Telja sig hafa fundið norsk-íslenska vorgotssíld fyrir vestan 24. nóvember 2008 14:11 ,,
Okkur þykja þetta stórmerkileg tíðindi og það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr rannsóknum Hafrannsóknastofnunar á þessari síld," segir Lárus Grímsson, skipstjóri á Lundey NS, en hann og áhöfn hans fengu fyrir helgina góðan síldarafla inni á Jökulfjörðum í norðanverðu Ísafjarðardjúpi. Það væri e.t.v. ekki í frásögur færandi nema vegna þess að um 80% aflans var síld með hrognum og sviljum. Því er örugglega ekki um íslenska sumargotssíld að ræða og reyndar kemur fátt annað til greina en að síldin sé norsk-íslensk vorgotssíld. Greint er frá þessu á vefsíðu Hb Granda. Að sögn Lárusar hafa fréttir borist af síldargengd í Ísafjarðardjúpi upp á síðkastið og varð það til þess að tvö skip, Faxi RE og Bjarni Ólafsson AK, fóru í síldarleit í Djúpinu um miðja síðustu viku. Lárus segir að vart hafi orðið við síld allt inn undir Reykjanes en hún hafi ekki verið veiðanleg. ,,Við vorum á ferðinni tveimur dögum síðar og vorum búnir að leita nokkuð víða þegar sjómenn á Sædísi frá Ísafirði hringdu í okkur og greindu frá því að það lóðaði á síld inni á Veiðileysufirði. Við fórum því á staðinn en síldina fundum við út af Lónafirði og þar fengum við tæplega 700 tonn í einu kasti. Það var svo fyrir algjöra tilviljun að við komumst að því að síldin var með hrognum og sviljum. Einum úr áhöfninni datt í hug að athuga hvort það væri áta í síldinni og spretti einni upp og þá komu hrognin í ljós. Við nánari skoðun kom í ljós að um 80% aflans var síld með hrognum og sviljum. Meðalvigtin á síldinni var um 330 grömm og að mínu viti kemur ekki annað til greina en að þarna hafi norsk-íslensk síld blandast íslenskri sumargotssíld. Hvað hún er að gera á þessum stað og árstíma er svo eitthvað sem fiskifræðingarnir verða að segja okkur," segir Lárus en þess má geta að í aflanum var töluvert um mjög stóra síld eða allt upp í 450 gramma þunga. Guðmundur Óskarsson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun sagði í samtali við heimasíðu HB Granda að sýnin frá Lundey NS væru komin í hús og farið yrði í það síðar í dag að skoða síldina.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira