Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu ferðamann heilan á húfi Björgunarsveitarmenn fundu erlendan ferðamann heilan á húfi í hlíðum Mundafells, austan við Heklu um klulkkan hálf sex í morgun. Maðurinn varð viðskila við samferðafólk sitt síðdegis í gær þegar þoka lagðist yfir Heklu og kallaði það á aðstoð undir miðnætti. 5.8.2008 07:12
Thelma Ásdísardóttir: Fæ sting þegar ofbeldi er verðlagt „Stjórnvöld og dómsvaldið þurfa að senda skýr skilaboð til samfélagsins um að kynferðisafbrot verði ekki liðin," segir Thelma Ásdísardóttir, starfskona Stígamóta. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í fjögurra ára fangelsi í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn sjö börnum. 4.8.2008 17:43
Þrennt flutt á slysadeild eftir bílveltu Þrennt var flutt á slysadeild eftir að bíll valt við afleggjarann að Baldursheimi í Mývatnssveit á sjöunda tímanum í kvöld. Tvö þeirra voru flutt með þyrlu en það þriðja var flutt með sjúkrabíl. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er ekki talið að meiðsli þeirra séu alvarleg, en þau hafi meiðst á baki og hálsi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er talsverð umferð í umdæminu. 4.8.2008 20:08
Queen Elisabeth við Vestfirði Skemmtiferðaskipið Queen Elisabeth heimsótti Vestfirði í dag. Á vef bæjarins besta kemur fram að um 1800 farþegar hafi komið með skipinu og nýttu þeir tækifærið til þess að skoða þær perlur sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða. 4.8.2008 20:40
Sex líkamsárásarmál komu upp í Vestmannaeyjum Alls voru sex líkamsárásarmál kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum yfir hátíðina, öll minniháttar. 4.8.2008 15:58
Allt að sex hundruð bílar stöðvaðir á Akureyri Umferð um Suðurlandsveg hefur verið nokkuð þung eftir hádegi. Allt hefur þó gengið vel, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Sömu sögu er að segja af Vesturlandsvegi, þar er umferð orðin nokkuð þétt. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hefur svolítið borið á óþarfa framúrakstri, en sem betur fer hafa engin óhöpp hlotist af. 4.8.2008 14:33
Fórnarlamba kjarnorkuárása minnst Íslenskar friðarhreyfingar standa að árlegri kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn næsta miðvikudag. 4.8.2008 14:12
Slökkviliðið kallað að Hverfisgötu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsi við Hverfisgötu þar sem rauk úr potti á eldavél. Samkvæmt upplýsingum frá slökkvilinu þurfti að ná pottinum út og reykræsta íbúðina en ekki er vitað um hversu miklar skemmdir gætu hafa orðið. 4.8.2008 13:06
Flugsamgöngur til Eyja hafnar að nýju Tvær flugvélar á vegum Flugfélags Íslands fóru fyrir fáeinum mínútum frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Vélarnar eru ekki lent á vellinum í Vestmannaeyjum, samkvæmt upplýsingum frá Flugumsjón. 4.8.2008 12:32
Þrettán þúsund manns í Brekkusöng Það voru um 13 þúsund manns komnir saman í Herjólfsdal í gær þegar að Árni Johnsen tryllti lýðinn í Brekkusöng. 4.8.2008 12:23
Virkt umferðareftirlit um alla helgina Lögreglan hefur haldið uppi virku umferðareftirliti alls staðar á landinu um alla helgina. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur töluvert verið um það að ökumenn hafi lagt af stað illa hvíldir eftir að hafa setið að drykkju og hafa því verið stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. 4.8.2008 10:36
Sleginn með flösku á Akureyri Einn var fluttur á slysadeild eftir að hafa verið sleginn með flösku í höfuðið í miðbæ Akureyrar um þrjúleytið í nótt. 4.8.2008 10:07
Enn ekkert flogið til Vestmannaeyja Ekkert hefur verið flogið til Vestmannaeyja í morgun vegna þoku. Þjóðhátíð lauk í gærkvöldi með brekkusöng og flugeldum og var metþáttaka í brekkusöng. 4.8.2008 10:04
Ögmundur vill að forstjórar fyrirtækja selji dýru jeppana og lækki laun sín Stjórnvöld og fyrirtæki í landinu þurfa að bregðast við neikvæðum horfum í efnhagslífinu til að koma í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi. Þetta kom fram í viðtali Stöðvar 2 við formann Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. 3.8.2008 19:22
Tvær konur hafa leitað til neyðarmóttöku vegna nauðgana Tvær konur hafa leitað á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta kom fram í fréttum RÚV. Málin hafa ekki verið kærð til lögreglu. 3.8.2008 19:04
Keppni á Unglingalandsmótinu lokið Ellefta Unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn verður slitið í kvöld með veglegri flugeldasýningu. 3.8.2008 18:56
Engin flugvél náð að lenda í Vestmannaeyjum í dag Tveimur flugvélum Flugfélags Íslands sem fóru frá Reykjavíkurflugvelli á fimmta tímanum í kvöld var snúið við vegna þoku. 3.8.2008 18:08
Eldur varð laus í Biskupstungum Eldur kviknaði í gróðurskála Laugarás í Biskupstungum. Þeir sem í húsinu vor komust út af eigin rammleik og tókst að slökkva eldinn án aðstoðar slökkviliðs. Talið er að eldurinn hafi kviknað í glóði frá grilli, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Þá féll maður af hestbaki um þrjúleytið í dag. Hann fann fyrir eymslum í baki og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús á Selfossi. 3.8.2008 17:16
Almættið er í liði með Vestmannaeyingum „Stundum verður maður svolítið hissa á fréttaflutningi af því að einn maður sitji í fangageymslum af 13 þúsund," segir Elliði Vignisson, 3.8.2008 16:34
Flogið frá Reykjavík til Vestmannaeyja Flogið var frá Reykjavík til Vestmannaeyja nú á fimmta tímanum. Tugir manna biðu á Reykjavíkurflugvelli milli vonar og ótta þar sem líkur voru á að ekki yrði flogið vegna veðurs. 3.8.2008 15:28
Fjölmennasta Þjóðhátíð til þessa Gestir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eru um 3000 fleiri en síðustu ár og er þetta fjölmennasta Þjóðhátíð sem haldin hefur verið hingað til, að sögn skipuleggjenda mótsins. 3.8.2008 14:31
Stormsker gefst ekki upp fyrir afturhaldssömum framsóknarstrumpum Sverrir Stormsker er óhress vegna þess að umdeilt viðtal hans við Guðna Ágústsson á Útvarpi Sögu var ekki endurspilaður í gær, eins og auglýst hafði verið. 3.8.2008 14:12
Minniháttar líkamsárásarmál í Eyjum Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum í nótt vegna minniháttar líkamsárása. 3.8.2008 10:11
Sex gistu fangageymslur á Akureyri Fjölmenni er á útihátíðinni ein með öllu á Akureyri en þar gekk skemmtanahald vel fyrir sig að sögn lögreglu og lítið um óspektir. Sex fengu þó að gista fangageymslur vegna ölvunar. 3.8.2008 10:05
Hafnfirðingur hótaði að sprengja sig inni í svefnherbergi Slökkviliðið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kallað að íbúð á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði í nótt, þar sem eldur logaði í svefnherbergi. Þegar slökkvilið kom á staðinn og hugðist slökkva eldinn hótaði konan þeim að taka gaskút sem hún hafði á svölunum hjá sér inn og sprengja sig inni. 3.8.2008 09:45
Sextíu björgunarsveitamenn kallaðir til leitar á Suðurlandi Björgunarsveitamenn á Suðurlandi voru kallaðar út í tvær leitir í nótt. Leitað var að hollenskum manni á miðjum aldri sem hafði lagt upp í göngu frá Landmannalaugum seinni partinn í gær og villst í þoku. Að sögn lögreglunnar var hann illa búinn. 3.8.2008 09:41
Gera ráð fyrir að atvinnuleysi tvöfaldist Allt útlit er fyrir að atvinnuleysi muni tvöfaldast á næstu mánuðum. Rekstrarstaða íslenskra fyrirtækja hefur snarversnað á þessu ári. Vextir hafa hækkað upp úr öllu valdi og þá hafa bankarnir nánast lokað á öll útlán vegna lánsfjárkreppunnar. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 2.8.2008 18:20
Þúsund manns við brennu í Húsafelli Mikill mannfjöldi hefur dvalið í Húsafelli nú yfir verslunarmannahelgina. Heimildarmaður Vísis á staðnum telur að nokkur þúsund manns hafi lagt leið sína í blíðuna í Húsafelli og meðal annars hafi um þúsund manns safnast saman við brennu sem haldin var í kvöld. 2.8.2008 21:39
Bát hvolfdi nærri Bakkafjöru Lítill Challenger hraðbátur fór á hvolf við ósa Markárfljóts nærri Bakkafjöru nú síðdegis. Tveir menn voru í bátnum og meiddust þeir báðir lítillega. Annar þeirra var fluttur með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild. 2.8.2008 17:59
Réttlæting fyrir forsetaembættinu fundin Styrkurinn sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti sýndi þegar hann synjaði hinum illræmdu fjölmiðlalögum staðfestingar er í senn hátindurinn á ferli hans, 2.8.2008 15:39
Tvö fíkniefnamál á Þjóðhátíð Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt. Um var að ræða ætlað kókaín og marijuana. 2.8.2008 14:22
Eldur í gróðri við Kárastaði Slökkvilið og lögregla frá Selfossi voru kölluð út vegna elds í gróðri í nágrenni við Kárastaði hjá Þingvöllum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var fjöldi manns kallaður til vegna eldsins en hann hafi svo reynst vera minniháttar. 2.8.2008 19:06
Flugvél Iceland Express bilaði í Barcelona Ein af MD 90 vélum Iceland Express flugfélagsins bilaði í Barcelona og því eru aðeins þrjár af MD 90 vélum félagsins nothæfar. Þetta hefur orsakað talsverða röskun á flugi hjá Iceland Express. 2.8.2008 14:56
Fólskuleg líkamsárás á Þjóðhátíð Karlmaður um tvítugt varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Vestmannaeyjum um hálftvö leytið í nótt. Maðurinn sagðist í samtali við Vísi hafa verið að dansa við stóra sviðið þegar þrír menn hafi komið að honum. Hann hafi verið tekinn kverkataki og snúinn niður. 2.8.2008 14:07
Um 10 þúsund manns á landsmóti UMFÍ Ellefta unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn var sett í gærkvöldi að viðstöddu fjölmenni. Talið er að um 10 þúsund gestir séu á unglingalandsmótinu og hafa þeir aldrei verið fleiri. 2.8.2008 12:24
Forsetinn hafði ekki samráð við ríkisstjórn um för á Ólympíuleika Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði ekki samráð við ríkisstjórn þegar hann ákvað að þiggja boð um að vera viðstaddur ólympíuleikana í Peking. Þetta kemur fram í viðtali við forsetann í Fréttablaðinu í dag, í tilefni af embættistöku hans í gær. 2.8.2008 11:18
Töluverður fjöldi á Akureyri Skemmtanahald á Akureyri, þar sem útihátíðin Ein með öllu er haldin, fór vel fram í nótt og bárust engin alvarleg mál á borð lögreglunnar. Töluverður fjöldi fólks er í bænum og var þung umferð fram á nótt, en hún gekk stórslysalaust fyrir sig. Einnig var rólegt á tjalstæðum bæjarins. 2.8.2008 10:23
Um 12 þúsund manns á Þjóðhátíð Mikill mannfjöldi er á þjóðhátíð í Eyjum og telur lögreglan að um tvö þúsund fleiri gestir séu í Herjólfsdal en í fyrra en þá voru þeir um tíu þúsund. 2.8.2008 10:18
Ógnuðu fólki með golfkylfum Tveir menn í Húsafelli urðu ósáttir vð samferðarfólk sitt í nótt, höfðu í hótunum, skölluðu fólk og ógnuðu fólki með golfkylfum. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi beittu þeir þó ekki kylfunum gegn neinum. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu. 2.8.2008 09:57
Hráskinnaleikur á stjórnarheimilinu Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, segir að í ljósi ákvörðun umhverfisráðherra að umhverfismat eigi að fara fram vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka verði ráðherra og ríkisstjórnin að skýra mál sitt gagnvart landsmönnum. 1.8.2008 22:45
BSRB mótmæla uppsögnum á Keflavíkurflugvelli Níu starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða starfsmenn sem sinnt hafa vopnaleit og öryggisvörslu. „Þetta eru slæmar fréttir", sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB í tilkynningu frá bandalaginu, en hann óttast að meira kunni að vera í pípunum bæði á Keflavíkurflugvelli og jafnvel hjá öðrum lögregluembættum. 1.8.2008 22:00
,,Fullt af unglingum sem eru að gera góða hluti" Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hófst fyrr í dag Þorlákshöfn og fer fram núna um verslunarmannahelgina. Þar eru samankomin ríflega 1200 ungmenni hvaðanæva af landinu á aldrinum 11 til 18 ára. 1.8.2008 21:30
Þingmaður VG segir Geir ónauðsynlegan Geir Haarde, forsætisráðherra, er ónauðsynlegur, að mati Árna Þórs Sigurðsson. Hann segir ástandið í ríkisstjórnarliði Geirs og þingflokki vera lítið skárra en í borgarstjórnarflokknum. ,,Hann á að fara frá völdum, hans tími er liðinn," segir Árni Þór á vefsíðu sinni. 1.8.2008 21:00
Umferð gengur vel Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gengur umferðin vel og hingað til hefur verið stóráfallalaus. Umtalsverð umferð hefur verið frá Reykjavík í dag og í kvöld. Líkt og fyrr ár hefur mikil umferð verið um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg. 1.8.2008 21:10
Vefsíða gegn áfengisauglýsingum opnuð Fyrr í dag opnuðu Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum heimasíðu þar sem gefur að líta margskonar fróðleik svo sem greinar, fréttir og dóma sem tengjast áfengisauglýsingum. 1.8.2008 20:15