fjárfestar koma ekki af sjálfu sér

Allar þjóðir heimsins keppast við að laða til sín erlendar fjárfestingar og er mikil samkeppni þar á milli. Síðustu árin hefur slíkt valdið deilum hér á landi og oft hefur verið erfitt að negla niður hver stefna stjórnvalda er í málaflokknum. Carlos Bronzatto er framkvæmdastjóri World Association of Investment Promotion Agencies (WAIPA), sem útleggja mætti sem alþjóðasamtök fjárfestingarstofa. Hann segir áreiðanleika í regluverki lykilinn að því að laða fjárfesta að.

Tónlistarnám í anda Bjarkar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að boðið verði upp á tónvísindasmiðjur í anda Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu í öllum grunnskólum borgarinnar í vetur. Um samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur er að ræða. Ber það nafnið Biophilia í skólum og nær til 5.-7. bekkjar. Markmið þessa verkefnis er að samþætta á nýstárlegan hátt tónlist, vísindi, tölvutækni, móðurmál og jafnvel fleiri námsgreinar.- shá

Borgarstjóri opnaði jólamarkað

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði nýjan jólamarkað á Ingólfstorgi í gærdag. Markaðurinn verður opinn á torginu til jóla, en hann er hluti af átaki borgarinnar sem nefnist Jólaborgin Reykjavík.

Von um markvissari lausn á ADHD

Erfðabreytileiki í boðleiðum í heila virðist tengjast athyglisbresti og ofvirkni (ADHD), að því er fram kemur í nýrri rannsókn vísindamanna á Barnaháskólasjúkrahúsinu í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Uppgötvunin gefur von um að hægt verði að þróa markvissari meðferð við sjúkdómnum.

Hæsta jólatréð á Reyðarfirði

Ljós voru tendruð á hæsta jólatré landsins þessi jólin á miðvikudag. Tréð er rúmlega 13 metra hátt sitkagreni úr Hallormsstaðarskógi sem stendur uppreist við álver Fjarðaáls á Reyðarfirði.

Landslið grínista kemur fram á degi rauða nefsins í kvöld

Það verður sannkölluð veisla á Stöð 2 á degi rauða nefsins í kvöld. Frá klukkan 19.30 til miðnættis verður sýnt beint frá skemmtun sem haldin er vegna söfnunarátaks UNICEF á Íslandi handa bágstöddum börnum í um heim allan. Sannkallað landslið íslenskra grínista kemur saman og skemmtir þjóðinni með óborganlegu gríni og hvetur hana um leið til að gerast heimsforeldrar.

Stórkostlegt að hafa svona góð áhrif á nemendur

Kynjafræði er kennd sem valfag við fjóra framhaldsskóla á landinu. Frumkvöðull á sviði kynjafræðikennslu í framhaldsskólum segir að auka þurfi framboðið. Dæmi eru um að biðlistar séu á námskeiðin.

Barnsmóðir Gísla dæmd til að greiða 35 milljónir

Anna Margrét Kristinsdóttir, barnsmóðir Gísla Þórs Reynissonar heitins athafnamanns, hefur verið dæmd til að greiða dánarbúi hans 35 milljónir króna. Dánarbú Gísla krafði Önnu Margréti um peninginn vegna láns sem talið var að Gísli hefði veitt henni árið 2007 vegna kaupa á sumarbústað og vegna greiðslu Önnu af láni hjá Landsbanka. Í málinu lágu ekki fyrir skriflegir lánasamningar. Gísli og Anna Margrét áttu tvö börn saman en voru ekki í skráðri sambúð.

Lúpínan hörfar fyrir öðrum gróðri

Lúpínan virðist hörfa fyrir íslenskum gróðri með tímanum samkvæmt nýlegri úttekt landfræðings. Lúpínubreiður á afmörkuðu svæði í Heiðmörk hafa hörfað um meira en helming á nokkrum áratugum.

Jarðir að komast í eigu útlendinga

Jarðir á Íslandi eru með óbeinum hætti að komast i eigu erlendra kröfuhafa vegna afleiðinga af bankahruninnu. Sumar þeirra eru þegar komnar í eigu bankanna eftir að auðugt fólk keypti þær í góðærinu með lánum en gat ekki staðið skil á greiðslum af þeim. Bankarnir eiga nú mikið af þessum jörðum, en bankarnir sjálfir eru svo aftur í eigu erlendra kröfuhafa.

Sælulíf á sólarströnd í Santos

Á meðan stelpurnar okkar standa í ströngu á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem fram fer í Brasilíu gengur lífið sinn vanagang á ströndinni í Santos þar sem Ísland leikur í riðlakeppninni. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari brá sér á ströndina.

Ritstjóri Pressunnar biðst afsökunar

Vísi hefur borist yfirlýsing frá Steingrími Sævarri Ólafssyni, ritstjóra Pressunnar, vegna fréttar sem birtist á vef Pressunnar í gær. Yfirlýsingin er svohljóðandi.

Skipulagsstofnun sökuð um aðför að Vestfjörðum

"Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir harðlega aðförinni að samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum með umsögn Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi 60 frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði." Svo segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar á Patreksfirði í gærkvöldi í tilefni af áliti Skipulagsstofnunar fyrr í vikunni þess efnis að áformaðar endurbætur á 24 kílómetra kafla valdi óbætanlegum skaða.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir grunuðum smyglara

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald yfir manni á sextugsaldri sem grunaður er um aðild að innflutningi á verulegu magni af fíkniefnum. Lögregla fór fram á gæsluvarðhaldið á grundvelli almannahagsmuna og verður hann í varðhaldi til 3. janúar. Maðurinn kærði úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar sem komst að sömu niðurstöðu og héraðsdómurþ .Um 10 kíló af amfetamíni reyndust vera falin í gámi sem kom með skipi í Straumsvíkurhöfn. Við leit í gámnum fundust einnig um 200 grömm af kókaíni, rúmlega 8 þúsund e-töflur og verulegt magn af sterum, bæði í töflu- og vökvaformi. Skipið kom hingað frá Rotterdam í Hollandi.

Leynifundur í lokuðum þingsal Alþingis

Ein leynilegasta samkunda landsins fór fram fyrir luktum dyrum í Alþingishúsinu í hádeginu í gær. Fundarsal Alþingis var læst og hvorki fjölmiðlar, starfsmenn þingsins né aðrir utanaðkomandi fengu að fylgjast með hvað þar gerðist. Fyrir utan alþingismenn mátti aðeins einn maður taka þátt í fundinum, Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður.

Listasafn Reykjavíkur hættir líka að auglýsa hjá Pressunni

Listasafn Reykjavíkur hefur hætt birtingum á öllum auglýsingum á vefmiðlinum Pressan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá safninu en ástæðan er umdeild myndbirting af meintu fórnarlambi kynferðisofbeldis sem Pressan birti í gær. Vefurinn tók hinsvegar myndina og fréttina út og báðust afsökunar á mistökunum.

Skotárás í Bryggjuhverfi: Einn til viðbótar handtekinn

Mennirnir sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni í Bryggjuhverfi þann 18. nóvember síðastliðinn hafa allir verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald og einn til viðbótar hefur verið handtekinn. „Tveimur þeirra er gert að sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 22. desember og einum til 16. desember," segir í tilkynningu frá lögreglu.

Nafnlausi flokkurinn óskar eftir tillögum

Nýtt stjórnmálaafl undir forystu Heiðu Kristínar Helgadóttur og Guðmundar Steingrímssonar, hélt blaðamannafund í Norræna húsinu klukkan tvö í dag.

Dagbókarbrot Páls Óskars: Kóleru útrýmt með hjálp orkumesta stuðboltans

Dagbókarbrot frá Páli Óskari Hjálmtýssyni í Síerra Leóne birtast þessa dagana á Vísi, eitt á dag, fram að söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem sýndur verður á föstudag, á degi rauða nefsins. Dagur rauða nefsins verður í opinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.

Opinbert framlag til kvikmynda 700 milljónir árið 2015

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Ari Kristinsson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna (FK) og Ragnar Bragason, formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL) undirrituðu í húsakynnum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands í dag Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012– 2015.

Lögreglan lýsir aftur eftir leigubílstjóranum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að leigubílstjóra sem hún þarf að hafa tal af vegna sem er til rannsóknar hjá embættinu og varðar meinta nauðgun, sem Egill Einarsson og unnusta hans hafa verið kærð fyrir. Lýst var eftir manninum í gær.

Seldu plastpoka til styrktar Bleiku slaufunni

Plastprent lagði Krabbameinsfélaginu lið í október og seldi poka merktan Bleiku slaufunni til viðskiptavina sinna. Um var að ræða bleikann poka sem minnti fólk á átakið og seldust alls 20.000 pokar á tímabilinu.

Happdrætti Háskóla Íslands hættir að auglýsa á Pressunni

Happdrætti Háskóla Íslands hefur látið fjarlægja auglýsingaborða sinn á fréttavefnum Pressan.is til þess að mótmæla myndbirtingu á meintu fórnarlambi kynferðisofbeldis. Þetta fékkst staðfest á skrifstofu happdrættisins, ekki náðist þó í forstjórann, Bryndísi Hrafnkelsdóttur, vegna málsins.

Tunglið verður appelsínugult á laugardag

Tunglmyrkvi verður á Íslandi í ljósaskiptunum síðdegis á laugardag, þann 10. desember. Hann mun sjást sem almyrkvi á austanverðu landinu en sem deildarmyrkvi vestanlands, svo fremi að ekki verði skýjað. Vefsíða Almanaks Háskóla Íslands segir að almyrkvinn hefjist þegar enn er dagsbirta á Íslandi og því sést ekki almyrkvað tungl frá Reykjavík en deildarmyrkvi verður sýnilegur þaðan þegar dimmir.

Óskilorðsbundið fangelsi fyrir að stela snúru

Karlmaður var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir þjófnaðarbrot. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að stela rafmagnssnúru að fartölvu, hvítvínsflöskum og farsíma.

Hilmar einn efnilegasti leikarinn í Evrópu

Hilmar Guðjónsson er einn 10 evrópskra leikara sem var valinn í Shooting Star, sem er sérstök kynning á ungum og efnilegum kvikmyndaleikurum sem þykja líklegir til að ná langt í sínu fagi. Hópurinn var kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og teljast þeir sem valdir eru Shooting star vera á meðal efnilegustu kvikmyndaleikara Evrópu. Það er European Film Promotion sem stendur fyrir Shooting Star og er Kvikmyndamiðstöð Íslands aðili að þeim samtökum.

Hæstiréttur staðfestir úrskurð um opið réttarhald

Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að réttarhöld yfir konu, sem er ákærð fyrir að hafa orðið barni sínu að bana, verði opin. verjandi konunnar fór fram á að réttarhöldin yrðu lokuð fyrir héraðsdómi, en dómari málsins, Arngrímur Ísberg hafnaði því. Úrskurðinum var því áfrýjað til Hæstaréttar.

Þriðji níðingurinn fyrir dóm

Mál þriðja mannsins, sem er grunaður um að hafa níðst kynferðislega á fjórtán ára dreng frá Akranes, var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í morgun. Þá fór einnig fram fyrirtaka í máli annars manns sem einnig er grunaður um að hafa misnotað drenginn. Aðalmeðferð er hafin í þriðja málinu.

Frumvarp ráðherra breyttist í þingnefnd

Fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi í gær. Þingheimur hefur bætt við ríkisútgjöld og dregið úr niðurskurði frá því sem var að finna í frumvarpi fjármálaráðherra.

Fjórtán ráðherrar frá kosningum

Fyrirhugaðar breytingar á ríkisstjórn hafa verið í umræðunni síðustu daga. Allt bendir til að Jón Bjarnason hverfi af ráðherrastóli á næstunni. Fjölmargar breytingar hafa verið gerðar á ráðherraliði stjórnarflokkanna frá kosningunum 2009. Stjórnmálafræðingur segir hrókeringar í ráðherraliði merki um veikleika ríkisstjórnar.

Leita uppi óbólusett börn vegna mislinga

Haraldur Briem sóttvarnalæknir hvetur foreldra til að bólusetja börn sín við mislingum. Embættið leitar nú óbólusettra barna á grunni fullkomins upplýsingabanka. Hann segir ljóst að hlutfall bólusetninga megi ekki minnka að ráði hér á landi ef ekki eigi að skapast hætta á að mislingar blossi upp hér. Á þremur árum hefur mislingafaraldur náð til allra Evrópulanda nema Íslands, Ungverjalands og Kýpur.

Er talinn hafa skorið sig sjálfur

Karlmaður á sextugsaldri, sem lögreglumenn fundu alvarlega slasaðan á heimili hans í fjölbýlishúsi við Skúlagötu í fyrrinótt, er talinn hafa skorið sig sjálfur með glerbrotum.

Mikil framleiðsla á amfetamíni hér á landi

„Það liggur fyrir að hér á landi er framleitt mikið af marijúana og amfetamíni og mjög lítið af þessum efnum flutt inn, að minnsta kosti tilbúið til neyslu.“ Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH, spurður um hugsanlegar skýringar á því að umræddar tegundir fíkniefna hafa hrapað í verði á götunni.

Fjörutíu ára afmæli samskipta við Kína

Forsetar Íslands og Kína skiptust í dag á heillaskeytum í tilefni af því að í dag eru fjörutíu ár liðin frá því að ríkin tóku upp formleg samskipti. Hu Jintao forseti Kína segir að samskipti þjóðanna hefðu þróast jafnt og þétt í gegnum árin á grundvelli virðingar í garð hvors annars og hagsbóta fyrir bæði ríkin. Ólafur Ragnar talaði á svipuðum nótum í sínu skeyti og sagði að tvíhliða samstarfið hefði gengið vel í þessa fjóra áratugi.

Sjá næstu 50 fréttir