Innlent

Samdráttur í umferð ekki meiri í aldarfjórðung

MYND/GVA

Stórlega hefur dregið úr bílaumferð í landinu síðustu vikurnar samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Leita þarf 25 ár aftur í tímann til að finna samdrátt á milli ára.

Meðalumferð á fjórtán talningastöðum Vegagerðarinnar um allt land var níu prósentum minni í október síðastliðnum, samanborið við sama mánuð í fyrra. Samkvæmt teljurunum dróst umferðin saman um tæp sjö prósent á höfuðborgarsvæðinu, rúm níu prósent á Austurlandi, tæp ellefu prósent á Suðurlandi, rösklega ellefu prósent á Vesturlandi og mestur er samdrátturinn á Norðurlandi, þar sem umferðin var rúmlega sextán prósentum minni en í fyrra.

Ef horft er framhjá mjög óverulegum samdrætti á milli áranna 1992 og 1993 þá eru liðin 25 ár frá því að umferð dróst síðast saman á landinu svo nokkru næmi.

Sérfræðingar í umferðarmálum segja að samdráttinn núna megi að hluta rekja til þess að stórframkvæmdum við Kárahnjúka og í Reyðarfirði er lokið og landflutningar vegna þeirra hafi því nánast horfið. Einnig hafi dregið úr öðrum verklegum framkvæmdum á landinu.

Þá sé minna um að íbúar höfuðborgarsvæðisins fari í orlofshús sín á Suður- og Vesturlandi í haust en undanfarin haust og minna viðrist nú um að fóllk af landsbyggðinni sé að skreppa í bæinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×