Innlent

Innbrot og stútur undir stýri

Tilkynnt var um innbrot nú í morgun í fyrirtæki úti á Granda en þar hafði nokkru af tölvubúnaði verið stolið að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tveir aðilar hafa verið handteknir vegna málsins og hluti munanna sem stolið var hafa fundist.

Þá var einn aðili var stöðvaður á fjóra tímanum í dag vegna gruns um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Ökumanni var sleppt að lokinni blóðtöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×