Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar, Þjóðverjar og Hollendingar heita samstarfi Þjóðverjar, Hollendingar og Bretar fagna því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hyggist lána Íslandi 2,1 milljarð dollara til þess að koma á stöðugleika og segjast munu vinna með íslenskum stjórnvöldum að lausn deilna vegna innistæðueigenda hjá íslensku bönkunum í útlöndum. 20.11.2008 10:06
Um sex prósenta kaupmáttarrýrnun á einu ári Kaupmáttarrýrnun almennings á síðstu tólf mánuðum hér á landi nemur um það bil sex prósentum ef marka má þróun verðbólgu og launavísitölu 20.11.2008 09:52
IKEA innkallar gluggatjöld IKEA hefur ákveðið að innkalla felligluggatjöldin IRIS og ALVINE og biður alla þá sem eiga slík gluggatjöld með ákveðinni framleiðsludagsetningu að hafa samband við verslunina. Prófanir í Bandaríkjunum hafa sýnt að gluggatjöldin uppfylla ekki allar öryggiskröfur sem gerðar eru. Tilkynning frá IKEA er hér að neðan: 20.11.2008 09:51
Samið við starfsmenn Hitaveitu Suðurnesja Starfsmannafélög Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Vestmannaeyja hafa náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Hitaveitu Suðurnesja um breytingar og framlengingu kjarasamnings til sex mánaða, 20.11.2008 09:23
Byggingarkostnaður hækkað um 26,8 prósent síðastliðið ár Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 26,8 prósent á síðustu tólf mánuðum. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar sem í dag birtir vísitölu byggingarkostnaðar fyrir desember. Vísitalan sem gildir í desember var reiknuð um miðjan nóvember og var þá 478,8 stig, sem er hækkun um 3,2 prósent frá fyrri mánuði. 20.11.2008 09:11
Grímsnesið ekki enn komið í land eftir strand í gær Dragnótabáturinn Grímsnes GK, sem strandaði á sandrifi austan við Skarðsfjöruvita á Suðurströndinni seint í gærkvöldi með níu manna áhöfn, er ekki enn kominn til lands. 20.11.2008 07:20
Tæp 52 prósent landsmanna hlynnt ESB-aðild Tæp 52 prósent landsmanna eru hlynnt aðild að Evrópusambandinu og rösklega 62 prósent eru hlynnt því að teknar verði upp aðildarviðræður við sambandið, samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins. 20.11.2008 07:18
Hugur í ferðaþjónustunni Mikill hugur er í ferðaþjónustufólki, sem sér tækifæri í að nýta sér lágt gengi krónunnar til að laða að fleiri ferðamenn en ella. 20.11.2008 07:14
IMF lánar Íslendingum 2,1 milljarð dollara Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti á fundi sínum í Washington í gærkvöldi,að lána Íslendingum rúma tvo milljarða dollara til að koma á efnahagsstöðugleika hér á landi. 20.11.2008 07:11
Tjá sig ekki um vöruskipti RÚV Í áliti samkeppniseftirlitsins um stöðu og háttsemi RÚV á auglýsingamarkaði ljósvakamiðla, sem birt var á föstudag, kemur fram að RÚV hafi boðið birtingar á auglýsingum í skiptum fyrir vörur. Í ályktuninni er ekki útskýrt nánar hvers konar vöruskipti er um að ræða. Auglýsingastjóri RÚV vill ekki tjá sig um málið. 20.11.2008 04:45
Stjórn IMF samþykkti lánabeiðni Íslendinga Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti fyrir stundu á fundi sínum beiðni Íslendinga um 2,1 milljarða Bandaríkjadollara lán. 19.11.2008 23:09
Yfir sextíu prósent landsmanna vilja aðildarviðræður Hreinn meirihluti þjóðarinnar er hlynntur aðild að Evrópusambandinu og vill taka upp evru. Þetta eru megin niðurstöður könnunar sem CapaCent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í lok október. 19.11.2008 22:18
Segir atburði í fjarlægum löndum hafa orsakað fall bankanna Atburðir í fjarlægum löndum orsökuðu fall íslensku bankanna, að mati Jóns Sigurðssonar stjórnarformanns Fjármálaeftirlitsins og varaformanns bankaráðs Seðlabankans. Jón var gestur Helga Seljans í Kastljósi fyrr í kvöld. 19.11.2008 21:15
Fjármagnsflutningar Kaupþings orsökuðu hryðjuverkalög Davíð Oddsson seðlabankastjóri telur að meintir fjármagnsflutningar Kaupþings frá Bretlandi til Íslands, skömmu fyrir fall bankanna, hafi orðið til þess að umdeildum hryðjuverkalögum var beitt. Þetta sagði hann í samtali við forsætisráðherra í dag. 19.11.2008 19:56
Myntkörfulán bankamálaráðherra hefur hækkað um 25 milljónir Ráðherrarnir tólf í ríkisstjórn Íslands skulda að meðaltali rétt rúmar sextán milljónir í húsum sínum. Þau eru að meðaltali 217 fermetrar og verðmæti þeirra um 65 milljónir. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra er sá eini sem er með myntkörfulán. Það hefur hækkað um 25 milljónir á einu ári. 19.11.2008 18:47
Ekki sjálfgefið að Davíð víki Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ekki gefið að Davíð Oddsson fari frá þó Fjármálaeftirlitið verði sameinað Seðlabanka Íslands, eins og pólitískur vilji er fyrir hjá báðum stjórnarflokkunum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra vill hins vegar fá nýja forystu og einn faglegan bankastjóra. 19.11.2008 18:30
Stjórn IMF fundar um beiðni Íslendinga Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tekur nú fyrir beiðni Íslands um lán á fundi sínum. Ráðgert var að fundurinn hæfist klukkan 20 að íslenskum tíma. 19.11.2008 20:33
Nýr Framsóknarflokkur hugsanlega í burðarliðnum Afsagnir Bjarna Harðarsonar og Guðna Ágústssonar hafa valdið miklum titringi meðal Framsóknarmanna. Ekki síst þeirra sem hafa barist gegn því að flokkurinn breyti um stefnu í Evrópumálum. Þetta var fullyrt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 19.11.2008 19:27
Hreppurinn borgaði laxveiði og flugmódel fyrir Brynjólf Fyrrverandi sveitarstjóri í Grímsey lét hreppinn greiða fyrir sig laxveiði og flugmódel. Hann neitaði ekki sakargiftum þegar fjársvikamál hans var dómtekið í dag, en grunur leikur á að hann hafi stolið 27 milljónum. 19.11.2008 19:00
Fjármálaráðherra jákvæður í garð stærra álvers Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins taka jákvætt í áform Norðuráls um stærra álver í Helguvík meðan Samfylkingarráðherrar hafa efasemdir. 19.11.2008 18:58
Íslendingar gætu hagnast á olíu við Austur-Grænland Olíu- og gaslindir við Austur-Grænland eru taldar tvöfalt meiri en á Drekasvæðinu. Bæjarstjóri Ísafjarðar segir þarna mikil tækifæri sem Vestfirðingar ætli að nýta. 19.11.2008 18:53
Ekki stendur til að endurskoða launahækkun ráðamanna Alþingismenn, ráðherrar og aðrir opinberir embættismenn fengu ríflega launahækkun aðeins mánuði áður en bankarnir hrundu. Ekki stendur til að endurskoða þá hækkun. 19.11.2008 18:40
Vinnuhópur um sameiningu FME og Seðlabankans Að öllum líkindum verður stofnaður vinnuhópur til að kanna sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Þetta sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 19.11.2008 18:01
Vara við að reynt sé að gera laxveiðiferðir tortryggilegar Stjórn Landssambands veiðifélaga varar við að reynt sé að gera laxveiðiferðir í viðskiptaerindum tortryggilegar og koma jafnframt óorði á fyrirtæki sem bjóða viðskiptavinum sínum til laxveiða. 19.11.2008 17:59
Hundrað ára og hlustar ekki á kreppukjaftæði Fjölmenni var í hundrað ára afmælisveislu Herdísar Albertsdóttur á Ísafirði í dag. Hún þakkar íslenskum mat háan aldur og hlustar ekki á kreppukjaftæði. 19.11.2008 17:23
Staðfest að kveikt var í húsi við Baldursgötu Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur staðfest að kveikt hafi verið í yfirgefnu húsi við Baldursgötu sem brann á laugardag. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns hefur enginn verið handtekinn vegna málsins og enginn yfirheyrður. Rannsókn málsins sé hins vegar haldið áfram. 19.11.2008 17:14
Ráðherrabíll Björns grýttur Þegar mótmæli stóðu sem hæst yfir við Alþingishúsið í hádeginu í dag var ráðherrabíll Björns Bjarnasonar grýttur með eggjum. Björn segir frá þessu á vefsíðu sinni. Hann telur ólíklegt að markmið mótmælendanna, að fá ríkisstjórnina til að víkja og koma á tímabundinni þjóðstjórn, náist með aðgerðum sem þessum. 19.11.2008 16:56
Sektaður fyrir að skemma bíl Héraðsdómur Suðurlands hefur sektað karlmann um 40 þúsund krónur fyrir að hafa fyrir utan skemmtistað á Selfossi í febrúar hlaupið harkalega á bifreið og hent sér upp á húdd hennar með þeim afleiðingum að vinstra frambretti bifreiðarinnar beyglaðist. 19.11.2008 16:48
Gamalt timburhús í Landeyjum eyðilagðist í bruna Gamalt timburhús á jörðinni Skúmsstöðum í Vestur-Landeyjum gjöreyðilagðist í bruna í morgun. 19.11.2008 16:23
Foreldrar í Garðabæ kæra sveitarfélagið Vegna ákvörðunar Garðabæjar um að taka ekki þátt í greiðslu skólamáltíða í grunnskólum bæjarins hafa foreldrar grunnskólabarna í bænum kært sveitarfélagið til menntamálaráðuneytisins. 19.11.2008 16:19
Minnkandi verðmunur hjá lágvöruverðsverslunum og öðrum Verðlagseftirlit ASÍ segir að vísbendingar séu um að verðmunur á milli lágvöruverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka og vísar þar til nýrrar könnunar á matarverði sem gerð var í gær. 19.11.2008 16:12
Stal fjölda bíla með stolnum skilríkjum Bíræfni bílþjófurinn stal veski frá Stefáni Má Haraldssyni þann 30 október síðastliðinn. Frá þeim tíma, eða á nærri þriggja vikna tímabili nýtti hann sér skilríki 19.11.2008 16:11
Sjálfstæðismenn á Akranesi deila um Davíð og ESB Stjórn Þórs, félags ungra sjálfstæðismanna, á Akranesi lýsir vanþóknun sinni á einstaklega ósanngjarnri aðför sem undanfarnar vikur hefur verið gerð að bankastjórn Seðlabanka Íslands og þá sérstaklega einum af bankastjórum hans. 19.11.2008 14:51
Hótel Búðum hefur ekki verið lokað Nauðsynlegt var að segja upp starfsfólki en Hótel Búðum hefur ekki verið lokað. Þetta segir í tilkynningu sem starfsfólk hótelsins sendi frá sér fyrr í dag vegna frétta af endurskipulagningu á rekstrinum. 19.11.2008 13:56
Bíræfni bílþjófurinn stöðvaður í Borgarnesi Vísir sagði í gær frá manni sem heimsótti Bílahúsið í Reykjanesbæ á laugardaginn. Þáði hann kakó, köku og fékk að reynsluaka silfurlituðum Volkswagen Golf. Var maðurinn hinn viðmótlegasti en bílnum hefur hann enn ekki skilað. Guðni Daníelsson framkvæmdarstjóri Bílahúss segist hafa fengið mikil viðbrögð í kjölfar fréttar Vísis í gær og sést hafi til bílþjófsins víða um land. Lögreglan í Borgarnesi hafði hinsvegar uppi á manninum fyrir stundu. 19.11.2008 13:20
Samdráttur í umferð ekki meiri í aldarfjórðung Stórlega hefur dregið úr bílaumferð í landinu síðustu vikurnar samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Leita þarf 25 ár aftur í tímann til að finna samdrátt á milli ára. 19.11.2008 12:50
Risaútsölur í verslunum á óvenjulegum tíma Gera má ráð fyrir að fjöldi verslana muni fara í þrot um og eftir áramót vegna efnahagsástandsins. Illa staddir verslanaeigendur auglýsa nú risaútsölur sem er fáheyrt á þessum árstíma. 19.11.2008 12:45
Námið reyndist ekki eins gott og sagt var Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu til að greiða 19 öðrum konum samtals nærri sjö milljónir króna í skaðabætur vegna náms í innanhússtillistun sem ekki reyndist vera eins gott og það var auglýst. 19.11.2008 12:21
Slá aftur skjaldborg um Alþingi Talið er að um hundrað manna hópur mótmælenda hafi komið saman á Austurvelli til að slá skjaldborg um Alþingi í orðsins fyllstu merkingu. 19.11.2008 12:15
10-11 löggan viðurkennir mistök en neitar sök Aðalmeðferð í máli 10-11 lögreglunnar svokölluðu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögregluþjónninn er ákærður fyrir að hafa ráðist á pilt í verslun 10-11 sem grunaður var um þjófnað. Hann neitar sök. Atvikið náðist á myndband og var sett á netið nokkrum klukkustundum síðar. Lögreglumaðurinn viðurkennir mistök en segist hafa verið yfirvegaður allan tímann. Misræmi er í dagbókarfærslu, skýrslu og framburði lögregluþjónsins fyrir dómi. 19.11.2008 11:47
Umferðaljósaþjófur iðraðist gjörða sinna „Sorry – sé mjög eftir þessu” voru skilaboðin á pakka sem reyndist innihalda umferðarljós sem stolið var af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar fyrir viku síðan. 19.11.2008 11:03
Fyrrverandi sveitarstjóri krafinn um 27 milljónir vegna fjárdráttar Grímseyjarhreppur fer fram á að Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri hreppsins, greiði sér tæpar 27 milljónir króna vegna fjárdráttar í opinberu starfi. Þetta kom fram við þingfestingu á ákæru Ríkislögreglustjóra á hendur Brynjólfi við Héraðsdóm Norðurlands eystra í morgun. 19.11.2008 10:53
Grímsnesið kemur til hafnar í Vestmannaeyjum Varðskip Landhelgisgæslunnar vinnur nú að því að taka dragnótabátinn Grímsnes GK-555 í tog þar sem drepist hefur á aðalvél bátsins. 19.11.2008 10:52
Markaðssetja Ísland fyrir fjársterka ferðamenn „Discover Iceland“ nefnist átak sem miðar að því að vekja athygli American Express korthafa á sérstæðri náttúru og ferðamannastöðum á Íslandi. 19.11.2008 10:44
Fjórði borgarafundurinn í Háskólabíói á mánudag Aðstandendur borgarafunda sem haldnir hafa verið á veitingastöðum í miðbænum síðustu vikur boða til nýs fundar á mánudaginn kemur. 19.11.2008 10:42