Sýslumaður átti að auglýsa starf deildarstjóra 24. nóvember 2008 11:28
Sýslumanninum á Blönduósi var óheimilt að færa lögreglumann í starf deildarstjóra hjá innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar án þess að auglýsa starfið. Að þessu kemst umboðsmaður Alþingis í nýju áliti sínu. Innheimtumiðstöðin var opnuð á Blönduósi síðla árs 2006 og var lögreglumaður færður úr starfi og í starf deildarstjóra hjá miðstöðinni. Þetta sætti annar maður sig ekki við og leitaði álits á gjörningnum hjá umboðsmanni Alþingis. Benti hann á að starfið hefði ekki verið auglýst og honum hefði verið mismunað þar sem hann hefði ekki átt þess kost að sækja um starfið. Eftir að hafa skoðað málið og skýringar sýslumanns komst umboðsmaður að því að ákveðið hefði verið að stofna til nýs starfs hjá embættinu sem skylt væri að auglýsa. Því hefði verið óheimilt að ráða í starf deildarstjóra hjá innheimtumiðstöðinni án undangenginnar auglýsingar þar sem öllum sem áhuga hefðu á starfinu væri gefinn kostur á að leggja fram umsókn. „Beindi umboðsmaður þeim tilmælum til sýslumannsins á Blönduósi að hann tæki framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem rakin væru í álitinu við ráðningu í störf á vegum embættisins og þá jafnframt við ráðstöfun á starfi deildarstjóra innheimtumiðstöðvarinnar við lok gildandi ráðningarsamnings þess sem gegndi því starfi," segir á vef umboðsmanns Alþingis.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira