Innlent

Niðurgreiðslur hækka í Mosfellsbæ

Mosfellsbær.
Mosfellsbær.

Niðurgreiðslur til foreldra í Mosfellsbæ hækka og gjaldskrár fyrir leik- og grunnskóla breytast ekki. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti samhljóða í gærkvöldi fjárhagsáætlun fyrir árið 2009. Áætlunin var unnin sameiginlega af öllum flokkum í bæjarstjórn.

,,Hagrætt verður í rekstri bæjarins til að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar og launa svo komast megi hjá því að hækka gjaldskrár vegna þjónustu," segir í tilkynningu frá bæjarfélaginu.

Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir 40% hækkun á niðurgreiðslum til foreldra sem eru með börn hjá dagforeldrum og að heimgreiðslur hefjist frá 9 mánaða aldri í stað við eins árs aldur eins og áður. Þá er gert ráð fyrir óbreyttum gjaldskrám í leik- og grunnskólum.

Útsvarsprósenta hækkar og verður 13,03% á næsta ári. Útsvarstekjur er áætlaðar 2.518 milljónir króna.  Tekjur af fasteignasköttum eru áætlaðar 446 milljónir króna, sem er 2% aukning frá fyrra ári vegna fjölgunar íbúða en álagningahlutföll fasteignaskatta eru óbreytt.

Jafnframt er gert ráð fyrir því að laun bæjarfulltrúa og nefndarfólks lækki í samræmi við ákvörðun kjaranefndar um þingfararkaup og að laun hjá æðstu stjórnendum bæjarins lækki um 6 til 7%. Þá verður gert sérstakt átak í að lækka starfstengdan kostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×