Fleiri fréttir

Opinn borgarafundur í kvöld

Stóru fyrirtækin, FL group, Stoðir, eignatengsl og spilling í atvinnulífinu eru umfjöllunarefni opins borgarafundar í kvöld.

Réðst á lögreglukonu og fær 6 mánaða fangelsi

Karlmaður úr Reykjavík var dæmdur í sex mánaða fangelsi í dag fyrir brot gegn valdstjórninni og ítrekuð umferðarlagabrot. Hann var fjórum sinnum stöðvaður við akstur án gildra ökuréttinda.

Þakklátur þeim sem trúðu að ég væri heiðarlegur maður

Jón Ólafsson segist ekki getað annað en lofað drottinn og vonar að málinu sé hér með lokið. Meintum skattalagabrotum Jóns var vísað frá dómi að öllu leyti í morgun. Rannsóknin hefur tekið hátt í sjö ár og hefur haft mikil áhrif á Jón og hans fjölskyldu.

Meintum skattalagabrotum Jóns Ólafssonar vísað frá dómi

Ákæru vegna meintra skattalagabrota Jóns Ólafssonar athafnamanns var í morgun vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón hefur legið formlega undir grun í tæp sjö ár og fagnar verjandi hans úrskurðinum. Ásamt Jóni voru þeir Hreggviður Jónsson, Ragnar Birgisson og Símon Ásgeir Gunnarsson ákærðir og var málum þeirra tveggja fyrrnefndu einnig vísað frá en kröfu Símons um frávísun var hafnað.

Vill að lögreglan kanni stuld á bókhaldsgögnum forsetans

„Forsetinn á þessa stundina við að glíma hnitmiðað áhlaup óvildarmanna, sem á tímum þegar forbyltingin hefur lækkað alla siðræna standarda, virðast hafa komist yfir stolin gögn úr stjórnsýslunni um bókhald þeirra hjóna.

Landsbankamótmælum lokið

Mótmælum sem hópur fólks stóð fyrir í Landsbankanum í morgun er lokið. Fólkið hóf mótmælin í gamla Landssímahúsínu við Austurvöll rétt eftir klukkan níu.

Handteknir eftir innbrot í skóla

Lögregla handtók fjóra menn í bíl, eftir að þeir höfðu brotist inn í skóla í Hafnarfirði í nótt og stolið þaðan tölvubúnaði og fleiru. Vitni gat lýst bíl þeirra sem leiddi til handtökunnar og þýfi fannst í bílnum. Þeir gista fangageymslur og eru grunaðir um sitthvað fleira misjafnt.

Meiddist við fall af hestbaki

Ung kona meiddist þegar hún féll af hestbaki við Suðurlandsveg á milli Selfoss og Hveragerðis í gærkvöldi. Hesturinn fældist með þessum aflleiðingum en ekki er vitað hvað fældi hann. Konan var flutt á sjúkrahúsið á Selfossi en var útskrifuð eftir aðhlynningu.

Slasaðist þegar bíll lenti á ljósastaur

Farþegi slasaðist alvarlega þegar bíll, sem hann var í, lenti á ljósastaur á mótum Fífuhvammsvegar og Hafnarfjarðarvegar laust eftir miðnætti. Björgunarmenn þurftu að beita klippum til að ná honum úr bílflakinu

Mál Reynis tekið fyrir hjá Blaðamannafélaginu

,,Það hefur ekki tíðkast hjá Blaðmannafélaginu að víkja fólki úr félaginu og það verður ekki gert núna. Það breytir því ekki ég er mjög ósátt við það að Reynir Traustason skuli sem ritstjóiri DV láta undan hótunum aðila út í bæ með því að stöðva frétt," sagði Arna Scram, formaður Blaðamannafélags Íslands, í samtali við Vísi. Mál Reynis verður tekið fyrir hjá stjórn Blaðamannafélagsins.

Borgarfulltrúar upplýsi um bakhjarla sína

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, lagði til á fundi borgarstjórnar í dag að borgarfulltrúar birti upplýsingar um öll fjárframlög til þeirra vegna prófkjara fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar eigi síðar en 28. febrúar næst komandi.

Sáttur við vinnubrögð lögreglu við Ráðherrabústaðinn

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er ánægður með viðbrögð lögreglu við Ráðherrabústaðinn í morgun þegar á annað hundrað mótmælenda komu saman og reyndu að varna því að ráðherrar kæmust á ríkisstjórnarfund.

Agnes vill að Reynir verði rekinn úr Blaðamannafélaginu

Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, sagði í þættinum Íslandi í dag í kvöld að Blaðamannafélag Íslands ætti að reka Reyni Traustason, ritstjóra DV, úr félaginu meðal annars vegna þeirra ummæla sem hann viðhafði um nafntogaða einstaklinga á upptöku sem birt var í Kastljósi í gær.

Búðarhálsvirkjun hugsanlega frestað

Ekki er útilokað að fresta verði framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun þar sem mikil óvissa ríkir um framtíðarfjármögnun Landsvirkjunar.

Rekstur erfiður vegna flutningskostnaðar

Verksmiðjustjóri Vífilfells á Akureyri óttast að flutningskostnaður geti að óbreyttu orðið til þess að verksmiðjum úti á landi verði lokað og framleiðsla færist á höfuðborgarsvæðið í stórum stíl.

Blaðamaður DV segir upp störfum - Reynir situr áfram

Einn af blaðamönnum DV sagði upp störfum í dag eftir að Reynir Traustason, ritstjóri blaðsins, varð uppvís að því að því að vera tvísaga. Ritstjórinn segir það ekki koma til álita að segja starfi sínu lausu.

Sæunn vill vera ritari áfram

Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður flokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram sem ritari. Hún hefur verið ritari flokksins frá árinu 2006.

Sigurjón hafði aðstöðu hjá Nýja Landsbankanum

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, er hvorki með aðstöðu né aðgang að húsnæði eða gögnum Nýja Landsbankans. Aftur á móti hafði Sigurjón afnot af húsnæði bankans fyrstu vikurnar eftir starfslok hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Landsbankanum.

Segir Kompás hafa valdið sér ómældum fjárhagslegum skaða

Björgvin Þór Þorsteinsson, sem var umfjöllunarefni Kompás í gærkvöldi, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þáttarins. Þar segir hann meðal annars að umsjónarmenn þáttarins hafi reynt að gera lítið úr og rýra trúverðugleika sinn. Björgvin segist ætla að leita til lögmanns með tilliti til þess hvort rétt sé að höfða mál á hendur ritstjóra og ábyrgðarmanni Kompáss fyrir tilraun til mannorðsmorðs og að hafa valdið sér ómældum fjárhagslegum skaða.

Samtök atvinnulífsins beita sér ekki fyrir inngöngu í ESB

Niðurstöðurnar könnunar á afstöðu félaga innan Samtaka atvinnulífsins voru kynntar á fundi stjórnar í dag. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur.

Fjárlögin harðlega gagnrýnd af stjórnarandstöðu

Atkvæðagreiðsla eftir aðra umræðu um fjárlög fyrir árið 2009 fór fram á Alþingi í dag. Þingmenn úr stjórnarandstöðu fóru hverjir á eftir öðrum í pontu og gera grein fyrir skoðunum sínum varðandi flesta liði frumvarpsins og hafa gagnýnt það harðlega sem þeir kalla niðurskurðarfrumvarp. Að mati stjórnarandstöðu er skorið niður í þeim liðum sem verst bitna á þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu.

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra braut jafnréttislög

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, þegar karlmaður var ráðinn í starf forstöðumanns Fjöliðjunnar á Akranesi á síðasta ári.

Rúmlega 1600 manns sækja um nám í HÍ

Metfjöldi umsókna varð hjá Háskóla Íslands fyrir vormisseri 2009 eða 1625 talsins. 894 sóttu um grunnnám sem er rúmlega fjórföldun á milli ára. 731 sóttu um framhaldsnám sem er meira en sjöfalt fleiri en teknir voru inn í HÍ í fyrra.

Greiðir 6,5 milljóna sekt fyrir skatta- og bókhaldsbrot

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 6,5 milljónir í sekt til ríkissjóðs fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum sem framin voru í sjálfstæðri atvinnustarfsemi hans með því að vantelja skattskyldan tekjuskatt og að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti. Maðurinn hefur tvívegis áður verið dæmdur fyrir brot á hegningarlögum.

Landsbankinn þrýsti ekki á Reyni

Nýi Landsbankinn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem bankinn sver af að hafa haft áhrif á það þegar DV ákvað að birta ekki frétt um Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóra.

Lögreglan í æfingaakstri á Reykjanesbrautinni

Vegfarendur á ferð um Reykjanesbrautinna hafa margir hverjir tekið eftir óvenjumörgum lögreglubifreiðum á Reykjanesbrautinni í dag. Bílarnir hafa ekið greitt og notað blikkljósin óspart. Þegar Vísir hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum kom í ljós hverju sætti, en um er að ræða æfingaakstur.

Strætó austur fyrir fjall

Fulltrúar Strætó bs. og bæjarstjórna Árborgar og Hveragerðis skrifuðu í morgun undir samninga um akstur Strætó milli bæjarfélaganna og höfuðborgarsvæðisins. Aksturinn hefst 2. janúar næstkomandi og verða farnar ellefu ferðir daglega fram og til baka á virkum dögum, sex á laugardögum og fimm á sunnudögum.

„Evra þýðir innganga í ESB, það sagði ég“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að Alf Skjeset blaðamaður norska dagblaðsins Klassekampen hafi ekki haft rangt eftir sér í viðtali sem hann tók við hana. Af fréttum í gær mátti skilja að Þorgerður teldi að eina leiðin fyrir okkur væri innganga í Evrópusambandið. Hún segir það hinsvegar eingöngu eiga við peningamálastefnuna því evran verði ekki tekin upp nema með inngöngu.

Bílvelta á Miklubraut

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Miklubraut, skammt frá Kringlunni, um hálfellefuleytið í morgun. Að sögn sjúkraflutningamanna slasaðist enginn í óhappinu.

Fjárlögin vega að hjúkrunarheimilum

Stjórn Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu átelur stjórnvöld harðlega fyrir niðurskurð í heilbrigðiskerfinu í nýjum fjárlögum og segir vegið að starfsemi hjúkrunarheimila.

Björgólfur ber af sér sakir í DV máli

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsbankans segist ekki hafa haft nein afskipti af því að Reynir Traustason, ritstjóri DV, hafi ákveðið að birta ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans í blaðinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Björgólfur sendi frá sér fyrir stundu.

Fær skaðabætur vegna óréttmætrar handtöku

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karlmanni skaðabætur fyrir óréttmæta handtöku. Maðurinn var grunaður um að tengjast tilraun til þess að selja falsaða bankaávísun. Hann var handtekinn vegna málsins en eftir rannsókn lögreglu þótti ekki ástæða til að ákæra manninn. Maðurinn krafðist skaðabóta vegna handtökunnar og var honum dæmdar 200 þúsund krónur í bætur.

Hækkun á tekjuskatti og útsvari

Í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem lagt var fyrir Alþingi í gærkvöldi kemur fram að tekjuskattur verður 24 prósent í stað 22,75 prósentum. Áætlað er að þessi hækkun skili ríkissjóði nálægt 7 milljörðum króna. Þá er sveitarfélögum gert heimilt að innheimta 13,28 prósenta útsvar í stað 13,03 prósenta. Þetta gerir það að verkum að prósentuhækkun tekjuskatts nemur 5,5 prósentum og útsvarshækkunin nemur 1,5 prósenti.

Jeppa kórstjóra stolið við Fríkirkjuna

Jón Kristinn Cortez tónlistarkennari og kórstjóri var við tónleikahald í Fríkirkjunni í Reykjavík á sunnudag. Á meðan tónleikahaldinu stóð var bílnum hans stolið. Þetta gerðist á milli klukkan 17:00 og 18:00.

Staðfestir að hann eigi hljóðritun af símtali við Þorgerði

Alf Skjeset, blaðamaður norska blaðsins Klassekampen, staðfesti í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í morgun, að hann eigi hljóðritað samtal milli sín og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þar sem meðal annars er rætt um framtíðarstefnu Íslendinga í peningamálum.

Aldrei fleiri umsóknir um nám í HÍ

Nú þegar umsóknafresti um nám í Háskóla Íslands er liðinn er ljóst að meiri áhugi er fyrir námi við Háskóla Íslands en nokkru sinni fyrr á þessum árstíma. Umsóknir um nám á vormisseri 2009 eru samtals 1.625. Fyrir eru í skólanum rösklega 12 þúsund nemendur, ef miðað er við stöðuna 20. október síðastliðinn, og nemur fjöldi umsókna því um 13% af öllum nemendum Háskóla Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir