Innlent

Fossinn Hverfandi sést á ný

Fossinn Hverfandi, yfirfallsfoss Kárahnjúkavirkjunar, tók að myndast nú síðdegis þegar Hálslón fylltist og vatn byrjaði að seitla niður yfirfallsrennu lónsins. Í sínum mesta ham verður hann aflmesti foss Evrópu þegar hann fellur meira en tvöhundruð metra niður í Hafrahvammagljúfur. Georg Pálsson, stöðvarstjóri Fljótsdalsstöðvar, býst þó ekki við að fossinn verði vatnsmikill í ár og gerir ráð fyrir að hann verði aðeins sýnilegur næstu tvær vikur þegar aftur fer að lækka í Hálslóni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×