Fleiri fréttir

Sektaður um tvær milljónir fyrir hvíldarleysi

Vörubílstjóri var dæmdur til þess að greiða 2,1 milljón fyrir að virða ekki lögbundin hvíldartíma vörubílstjóra ítrekað. Það var Héraðsdómur Suðurlands sem dæmdi manninn til þess að greiða sektina en upphaf málsins má rekja til apríl á síðasta ári.

Mótmæli valda umferðartöfum

Um 80 - 100 vinnuvélar og stórir flutningabílar eru á leið að Alþingishúsinu þar sem mótmælt verður. Vélunum hefur verið ekið um borgina nú eftir hádegi og hafa þeir orsakað nokkrar umferðartafir. Við segjum nánar frá þessum mótmælum í dag.

Dæmdur fyrir tugmilljóna króna skattsvik

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 39 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda að upphæð 19 milljónir króna.

Hæstiréttur þyngir dóm yfir fjármálastjóra Garðabæjar

Dómur yfir fyrrum fjármálastjóri Garðabæjar, Alfreð Atlasyni, var þyngdur í Hæstarétti Íslands í morgun. Áður hafði héraðsdómur dæmt Alfreð í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur þyngdi dóminn í átta mánuði, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir.

Alþingi samþykkti skattahækkanir í morgun

Alþingi samþykkti í morgun bandorm ríkisstjórnarinnar um hækkun ýmissa óbeinna skatta sem og virðisaukaskatts, sem skila á ríkissjóði um 14 milljörðum í auknar tekjur á næsta ári. Gjöld á áfengi, tóbak og bensín verða hækkuð.

Landlæknir kannar álag á starfsmenn Landspítala

Landlæknisembættið hyggst á næstunni kanna ítarlega hvort álag á starfsmenn Landspítala hafi aukist frá því sem áður var og skila heilbrigðisráðherra greinargerð um málið. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Fjarskiptamastur hrundi í óveðri

Fjarskiptamastur sem stendur á Hestgerðishnútu sem er á Borgarhafnarfjalli í Suðursveit féll í óveðri um helgina með þeim afleiðingum að húsið sem hýsir tækjabúnaðinn lagðist á hliðina.

Samfylkingin heldur forval á Seltjarnarnesi

Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals 30. janúar næstkomandi um röðun á framboðslista í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í tilkynningu frá skrifstofu Samfylkingarinnar kemur fram að framboðsfrestur í prófkjörinu rennur út þann 15. janúar. Rétt til framboðs eiga félagar í Samfylkingunni búsettir á Seltjarnarnesi sem hafa náð 18 ára aldri á prófkjörsdaginn.

Dóttir Sophiu Hansen kvödd til vitnis á Íslandi

Sophia Hansen hefur verið ákærð fyrir að hafa borið Sigurð Pétur Harðarson, fyrrum útvarpsmann, röngum sökum sem leiddi til þess að hann var grunaður um skjalafals árið 2007.

Rannsaka akstur mannlauss bíls

Lögreglan á Selfossi grúskar nú í huldumannasögum og jafnvel draugasögum í von um að finna skýringu á því hvernig það mátti vera að bíl var ekið utan í annan bíl í Ölfusi í nótt, án þess að mannleg vera sæti þar undir stýri.

Einn ölvaður og annar velti stolnum bíl

Árekstur varð í Ármúla í Reykjavík í gærkvöldi þegar ölvaður ökumaður ók á öfugum vegarhelmingi á móti umferð. Ökumaður, sem á móti kom, sveigði yfir á öfugan vegarhelming til að forðast árekstur, en þá sveigði sá ölvaði yfir á réttan vegarhelming sín megin og skall þá á honum.

Íbúar í Garðabæ yfirbuguðu innbrotsþjóf

Íbúar í húsi við Strandveg í Garðabæ urðu í gærkvöldi varir við mannaferðir í íbúð sinni og þegar til kom reyndist þar vera innbrotsþjófur á ferð með skjávarpa í fórum sínum.

Amfetamín er enn framleitt hér á landi

Lögreglan hefur upplýsingar um að amfetamín sé framleitt hér á landi. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta.

Minnisblað Ingibjargar Sólrúnar

Fréttablaðið birtir hér Forsendur Brussel-viðmiða, minnisblað fyrrverandi utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Minnisblaðið fjallar um Icesave-deiluna og var ritað utanríkismálanefnd 18. desember 2009.

Ljósahaf vonar og samstöðu

Slys Kveikt var á friðarkertum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í gærkvöldi til stuðnings Hrafnkatli Kristjánssyni, íþróttafréttamanni Sjónvarpsins og fyrrverandi leikmanns FH.

Aukning í öðru en svínakjöti

Sala á kindakjöti jókst um nítján prósent og sala á kjúklingum um fimmtán prósent í nóvember síðastliðnum saman­borið við sama mánuð í fyrra. Nautakjötssala jókst um rúmlega tólf prósent, en sala á svínakjöti dróst saman um átján prósent. Þetta kemur fram í samantekt Landsambands kúabænda.Framleiðsla á kindakjöti dróst á sama tíma saman um tólf prósent og framleiðsla svínakjöts um sautján prósent. Framleiðsla á kjúklingum jókst um 25 prósent, og framleiðsla á nautakjöti jókst um fjórtán prósent. - bj

Akranes stendur af sér hrunið

Fjárhagsáætlun Akranes­kaupstaðar fyrir næsta ár er jákvæð og var í vikunni samþykkt af bæjarstjórn. Áætlað eiginfjárhlutfall er 45 prósent. Ráðist verður í verklegar framkvæmdir fyrir 120 milljónir. Áætlaðar langtímaskuldir eru um 2,5 milljarðar króna, en áætlað eigið fé 4,2 milljarðar.

Nota blýlínu úr seinna stríðinu

Allt símsamband í Kjósarhreppi fer um gamlan blýstreng sem lagður var á stríðsárunum. Þetta kemur fram á heimasíðu hreppsins.

Skrifborð á nýjum stað fyrir áramót

„Við verðum næstu daga að flytja kassana og strax 28. desember verður fólk að koma sér fyrir,“ segir Kristín Hulda Sverrisdóttir, flutningastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.

Tryggingagjald látið kosta atvinnuleysið

Tryggingagjöld, sem eiga að skila ríkissjóði um sextíu milljörðum í tekjur á næsta ári, gefa af sér rúma fjörutíu milljarða í ríkissjóð á þessu ári.

Rafknúin og græn framtíð á Vopnafirði

Fjárfestingar HB Granda hf. í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði haf numið tæplega fjórum milljörðum króna frá þeim tíma sem liðinn er frá sameiningu fyrirtækisins við Tanga hf. fyrir fimm árum. Senn sér fyrir endann á uppbyggingunni. Á næsta ári verður lokið við byggingu nýrrar fiskmjölsverksmiðju auk þess sem ráðist verður í endurbætur á uppsjávarfrystihúsi.

Óttast ekki atgervisflótta

Hætta er á að ungt fólk í lækna- og hjúkrunarnámi erlendis snúi síður heim að námi loknu vegna kreppunnar. Þetta segir Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra. Hún óttast þó ekki atgervisflótta.

Sýna Hrafnkatli stuðning

FH-ingar koma saman í Kaplakrika klukkan átta í kvöld til að sýna Hrafnkatli Kristjánssyni, íþróttafréttamanni á RÚV stuðning. Hann lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi á föstudag. Tveir létust í slysinu. Hrafnkatli er haldið sofandi í öndunarvél.

Ökuníðingurinn ók á sex bíla

Maðurinn sem var handtekinn fyrr í dag eftir að lögregla veitti honum eftirför ók á fjórar bifreiðar áður en hann velti bifreiðinni sem hann ók. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Hann var í annarlegu ástandi. Tveir lögreglumenn leituðu til slysadeildar eftir eftirförina.

Margir vildu áritun Vigdísar

Röð myndaðist í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi þegar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Páll Valsson árituðu í dag ævisögu Vigdísar, Kona verður forseti, eftir þann síðarnefnda. Þau árituðu bókina í eina og hálfa klukkustund. Margir nýttu einnig tækifærið og spjölluðu við Vigdísi um það sem þeim lá á hjarta.

Rændi sjoppu með sprautunál

Rán var framið í söluturni við Bústaðaveg eftir hádegi í dag. Unga kona ógnaði starfsstúlku með sprautunál og komst undan með eitthvað að peningum, að sögn varðstjóra. Ekki er vitað hversu há upphæðin er. Að svo stöddu fengust ekki nánari upplýsingar um málið hjá lögreglu.

Mikil hætta stafaði af ökumanni á stolnum bíl

Ökumaður á stolnum bíl var handtekinn í grennd við verslunarmiðstöðuna Smáralind nú fyrir skömmu. Lögregla veitti manninum eftirför sem ók á móti umferð. Mikil hætta stafaði af manninum, að sögn lögreglu.

Víðtækustu skattabreytingar í 20 ár

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að trúlega hafi skattar á heimili og fyrirtæki aldrei verið hækkaðir jafn mikið í einni lotu líkt og kveðið er á um í skattafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Breytingarnar séu þær mestu í 20 ár.

Hannes kemur Ögmundi til varnar

Prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að Kastljóssmenn hafi sýnt ódrengskap þegar þeir skýrðu síðastliðið föstudagskvöld frá því af hverju Ögmundur Jónasson baðst undan viðtali daginn áður. Áður hafa Björn Bjarnason og Tryggvi Þór Herbertsson, flokksbræður Hannesar, tekið upp hanskann fyrir Ögmund og gagnrýnt fréttaflutning Kastljóss.

Bíll með hestakerru valt

Bíll með hestakerru valt á þjóðveginum milli Bláfjallaafleggjara og Litlu kaffistofunnar skömmu fyrir klukkan tólf í dag. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist slysið ekki hafa verið alvarlegt. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar.

Ekki mikið tjón í Eyjum

Stormur er nú á Austfjörðum og við suðausturströndina og hafa bæði Veðurstofan og Vegagerðin sent út viðvörun. Þök hafa fokið af húsum, bæði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. Þá hefur verð bálhvasst í Vestmannaeyjum í morgun, skip losnað frá bryggju, og hraðbátur, fiskikör og annað fokið.

Björgunarmenn sóttu kindur

Björgunarsveitarmenn í Húnavatnssýslu sóttu fyrir helgi kindur upp á hálendið norðvestur af Langjökli en neyddust til að skilja eitt lamb eftir, sem komst undan.

Líðan óbreytt

Manninum sem lenti í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í fyrradag er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Líðan mannsins er óbreytt, að sögn vakthafandi læknis. Tveir létu lífið þegar tvær bifreiðar lentu saman.

Bréf Ingibjargar upplýsandi og gagnlegt

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að minnisblað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til utanríkimálanefndar Alþingis sé bæði upplýsandi og gagnlegt. Það hrófli ekki við málflutningi ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu líkt og formaður Framsóknarflokksins hefur haldið fram.

Fiskiskip losnaði frá bryggju í Eyjum

Bálhvasst er einnig í Vestmannaeyjum og hefur lögreglan þar haft í nógu að snúast í morgun enda vindhviður mælst yfir 40 metrar á sekúndu. Stórt fiskiskip, Kap VE, losnaði frá bryggju að aftan þegar landfestar slitnuðu, hraðbátur fauk af kerru og stóð þversum á götu, vinnupallar hafa fokið, fiskikör eru á ferðinni og þá brotnaði rúða þegar svalahurð fauk upp í íbúðarhúsi.

Þök hafa fokið af húsum á Austfjörðum

Stormur er nú á Austfjörðum og við suðausturströndina og hafa bæði Veðurstofan og Vegagerðin sent út viðvörun. Þök hafa fokið af húsum, bæði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði.

Sjá næstu 50 fréttir