Séra Gunnar hvorki átti né mátti Magnús Már Guðmundsson skrifar 7. september 2009 15:13 Séra Gunnar Björnsson.
Gunnar Björnsson sýndi af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna af sér gagnvart sóknarbörnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli Gunnars sem hefur verið í leyfi frá störfum sem sóknarprestur á Selfossi eftir að hann var kærður fyrir tæpum tveimur árum fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkum sem voru sóknarbörn hans. Úrskurðarnefndin féllst ekki á kröfu sóknarnefndar Selfosskirkju um að Gunnari fái ekki að gegna starfi sóknarprests. Gunnar var sýknaður í málinu af dómstólum en deilt hefur verið um hvort réttlætanlegt sé að hann taki aftur til starfa. Bæði prestastefna og fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar hafa gefið út að þau vilji ekki að Gunnar snúa til baka þrátt fyrir að hann hafi verið sýknaður. Leyfi Gunnars hefur ítrekað verið framlengt en beðið hefur verið eftir niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. Sóknarnefnd Selfosskirkju óskaði eftir því að Gunnar fengi ekki gegna starfi sóknarprests eða öðru starfi í Selfosskirkju. Sóknarnefndin óskaði jafnframt eftir því að úrskurðarnefndin myndi mæla fyrir frekari takmörkunum um störf Gunnars. Aftur á móti fór Gunnar fram á að málinu yrði vísað frá án efnismeðferðar. Í efnislegri umfjöllun úrskurðarnefndarinnar segir að um siðferðisbrot hafi verið að ræða en ekki agabrot. Í lögum um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar séu tilgreind úrræði vegna agabrota en ekki siðferðisbrota. Því leggur nefndin ekki til nein úrræði í málinu. Nefndin hafnaði kröfum sóknarnefndarinnar og Gunnars. Í umfjöllun nefndarinnar um málið segir meðal annars: „Gagnaðili hafi mátt gera sér grein fyrir og gerði að hluta, að háttsemi hans kynni að skapa vanlíðan og jafnvel ógn hjá ungmennunum sem fyrir háttseminni urðu, enda eru kossar og faðmlög tæpast háttsemi sem hægt er að telja eðlileg af hálfu sóknarprests gagnvart ungmenni undir lögaldri." Nú tekur við þriggja vikna áfrýjunarfrestur. Áfrýi málsaðilar ekki niðurstöðu úrskurðarnefndari kemur málið inn á borð Karls Sigurbjörnssonar, biskups. Biskupsembættið tjáir sig ekki um úrskurðinn fyrr en að loknum áfrýjunarfresti.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Sjá meira