Fleiri fréttir

Staða barna- og unglingageðlæknisins á Akureyri lögð niður

Staða eina barna- og unglingageðlæknisins sem starfar á utan höfuðborgarsvæðisins verður lögð niður og er ákvörðunin hluti af þeim niðurskurði sem tilkynnt hefur verið um á flestum sviðum stjórnsýslunnar. Læknirinn hefur hingað til haft aðstöðu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins vakti athygli á málinu á þingi í dag.

Mótmæli við Landsbankann á Selfossi

Það er víðar en í Reykjavík sem mótmælt er við fjármálastofnanir þessa dagana. Á Selfossi fóru fram mótmæli við útibú Landsbankans og stóðu þau sem hæst um hálfeittleytið í dag. Mikil umferð var um Austurveg á meðan að mótmælunum stóð en meðfylgjandi mynd var tekin um klukkan eitt, þegar að flestir mótmælendur höfðu haldið á brott.

Verklagsreglur bankanna á lokastigi

Ríkisbankarnir þrír eru við það að ljúka gerð verklagsreglna eins og stjórnvöld höfðu mælst til um. Þetta kom fram í máli Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra, á þingi í dag í svari við fyrirspurn Árna Páli Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar. Björgvin segir að Glitnir muni kynna reglur sínar í þessari viku, Landsbankinn sé að leggja lokahönd á sínar reglur og ráðherrann segist ekki vita betur en að Kaupþing sé í svipaðri vinnu.

Fékk 300 þúsund króna sekt fyrir áfengisauglýsingu

Breki Logason, fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Hér og nú, var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun til þess að greiða 300 þúsund króna sekt fyrir að birta áfengisauglýsingu í blaðinu árið 2006.

Vilja að ráðherrar aðstoði við jólaúthlutun

"Við höfum undanfarin ár tekið þátt í jólaúthlutuninni og vitum að það er góð leið til að átta sig á vandanum og því skorum við á ráðherra ríkisstjórnarinnar að taka þátt úthlutuninni í ár," segir Margrét Sverrisdóttir formaður stjórnar Kvenréttindafélags Íslands.

AGS: Mun meira skorið niður í næstu fjárlögum

Ákvörðun um það hvort taka eigi upp evruna er ekki aðalatriði í því sem Ísland þarf að takast á við á þessu augnabliki. Þetta kom fram í máli Poul Thomsen, yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á fundi með blaðamönnum í utanríkisráðuneytinu í dag. Thomsen sagðist vita til þess að umræðan um framtíðargjaldmiðil færi fram en það væri ekki aðal viðfangsefni núna heldur að fást við fjárlögin.

Niðurgreiðslur hækka í Mosfellsbæ

Niðurgreiðslur til foreldra í Mosfellsbæ hækka og gjaldskrár fyrir leik- og grunnskóla breytast ekki. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti samhljóða í gærkvöldi fjárhagsáætlun fyrir árið 2009. Áætlunin var unnin sameiginlega af öllum flokkum í bæjarstjórn.

Krefjast þess að æðstu stjórnendur bankanna víki

Talsmenn Radda fólksins krefja Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, um tafarlausan brottrekstur æðstu stjórnenda nýju bankanna. Grafalvarlegt sé og með öllu óásættanlegt að margir æðstu stjórnendur gömlu bankanna hafi verið endurráðnir í æðstu stjórn nýju bankanna.

Milljónum úthlutað úr sjóði Jóns Sigurðssonar

Úthlutað hefur verið úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar. Að þessu sinni voru veittar 12 viðurkenningar fyrir samtals 6,5 milljón krónur. Hæsti styrkurinn var 700.000 krónur sem fór til Jóns M. Ásgeirssonar og Þórðar Inga Guðjónssonar fyrri verkið Frá Sýrlandi til Íslands. Arfur Tómasar postula. Tómasarguðspjall, Tómasarkver, Tómas saga postula. Aðrir styrkir voru á bilinu 200 til 600.000 krónur.

Duftbréfin virðast hafa komið frá Bandaríkjunum

Niðurstöður rannsókna á hvíta duftinu sem barst sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi í gær liggja ekki fyrir. Kathy Eagen, upplýsingafulltrúi sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi, segir að beðið sé eftir niðurstöðum frá Landspítalanum. Hún segir í samtali við Vísi að Alríkislögreglan, FBI, rannsaki málið en talið er að bréfin, sem send voru sextán sendiráðum vítt og breitt um Evrópu, hafi komið frá Bandaríkjunum.

Laun lækka um 6-15% hjá RÚV

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, tilkynnti á starfsmannafundi fyrir stundu útfærslu á launalækkun starfsmanna sem var kynnt samhliða sparnaðartillögum nýverið. Laun starfsmanna RÚV lækka tímabundið um 6-15%. Í samtali við Vísi sagði Páll að launalækkun langflestra sé bilinu 6-8%.

Reyndu að brjóta sér leið inn í FME - Snéru sér síðan að Glitni

Hópur mótmælenda, um 40 til 50 manns, kom saman fyrir framan Fjármálaeftirlitið á Suðurlandsbraut í morgun. Fólkið safnaðist saman við Glæsibæ og gekk fylktu liði að FME en þegar þangað var komið var búið að læsa anddyrinu. Þá var brugðið á það ráð að brjóta rúðu í hurðinni og fór hópur fólks inn í anddyrið. Annar hópur tók sér stöðu fyrir framan anddyrið og kom í veg fyrir að lögregla kæmist að hópnum sem fór inn.

AGS með fastan fulltrúa á Íslandi

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur skoðað að hafa fastan fulltrúa á Íslandi á næstu misserum, meðan á samstarfi sjóðsins og íslenskra stjórnvalda stendur í tengslum við neyðarlán sjóðsins sem samþykkt var að veita Ísland í haust.

Hvítt duft sent til sendiráðsins á Laufásvegi

Sextán sendiráð Bandaríkjanna vítt og breitt um Evrópu fengu í pósti umslög sem reyndust innihalda hvítt duft. Sendiráðið á Laufásvegi var meðal þeirra sem fengu umslag með dufti. Frá málinu er greint á CNN og sagt að efnagreiningar hafi leitt í ljós að duftið sé venjulegt hveiti. Þó eigi enn eftir að greina efnið sem fannst í Haag í Hollandi.

Tryggvi hættur hjá Nýja Landsbankanum

Tryggvi Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs, hefur sagt upp störfum hjá Nýja Landsbankanum og þegar látið af störfum hjá bankanum. Störf Tryggva hjá bankanum hafa verið gagnrýnd undanfarið en tæpt hálft er síðan að hann var dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi í tengslum við Baugsmálið.

Slapp ótrúlega vel úr bílveltu

Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slasaðist ótrúlega lítið, að mati lögreglu, þegar bíll hans rann út af Eyrarbakkavegi um klukkan sex í morgun og valt fjórar veltur. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík til aðhlynningar og rannsókna. Slysið er rakið til flughálku á veginum.

Gámur með þýfi enn ófundinn

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki enn fundið gám með bíl og þýfi, sem grunur leikur á að verið sé að flytja úr landi.

ASÍ lýsir yfir vonbrigðum vegna stefnu stjórnvalda

Stjórnvöld vilja ekki koma til móts við áherslur ASÍ vegna endurskoðunar og endurnýjunar kjarasamninga, sem eiga að hefjast eftir áramót og eru það mikil vonbrigði, að mati forseta og varaforseta ASÍ, að því er fram kemdur í tilkynningu frá ASÍ.

Líkt og einhver vilji þjóðinni illt með háum stýrivöxtum

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að það sé eins og einhverjir vilji þjóðinni illt með of háum stýrivöxtum. Stýrivaxtapólitíkin er stærsti núverandi vandi íslensks atvinnulífs, að mati Þórs. Hann var gestur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Frelsandi að grýta snjóboltum í Jón Ásgeir

Guðjón Heiðar Valgarðsson, mótmælandi, segir að það hafi verið frelsandi að kasta snjóbolta í andlitið á Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni Baugs, í dag.

Forysta ASÍ óánægð með Geir og Ingibjörgu

Forseti og varaforseti Alþýðusambands Íslands funduðu með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í dag til að kynna áherslur og kröfur í framhaldi af ályktun miðstjórnar ASÍ frá því fyrr í dag um fjárlagafrumvarpið og ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Rukkað í fyrsta sinn fyrir eftirmeðferð SÁÁ

Eftir áramót verður í fyrsta sinn rukkað fyrir eftirmeðferð á vegum SÁÁ. ,,Þetta er merki um ákveðna stefnubreytingu í gjaldtöku í heilbrigðismálum," sagði Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi og formaður SÁÁ, sem var gestur Sölva Tryggvasonar í Íslandi í dag fyrr í kvöld.

Spyrja um kaup bankanna á laxveiðileyfum

Stjórn Stangveiðifélags Seyðisfjarðar hefur sent forsvarsmönnum ríkisbankanna bréf þarf spurst er fyrir um hugsanlega kaup kaup bankanna á laxveiðileyfum næsta sumar.

Skora á Ólaf að skrifa ekki undir fjárlagafrumvarpið

Hafið er átak þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að samþykkja ekki fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hörður Torfason er meðal þeirra sem standa að áskoruninni og vefsíðunni sem hefur verið opnuð. Fjárlagafrumvarpið er meðal annars sagt eiga heima á öskuhaug sögunnar.

Ganga í þágu friðar á Þorláksmessu

Íslenskir friðarsinnar standa sem fyrr að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu en safnast verður saman á Hlemmi og leggur gangan af stað stundvíslega kl. 18 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega.

Segjast hafa verið hlunnfarnir

Fyrrverandi starfsmenn Landsbankans í Lúxemborg segjast hafa verið hlunnfarnir eftir að bankinn fór í gjaldþrot, loforð hafi verið svikin og fólk skilið eftir í algerri óvissu. Efnt var til kröfufundar fyrir utan höfuðstöðvar bankans ytra í dag.

Sjálfsagt að upplýsa um kostnað forsetaembættisins

Örnólfur Thorsson, forsetaritari, segir ekkert nema sjálfsagt að veita upplýsingar um kostnað forsetaembættisins. Össur Skarphéðinsson vill að lögreglan rannsaki hvernig bókhaldsgögn embættisins komust í hendur fjölmiðla.

21 milljarður eftir af Símapeningunum

Rúmlega tuttugu milljarðar eru eftir af 67 milljörðum sem fengust fyrir sölu Landssímans árið 2005. Sérstök lög um ráðstöfun símapeninganna verða afnumin samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar og afgangnum deilt út á fjárlögum eftir ákvörðunum Alþingis hverju sinni.

Næturflug hætt á Reykjavíkur- og Akureyrarflugvelli

Flugstoðir sjá fram á hundruð milljóna króna niðurskurð. Upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir enn óljóst hvar verði skorið niður en samkvæmt heimildum fréttastofu verður lokað fyrir allt næturflug á Reykjavíkur- og Akureyrarflugvelli.

Hálka á vegum um allt land

Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víðsvegar um landið. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Kjalarnesi. Á Suðurlandi er hálka, snjóþekja einnig er éljagangur víða. Það er hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum.

Blaðamenn DV halda ótrauðir áfram

Kolbeinn Þorsteinsson trúnaðarmaður á DV segir niðurstöðu fundar blaðamanna sem var að ljúka hafa verið þá að halda áfram að koma út blaði. Hann segir fundinn ekkert sérstaklega hafa rætt hvort ritstjórar blaðsins njóti stuðnings blaðamanna. Aðeins einn blaðamaður hefur sagt upp störfum.

Stoppaði oft fréttir frá Símoni

Hvorki Jónas Kristjánsson né Mikael Torfason muna eftir því atviki þegar að tvær fréttir sem Símon Birgisson skrifaði voru slegnar af borði ritstjórnar. Símon skrifaði færslu um málið á bloggsíðu sína í dag sem að Vísir vitnaði í.

Þrettán Íslendingar í fangelsum erlendis - Þyngsti dómur 20 ár

Þrettán íslenskir ríkisborgarar dveljast í fangelsum erlendis. Sá sem þyngsta dóminn hefur hlotið var dæmdur í 20 ára fangelsi. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um málefni íslenskra fanga erlendis.

Niðurskurður til framhaldsskólanna mikið áhyggjuefni

Það er mikið áhyggjuefni að í breytingatillögum við fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár sé gert ráð fyrir niðurskurði í fjárveitingum til framhaldsskóla um meira en hálfan milljarð. Þetta segtir í ályktun Félags framhaldsskólakennara. Kennarar segja að umsóknir um nám í

Róbert Spanó verður Umboðsmaður Alþingis

Forsætisnefnd Alþingis hefur farið þess á leit við Róbert Spanó lögfræðing að hann gegni embætti Umboðsmanns Alþingis á meðan að Tryggvi Gunnarsson starfar í rannsóknarnefnd um bankahrunið.

Háskóli Íslands í mjög þröngri stöðu

Háskóli Íslands getur ekki tekið á móti 1600 nýjum nemum og þolað niðurskurð um einn milljarð króna á sama tíma, segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framlög til Háskóla Íslands verði skorin niður um 900 milljónir króna. Kristín segir að skólinn sé í mjög þröngri stöðu.

Stúdentar mótmæla niðurskurði

Námsmenn gera „stórvægilegar“ athugasemdir við sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá helstu félögum námsmanna er harðlega gagnrýnt að fjárframlög til LÍN skuli vera skert um það sem nemur 1.360 milljónum og ríkisútgjöld til menntunar, háskóla, rannsókna og framhaldsskóla séu „duglega dregin saman.“

ASÍ vill tillögur um jafnvægi í ríkisrekstrinum

Miðstjórn ASÍ telur óhjákvæmilegt að ráðast í það erfiða verkefni að taka á hallarekstri ríkissjóðs. Ljóst er að það tekur nokkur ár að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi.

Sjá næstu 50 fréttir