Innlent

Niðurskurður leggst þungt á Háskólann á Akureyri

Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Útgjöld til Háskólans á Akureyri verða skorin niður um 127,5 milljónir króna eða 8,8% samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar verði það samþykkt.

Háskólaráð skólans samþykkti á fundi sínum í vikunni að fela framkvæmdastjórn háskólans að gera tillögur að rekstraráætlun fyrir árið 2009 þar sem stefnt verði að því að mæta fyrirhuguðum niðurskurði án þess að segja upp starfsfólki. Fyrirsjáanlegt er að þessi niðurskurður mun leggjast þungt á starfsemi háskólans á næsta ári.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, gagnrýndi boðaðan niðurskurð í samtali við Vísi í gær og sagði HÍ vera í afar þröngri stöðu. Ekki sé hægt að skera niður á sama tíma og nemendum fjölgar umtalsvert.

Umsóknarfrestur í Háskólann á Akureyri rann út á mánudaginn en þá höfðu 134 sótt um grunnnám við skólann og 30 í framhaldsnám. Fjöldi umsókna er tæplega 12% af nemendafjölda skólans.

,,Þrátt fyrir þennan niðurskurð verða þeir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði innritaðir í háskólann enda ganga þeir inn í námshópa sem þegar hefur verið gert ráð fyrir. Kappkostað verður að kennsla uppfylli ströngustu gæðakröfur hér eftir sem hingað til," segir í tilkynningu.




Tengdar fréttir

Háskóli Íslands í mjög þröngri stöðu

Háskóli Íslands getur ekki tekið á móti 1600 nýjum nemum og þolað niðurskurð um einn milljarð króna á sama tíma, segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framlög til Háskóla Íslands verði skorin niður um 900 milljónir króna. Kristín segir að skólinn sé í mjög þröngri stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×