Innlent

Hálka á vegum um allt land

Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víðsvegar um landið. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Kjalarnesi. Á Suðurlandi er hálka, snjóþekja einnig er éljagangur víða. Það er hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum.

Hálka og éljagangur er á  Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði og snjóþekja og éljagangur er á Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er hálka. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar, einnig er ófært yfir Eyrarfjall.

Víða á Norðurlandi er hálka, hálkublettur eða snjóþekja. Hálka er á Lágheiði.

Á Austurlandi og Suðausturlandi er hálka og hálkublettir. Ófært er yfir Öxi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×