Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðin á rétt á því að kjósa Ríkisstjórnin er rúin trausti og þess vegna á hún að segja af sér. Þetta sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, við umræður um vantrauststillögu á ríkisstjórnina á Alþingi i dag. 24.11.2008 15:20
Geitfjársetur og dýrasælgætisfyrirtæki fá styrki Geitfjársetur, fyrirtæki sem framleiðir dýrasælgæti og annað sem sinnir fjölbreytilegri heimaþjónustu við aldraða, fatlaða og langveika eru meðal þeirra tíu fyrirtækja sem hlutu tveggja milljóna króna styrk frá fjármálaráðuneytinu í dag. 24.11.2008 15:11
Utanríkisráðherra: Ekki tími til að standa í kosningabaráttu Það varð kerfishrun í íslensku samfélagi með hruni bankanna. Verkefnið sem við stöndum andspænis er að byggja þetta samfélag upp aftur, en ekki að standa í kosningabaráttu. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra í umræðum um vantrauststillögu á ríkisstjórnina. 24.11.2008 15:01
Valgerður sakar Geir um forystuleysi Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir að með því að taka fremur mark á bankastjórum viðskiptabankanna en seðlabankastjóra hafi Geir H. Haarde forsætisráðherra í raun verið að segja að hann bæri ekki traust til seðlabankastjóra og ætti að láta hann fara. 24.11.2008 14:31
Forsætisráðherra: Vantrauststillagan sett fram til að kalla fram óróa Geir Haarde forsætisráðherra sagði að vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórnina væri vanhugsuð. Hann grunaði að tillagan væri fremur sett fram til að kalla fram óróa, frekar en að ætlunin væri að fá tillöguna samþykkta. 24.11.2008 14:22
Telja sig hafa fundið norsk-íslenska vorgotssíld fyrir vestan ,,Okkur þykja þetta stórmerkileg tíðindi og það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr rannsóknum Hafrannsóknastofnunar á þessari síld," segir Lárus Grímsson, skipstjóri á Lundey NS, en hann og áhöfn hans fengu fyrir helgina góðan síldarafla inni á Jökulfjörðum í norðanverðu Ísafjarðardjúpi. 24.11.2008 14:11
Segir Samfylkinguna setja Íslandsmet í óábyrgum málflutningi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, mælti fyrir vantrauststillögu á ríkisstjórnina við upphaf þingfundar klukkan hálftvö í dag. 24.11.2008 14:08
Sonur Kauphallarstjóra handtekinn vegna gruns um peningaþvætti Friðjón Þórðarson forstöðumaður verðbréfamiðlunar hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu hf. var handtekinn í gær vegna gruns um stófelld auðgunarbrot og brot á lögum um peningaþvætti. Ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir honum verður tekin síðar í dag. 24.11.2008 13:40
Stálu áfengisflöskum af veitingastað Lögreglan á Selfoss hafði í síðustu viku afskipti af pari vegna gruns um að það hafi brotist inn í veitingastaðinn Hafið bláa við Óseyri. 24.11.2008 12:37
Telja ólíklegt að vantrauststillaga verði samþykkt Alþingi fjallar í dag um vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórnina. Ólíklegt þykir að tillagan verði samþykkt. 24.11.2008 12:15
Stýrihópar halda utan um tilboð í eignir íslensku bankanna Fjöldi tilboða frá erlendum og íslenskum kaupsýslumönnum hefur borist í eignir gömlu íslensku bankanna og verða stýrihópar myndaðir í dag til að halda utan um þau. 24.11.2008 12:00
Þurfa aukið samráð við ríkið til að standa undir rekstri Vandséð er hvernig sveitarfélögin geta sett fram fjárhagsáætlanir sem byggja á hallalausum rekstri eins og lög gera ráð fyrir. 24.11.2008 11:43
Sýslumaður átti að auglýsa starf deildarstjóra Sýslumanninum á Blönduósi var óheimilt að færa lögreglumann í starf deildarstjóra hjá innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar án þess að auglýsa starfið. 24.11.2008 11:28
Birkir sækist eftir varaformannsembætti í Framsókn Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hyggst bjóða sig fram til embættis varaformanns flokksins á komandi flokksþingi sem verður í janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Birki til fjölmiðla. 24.11.2008 11:17
Dönsk Lynx þyrla í viðhaldi hjá Landhelgisgæslunni Lynx þyrla af danska varðskipinu Triton kom nýverið til viðhalds í skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. 24.11.2008 10:49
Rjúpnastofninn að stækka „Það er greinilega meira af rjúpu á flestum stöðum á landinu," segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. 24.11.2008 10:36
Vilja jafnræði milli íslenskra og hollenskra innistæðueigenda Þeir Hollendingar sem áttu yfir hundrað þúsund evrur á Icesave-reikningum Landsbankans þar í landi hafa sent íslenskum þingmönnum opið bréf þar sem farið er fram á að allir fjármunir þeirra verði tryggðir líkt og hjá Íslendingum í íslenskum bönkum. 24.11.2008 10:24
Ástþór Magnússon boðar framboð til næstu þingkosninga Lýðræðishreyfingin sem stofnuð var af Ástþóri Magnússyni og fleirum árið 1998 mun styðja 126 einstaklinga til framboðs við næstu alþingiskosningar. 24.11.2008 10:05
Rætt um fjármálakreppuna og EES-samninginn í Genf Hin alþjóðlega fjármálakreppa og framtíð EES-samningsins verða til umræðu á ráðherrafundi EFTA sem fram fer í dag og á morgun í Genf. 24.11.2008 09:51
Telur aðra betri í formannsstólinn „Ég hefði áhuga á að leiða flokkinn ef ég væri sannfærð um að ég sé best til þess fallin. Ég er alls ekki sannfærð um það í dag." 24.11.2008 09:47
Tíu teknir fyrir hraðakstur í umdæmi Hvollsvallarlögreglu Lögreglan á Hvolsvelli tók tíu manns fyrir of hraðan akstur í liðinni viku, en helmingur þeirra var erlendir ferðamenn. 24.11.2008 09:16
Mótmæla lokun skurðstofu á Suðurnesjum Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ mótmælir sparnaðarhugmyndum heilbrigðisráðuneytisins um að loka skurðstofu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 24.11.2008 07:14
Ungir jafnaðarmenn krefjast brottrekstrar Davíðs Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfriði krefjast þess að þeir sem settu þjóðina í núverandi stöðu verði settir af tafarlaust og látnir svara til saka. 24.11.2008 07:12
Eldur í bíl í Hafnarfirði Eldur kviknaði í mannlausum bíl í nótt þar sem hann stóð fyrir utan atvinnuhús við Rauðhellu í Hafnarfirði. 24.11.2008 07:10
Innbrotsþjófar á ferð í nótt Lögreglan gómaði tvo þjófa á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annar hafði bortist inn í bíl í austurborginni og var með þýfi á sér þegar hann náðist. 24.11.2008 07:06
Ástandið í þjóðfélaginu kallar á vantrauststillögu ,,Ég tel að full ástæða hafi verið að koma fram með þessa tillögu og láta reyna á hana," segir Valgerður Sverrirsdóttir formaður Framsóknarflokksins um vantrauststillögu formanna stjórnarndstöðuflokkanna sem verður tekin fyrir á Alþingi á morgun. 23.11.2008 21:00
Segir ESB-ríkin hafa samúð með Íslendingum Olli Rehn, stækkunarmálastjóri Evrópusambandsins, segir ESB-ríkin hafa samúð með Íslendingum en einnig trú á möguleikum lands og þjóðar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 23.11.2008 21:09
Segir breytingar á vinstrivængnum orsaka fylgishrunið Jón Sigurðsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, telur mun djúpstæðari ástæður liggja á bak við fylgishrun flokksins undanfarin ár heldur en Íraksmálið, einkavæðing bankanna eða fjölmiðlamálið. 23.11.2008 20:15
Samfylkingarfólk skorar á heilbrigðisráðherra Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ getur ekki fallist á sparnaðarhugmyndir heibrigðisráðuneytisins sem reikna með lokun skurðstofa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og telur sparnaðarhugmyndirnar aðför að því velferðarkerfi sem áratugi hefur tekið að byggja upp. 23.11.2008 20:15
Lög brotin þegar Haukur var handtekinn Lög voru brotin þegar Haukur Hilmarsson var handtekinn á föstudag. Fjöldi fólks mótmælti handtöku hans í gær en í dag viðurkenndu yfirvöld að mistök voru gerð í málinu. 23.11.2008 19:05
Segja neysluvenjur hafa breyst í kreppuni Íslendingar hafa breytt neysluvenjum sínum í kreppunni. Íslenskar vörur eru vinsælli en áður og gamli mömmumaturinn er aftur kominn í tísku. 23.11.2008 18:54
Staða þingmanna misjöfn Þeir sextíu og þrír einstaklingar sem sitja á Alþingi skulda að meðaltali rétt rúmar nítján milljónir í húsum sínum. Fjórir þingmenn skulda ekki neitt en þeir sem mest skulda eru með rúmar fimmtíu milljónir áhvílandi á íbúðum sínum. 23.11.2008 18:45
Boðuð mótmæli höfðu ekki áhrif á handtöku Hauks Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar leggur áherslu á að handataka Hauks Hilmarssonar hafði ekkert með boðuð mótmæli á Austurvelli í gær að gera. 23.11.2008 17:42
Óttast afleiðingar fjármálakreppunnar á velferðarkerfið Yfirstandandi efnahagsþrengingar og fall bankanna á síst af öllu að bitna á þeim sem þurfa hvað mest að nýta velferðarkerfið og öryggisnetið, að mati Gerðar A. Árnadóttur læknis og formanns Landssamtakanna Þroskahjálpar. 23.11.2008 16:56
Stjórnvöld njóta aðstoðar erlendra aðila ,,Það koma margir að þessari vinnu," segir Ásmundur Stefánsson, ráðgjafi stjórnvalda, aðspurður um aðkomu erlendra fyrirtækja að björgunaraðgerðum stjórnvalda í framhaldi á falli bankanna. 23.11.2008 15:45
Hlutverk Samfylkingarinnar er að standa vörð um velferðarkerfið Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að verja það öfluga lífeyris- og réttindakerfi sem verkalýðshreyfingin hefur byggt upp á undanförnum áratugum, að mati verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar. 23.11.2008 15:29
Útilokar ekki endurkomu Davíðs Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálaprófessor, útilokar ekki endurkomu Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra, á vettvang stjórnmálanna. Hannes var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni fyrr í dag. 23.11.2008 15:17
Heiðurinn að veði - Viðtal við Guðjón Friðriksson Fyrr í vikunni kom út bókin Saga af forseta, sem fjallar um forsetaferil Ólafs Ragnars Grímssonar. Höfundur er Guðjón Friðriksson sagnfræðingur. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Guðjón um tilurð bókarinnar og tilgang hennar. 23.11.2008 14:09
,,Ég held ég hafi aldrei á ævinni verið jafn reið" Móðir 16 ára stúlku sem fékk piparúða yfir sig í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í gær er allt annað en sátt með aðgerðir lögreglu. ,,Ég held ég hafi aldrei á ævinni verið jafn reið," segir Anna Helgadóttir en dóttir hennar komst við illan leik út úr lögreglustöðinni. Í framhaldinu leituðu mæðgurnar aðstoðar á slysadeild. 23.11.2008 14:03
Mikill meirihluti telur að álver hafi jákvæð áhrif á efnahagslífið Rúmlega 78 prósent landsmanna telja að álver hafi frekar eða mjög jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Rúmlega átta prósent telja áhrifin frekar eða mjög neikvæð. Þetta kemur fram í niðurstöðum landskönnunar sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Alcoa Fjarðaál. 23.11.2008 13:43
Var ekki handtekinn til að koma í veg fyrir þátttöku í mótmælum Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu vísar því á bug að Haukur Hilmarsson hafi verið handtekinn til þess að koma í veg fyrir að hann tæki þátt í mótmælaaðgerðum í gær. Hann segir málið eiga sér eðlilegar skýringar. 23.11.2008 12:06
Ríkið skuldar 45 milljónir fyrir rekstur björgunarskipa Ríkisvaldið skuldar Slysavarnarfélaginu Landsbjörg 45 milljónir fyrir rekstur á 14 björgunarskipum. Frekari dráttur á greiðslum mun hafa alvarlegar afleiðingar og hugsanlega leiða til rekstrarstöðvunar skipanna. 23.11.2008 11:27
Gefa lítið fyrir skýringu lögreglu á Bónusfánaflaggara Afstaða, félag fanga, segir skýringar lögreglu á handtöku Hauks Hilmarssonar á föstudaginn, sem flaggaði bónusfána á Alþingishúsinu fyrir tveimur vikum, ótrúlegar. 23.11.2008 10:12
Varað við hálku Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víðsvegar um landið. Á Austurlandi er þæfingsfærð á Möðrudalsöræfum og stendur mokstur yfir. Þá er hálka og snjóþekja á Vopnafjarðarheiði. 23.11.2008 09:48
Ekið á mann á Hverfisgötu í nótt Ekið var á gangandi vegfaranda á Hverfisgötu um klukkan tuttugu mínútur í fjögur í nótt. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild og er talinn lærbrotinn. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifjum eiturlyfja. 23.11.2008 09:38