Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar og Hollendingar hafa ekki svarað fundarboði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur enn ekki fengið formleg svör frá Bretum og Hollendingum vegna fyrirvara sem Alþingi gerði við ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans. 8.9.2009 13:16
Lítill og ræfilslegur þetta haustið Fossinn Hverfandi verður lítill og ræfilslegur í ár, að mati stöðvarstjóra Kárahnjúkavirkjunar, sem spáir því að rennsli hans verði aðeins um einn tuttugasti af því sem var á sama tíma í fyrra. 8.9.2009 13:00
Svartur kafli í sögu þjóðarinnar Forsætisráðherra segir fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar sýna svartan kafla í sögu þjóðarinnar. Skýrsla starfshóps um heimili í Kumbaravogi, Skólaheimilinu Bjargi og í Heyrnleysingarskólanum var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ræddi við blaðamenn um skýrsluna eftir fundinn. 8.9.2009 12:25
Unnusta árásarmanns veittist að lögreglu Átök urðu á milli tveggja manna á Strembugötu í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudagsins. Mennirnir voru á leið heim eftir að hafa verið að skemmta sér í Höllinni þegar annar þeirra sparkaði í höfuð hins. 8.9.2009 12:13
Stækkunarstjóri ESB fundar með ráðamönnum Stækkunarstjóri Evrópusambandsins kemur til landsins í dag og fundar með íslenskum ráðamönnum. Hann mun þá afhenda forsætisráðherra ítarlega spurningalista frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB. 8.9.2009 12:12
Þúsundasti bæjarstjórnarfundurinn Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Kópavogs verður haldinn í dag. Bæjarstjórinn segir að lítið verði um hátíðarhöld. Þess í stað muni bæjarstjórnin í tilefni tímamótanna láta pening af hendi rakna til góðgerðamála. 8.9.2009 12:02
AGS: Samkomulag um forsendur í höfn Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að íslensk stjórnvöld og starfsmenn sjóðsins hafi náð samkomulagi um þær forsendur sem endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands skuli byggja á. Fjármálaráðherra bindur vonir við að fyrsta endurskoðun sjóðsins fari fram í síðari hluta septembermánaðar. 8.9.2009 12:00
Hyggjast finna 500 manns atvinnu Gunnar Karl Níelsson og Daníel Björnsson myndlistarmaður stefna á að stofnuð verði að minnsta kosti 50 fyrirtæki sem veiti að minnsta kosti 500 manns atvinnu á tveimur árum. Þessu markmiði hyggjast þeir ná í gegnum svokallað Hugmyndahús Háskólanna sem sett hefur verið á legg. 8.9.2009 11:38
Sala orkufyrirtækja til einkaaðila glapræði Vinstri græn í Reykjavík fordæma fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila sé glapræði. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi VG í Reykjavík í gær. 8.9.2009 10:30
Stórtækur innbrotsþjófur úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri var í morgun úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. september. Maðurinn var handtekinn í gær eftir að mikið magn af þýfi fannst í íbúð hans í Kópavogi. 8.9.2009 10:19
Fjölgar ört í hópi þeirra sem vilja minnisvarða um Helga Síðustu daga hafa margir minnst Helga Hóseassonar sem oft hefur verið nefndur mótmælandi Íslands, en hann lést síðastliðinn sunnudag. Á tæpum sólarhring hefur fjölgað um 10 þúsund manns í hópi á samskiptasíðunni Facebook sem vilja reisa Helga minnisvarða á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð gjarnan með skilti sín. 8.9.2009 10:09
Smásöluverð kannabisefna hækkar Smásöluverð á kannabisefnum hér á landi hefur hækkað verulega að undanförnu, samkvæmt verðkönnun SÁÁ og er grammið nú á bilinu fjögur til fimm þúsund krónur. 8.9.2009 07:29
Ók á 160 til að komast á klósett Erlend kona, sem er ferðamaður hér á landi, og var staðin að ofsaakstri á milli Hellu og Hvolsvallar undir kvöld í gær, reyndist líka vera undir áhrifum áfengis. 8.9.2009 07:27
Lánþegar Frjálsa gera með sér samtök Á fjölmennum fundi lánþega Frjálsa fjárfestingarbankans í gærkvöldi var ákveðið að mynda framkvæmdastjórn, sem tæki að sér að halda utan um samningagerð lánþega við skilanefnd bankans, en mikil óánægja ríkir með breytingar á kjörum eldri lána hjá bankanum. 8.9.2009 07:20
Hverjum klukkan glymur Tveir útlendingar, sem búsettir eru hér á landi, klifruðu í nótt upp vinnupallana á Hallgrímskirkju í Reykjavík og fóru inn í klukknaportið. Þar fóru þeir að hringja kirkjuklukkunum með því að slá í þær með verkfærum, sem þar eru á vegum verktakans, sem vinnur að viðgerð á turninum. 8.9.2009 07:15
Náttúruminjasafnið í kössum næstu árin Fjárveitingar til Náttúruminjasafns Íslands, sem er eitt höfuðsafna þjóðarinnar, verða skornar niður um allt að fjórðung. Þá er rætt um breytt hlutverk Þjóðmenningarhússins og jafnvel lokun þess, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins hafnar því. 8.9.2009 06:00
Verðmætt þýfi fannst við húsleit í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann gríðarlega mikið magn þýfis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af erlendu bergi brotinn, var handtekinn og verður að líkindum farið fram á gæsluvarðhald yfir honum í framhaldinu. 8.9.2009 06:00
Segir Ísland ekki stefna í greiðsluþrot Ísland stefnir ekki í greiðsluþrot þrátt fyrir að skuldir þjóðarbúsins séu nú orðnar 233 prósent af landsframleiðslu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2009 05:00
Telur að ráðið hafi farið að lögum Formaður þjóðleikhúsráðs segir að vel geti verið að betra hefði verið að fá einhvern annan en ráðið, til að veita umsagnir um hæfni þeirra sem sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra. 8.9.2009 04:00
Tugir sektaðir á landsleiknum Lögreglan sektaði fimmtíu til sextíu bíleigendur sem höfðu lagt bílum sínum ólöglega meðan þeir horfðu á landsleik milli Íslands og Noregs á Laugardalsvelli síðastliðinn laugardag. 8.9.2009 03:00
Vill skýr svör ríkisins og Alcoa Sveitarstjóri Norðurþings hefur óskað eftir fundi með iðnaðarráðherra til að knýja á um að viljayfirlýsing um byggingu álvers á Bakka við Húsavík verði framlengd. 8.9.2009 02:30
Veitt strax þegar laun lækka Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Breytingin felur í sér að nú eiga um 200 fjölskyldur með um 300 börn á framfæri rétt á sérstakri fjárhagsaðstoð. Þessi fjárhagsaðstoð er viðbót við þá aðstoð sem Reykjavíkurborg hefur veitt barnafjölskyldum fyrr á árinu. 8.9.2009 02:00
Á endanum skipt í krónur Ljóst er að þeirrar tilhneigingar gætir hjá útflutningsfyrirtækjum að geyma gjaldeyri á gjaldeyrisreikningum í stað þess að skipta honum í krónur, sem hjálpar ekki við að styrkja gengi krónunnar, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2009 01:00
Erlendir hönnuðir sniðgengu Icelandic Fashion Week Klofningur varð á milli tískuhönnuða sem áttu að koma fram á Icelandic Fashion Week um helgina í Reykjanesbæ á Ljósanótt og skipuleggjanda kvöldsins. Bandaríski tískuhönnuðurinn Daria Shapiro sendi fréttatilkynningu á Vísi vegna klofnings sem varð á milli þrettán hönnuða og skipuleggjanda viðburðarins, Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur. 7.9.2009 20:02
Sátu klofvega á hval Tveim mönnum við Steingrímsfjörð tókst að ávinna sér það mikið traust hjá steypireyði á dögunum að hún leyfði þeim að sitja klofvega á bakinu á sér. Þeir telja að hvalurinn hafi beinlínis beðið þá um að losa kaðal sem fastur var um sporðinn. 7.9.2009 18:51
Hvar er Karen? Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karen Lind Sigurpálsdóttur, 14 ára. Karen Lind er grannvaxin, með meðalsítt, litað dökkt hár og blá augu. Síðast sást til ferða hennar á Selfossi föstudaginn 4 s.l. 7.9.2009 19:43
Fíkniefnasmyglarar réðu burðardýr í gegnum blaðaauglýsingu Catalina Mikue Ncogo réð burðardýr til þess að flytja næstum 400 grömm af kókaíni frá Amsterdam til Íslands í gegnum blaðaauglýsingu. Þetta fullyrti annað burðardýrið við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vísir hefur áður greint frá málinu, en burðardýrin, sem voru tvær belgískar konur, 26 og 31 árs gamlar voru báðar dæmdar í tíu mánaða fangelsi fyrir smyglið. Þær voru handteknar í Leifsstöð við komuna til landsins þann 12 apríl síðastliðinn. 7.9.2009 16:29
Fossinn Hverfandi sést á ný Fossinn Hverfandi, yfirfallsfoss Kárahnjúkavirkjunar, tók að myndast nú síðdegis þegar Hálslón fylltist og vatn byrjaði að seitla niður yfirfallsrennu lónsins. Í sínum mesta ham verður hann aflmesti foss Evrópu þegar hann fellur meira en tvöhundruð metra niður í Hafrahvammagljúfur. 7.9.2009 18:49
Innbrot og stútur undir stýri Tilkynnt var um innbrot nú í morgun í fyrirtæki úti á Granda en þar hafði nokkru af tölvubúnaði verið stolið að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 7.9.2009 17:30
Þýsku ferðamennirnir heilir á húfi Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru komnar að þýsku ferðamönnunum sem lenti í vandræðum norðan Hofsjökuls fyrr í dag. Reyndist fólkið heilt á húfi eftir að hafa fest bifreið í Tjarnarkvísl, en náði að komast úr honum og á bakka árinnar án þess að blotna mikið. 7.9.2009 16:47
Svanhildur Hólm ráðin í Valhöll Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. 7.9.2009 15:57
Stiglitz fundar með ráðherrum Fundur bandaríska hagfræðingsins Joseph Stiglitz og nokkurra ráðherra ríkisstjórnarinnar hófst á fjórða tímanum. Fyrr í dag hélt Stiglitz fyrirlestur í Háskóla Íslands þar sem fullt var út af dyrum. 7.9.2009 15:42
Ísland í dag á næturvakt með löggunni Ísland í dag setti sig í spor lögreglumanna á helgarvakt um lipna helgi og verður afraksturinn sýndur í þætti kvöldsins. Þar kynnumst við lífi lögreglumanna en vaktin byrjaði klukkan 11 á laugardagskvöld og stóð til sjö að morgni sunnudags. 7.9.2009 15:24
Séra Gunnar hvorki átti né mátti Gunnar Björnsson sýndi af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna af sér gagnvart sóknarbörnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli Gunnars sem hefur verið í leyfi frá störfum sem sóknarprestur á Selfossi eftir að hann var kærður fyrir tæpum tveimur árum fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkum sem voru sóknarbörn hans. 7.9.2009 15:13
Þýskir ferðamenn í vandræðum í Tjarnarkvísl Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Norðvesturlandi eru nú á leið til aðstoðar þýsku ferðafólki sem lenti í vandræðum norðan Hofsjökuls fyrir skammri stundu. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar var ferðafólkið að þvera Tjarnarkvísl þegar áin tók bílinn. 7.9.2009 15:04
Ísland ekki á dagskrá hjá AGS í næstu viku Fyrsta endurskoðun á áætlun Íslands verður ekki tekin fyrir í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington þann 14. þessa mánaðar þrátt fyrir að svo segi í dagskrá AGS á vefnum. Tómas Brynjólfsson á efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins staðfestir þetta í samtali við Vísi. 7.9.2009 14:35
Dæmdur fyrir innbrotstilraun á Litla-Hraun Þrítugur maður var í dag sakfelldur fyrir eignaspjöll en honum var gefið að sök að hafa klippt göt á tveimur stöðum á vírgirðinguna sem umlykur Fangelsið á Litla Hrauni. Atburðurinn átti sér stað í mars en fangaverðir sáu manninn í öryggismyndavélum og var hann handtekinn á staðnum. 7.9.2009 13:45
Þingmenn fengu ekki inni á Fiskistofu Árni Múli Jónasson lögfræðingur hefur verið skipaður fiskistofustjóri, frá 1.september til fimm ára. Frá sama tíma hefur Þórði Ásgeirssyni verið veitt lausn frá störfum að eigin ósk, en hann hefur stýrt Fiskistofu frá stofnun hennar. 7.9.2009 12:41
Landsvirkjun verði rannsökuð 15 ár aftur í tímann Náttúruverndarsamtök Íslands telja brýnt að aðkoma Landsvirkjunar að ákvörðunum sveitarstjórna síðastliðin 10 til 15 ár um virkjanaframkvæmdir verði rannsakaðar í þaula. Samtökin hafa sent Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, bréf og vilja að hún hlutist til þannig að skipulagsbreytingar vegna virkjana í neðri Þjórsá verði gerðar ómerkar á grundvelli vanhæfis sveitarstjórnarmanna. 7.9.2009 12:35
Þingeyingar vilja framlengja við Alcoa Sveitarstjórn Norðurþings vill að viljayfirlýsing við Alcoa um álver á Bakka, sem rennur út um mánaðamótin, verði framlengd fram á næsta ár og hefur óskað eftir fundi með ríkisstjórninni um málið í þessari viku. 7.9.2009 12:06
Réttað yfir Fillipseyja-genginu Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn ofbeldisgengi Filippseyinga fer fram í héraðsdómi í dag. Alls eru átta ákærðir en þeir réðust að tveimur lögreglumönnum og veittu þeim áverka. 7.9.2009 12:01
Fótboltakappi vill verða formaður Pétur Georg Markan, knattspyrnumaður úr Val og varaþingmaður Samfylkingarinnar, gefur kost á sér til formennsku í Hallveigu, ungum jafnaðarmönnum í Reykjavík. Pétur vakti athygli í sumar fyrir að skora mark þegar átta sekúndur voru liðnar af leik Vals gegn ÍBV. 7.9.2009 11:14
Tvö þúsund manns vilja reisa minnisvarða um mótmælanda Íslands Rúmlega 2000 manns vilja reisa minnisvarða um Helga Hóseasson sem lést á elliheimilinu Grund í gærmorgun, 89 ára að aldri. Helgi hefur oft verið nefndur mótmælandi Íslands. Einna þekktastur var Helgi fyrir kröftug mótmæli sín gegn ríki og kirkju en hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. 7.9.2009 10:48
Lögreglan leitar skemmdarvarga á torfæruhjólum Lögreglan á Suðurnesjum leitar að tveimur aðilum sem voru á torfæruhjólum, eða svokölluðum krossurum, í Hamradal á Djúpavatnsleið um klukkan þrjú í gær. 7.9.2009 10:19
Þýðir ekkert fyrir Steingrím að skæla Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir að Vinstri græn séu jafn ábyrg fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu og Samfylkingin. Ekki þýði fyrir Steingrím J. Sigfússon, formann VG, að skæla yfir örlögum sínum. 7.9.2009 09:55
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent