Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útsvar Hreiðars þenur út pyngju borgarsjóðs Hreiðar Már Sigurðsson er með lögheimili í Reykjavík sem þýðir að hann greiðir rúmlega 96 milljónir króna í útsvar til sveitarfélagsins. Verður það að teljast kærkominn upphæð í borgarsjóð Reykjavíkur. 1.8.2008 17:08
Áhyggjur vegna staðalímynda og vægra refsinga í kynferðisafbrotamálum Nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fylgist með framfylgd alþjóðasamnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum hefur birt athugasemdir um stöðu jafnréttis á Íslandi eftir að sendinefnd Íslands kom fyrir nefndina þann 8.júlí síðastliðinn. 1.8.2008 16:47
Íslendingar bjórþyrstir um verslunarmannahelgi Miklar annir eru nú í Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu, enda er vikan fyrir verslunarmannahelgi ein annasamasta vika ársins í verslununum, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. 1.8.2008 16:22
Fartölvu með mastersritgerð stolið af japönskum stúdent við HÍ Fartölvu var stolið af japanska stúdentnum Jun Morikawa fyrir utan HÍ á dögunum. Tölvan inniheldur mastersritgerð Jun sem hann hugðist skila í byrjun september. Mikil vinna er fyrir bí ef Jun endurheimtir ekki fartölvuna en hann ætlar eftir sem áður að ljúka mastersnámi sínu þrátt fyrir áfallið. 1.8.2008 16:21
Verður líklega næststærsta Þjóðhátíðin frá upphafi Straumur fólks liggur nú til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð og eru allar ferðir með Herjólfi sem og öll flug full að sögn Sigurðs Bragasonar eins af skipuleggjendum hátíðarinnar. „Venjulega eru um 9000 manns á Þjóðhátíð en við teljum að 10 þúsund manna markið verði sprengt í ár," segir Sigurður. 1.8.2008 15:57
Utanríkisráðherra heiðursgestur á Íslendingadögum í Gimli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verður heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar á Íslendingadeginum í Gimli í Kanada að þessu sinni sem og á Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. 1.8.2008 15:46
Beltið hrundi af Dorrit Talsverður mannfjöldi er saman kominn á Austurvelli til að fylgjast með því þegar Ólafur Ragnar Grímsson sver embættiseið að nýju. 1.8.2008 15:40
Tungl gekk fyrir sólu í morgun Í morgun var svokallaður deildarmyrkvi fyrir sólu sjáanlegur á Íslandi en þá gengur tunglið að hluta til fyrir sólu frá okkur séð. Á sama tíma var almyrkvi á sólu sýnilegur í norðuhluta Kanada, Grænlandi, Síberíu, Mongólíu og Kína. 1.8.2008 15:24
Brotist inn hjá Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu Bífræfnir þjófar brutust inn á heimili athafnahjónanna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur á Sóleyjargötu og létu þar greipar sópa á neðstu hæð hússins. Sonur þeirra var sofandi heima og hreinsuðu þjófarnir hæðina án hans vitundar samkvæmt heimildum Vísis. 1.8.2008 15:00
30 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi Albanskur karlmaður var dæmdur í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa falsað vegabréf meðferðis. Lögreglan fann vegabréfið við leit á manninum á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 22. júlí síðastliðinn. 1.8.2008 14:29
Segir dómsmálaráðuneytið hafa þvingað lögreglustjóra Varaborgarfulltrúi VG harmar að lögreglustjóri höfuðborgsvæðisins hafi verið þvingaður til að aðlagast úreltu kerfi. VG lýsa yfir vonbrigðum með umsögn lögreglustjórans varðandi Goldfinger. 1.8.2008 13:14
Geir: Ákvörðun Þórunnar hefur ekki áhrif á stjórnarsamstarfið Forsætisráðherra segir ákvörðun umhverfisráðherra um að meta skuli umhverfisáhrif álvers á Bakka og tengdra virkjana í sameiningu, hafa komið á óvart. Það hafi þó engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. 1.8.2008 12:13
Atlantsolía lækkar um tvær krónur Atlantsolía lækkaði í dag verð á bensíni og dísel hjá sér um tvær krónur. Er verð nú á bensínlítranum 168,2 kr. og á dísellítranum 186,10 kr.. Kemur lækkunin til vegna heimsmarkaðsverðs á eldsneyti samkvæmt upplýsingum frá Huga Hreiðarsyni hjá Atlantsolíu. 1.8.2008 12:06
Mótmælendur teppa umferð við álverið í Straumsvík Félagar í umhverfisverndarsamtökunum Saving Iceland hafa stöðvað umferð að álveri Rio Tinto-Alcan í Straumsvík með því að hlekkja sig við hlið sem hleypa umferð til og frá álverslóðinni. 1.8.2008 12:01
Óskar þess að SUS hætti að vernda þessa tegund af „lítilmagna“ Ögmundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, segir að lykillinn að því að koma í veg fyrir ofurlaun bankamanna og annarra sé upplýsingaflæði. Þess vegna furðar hann sig á því að það sé eitt helsta hugsjónaverkefni SUS, Sambands ungra sjálfstæðismanna, að banna aðgang að skattskrám. 1.8.2008 11:52
Forseti ASÍ: Á ekki líknarorð yfir kjörin Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að kjör tekjuhæstu bankamanna séu komin úr öllum takt við íslenskt samfélag en ellefu tekjuhæstu bankamennirnir voru samtals með hátt í fjóra milljarða í tekjur á síðasta ári. 1.8.2008 11:10
Farið yfir marga áratugi á Akureyri Fjölskylduhátíðin á Akureyri verður með nýstárlegu móti þetta árið þar sem uppákomur og skemmtanir bera brag af hinum ýmsu áratugum síðustu aldar. 1.8.2008 11:08
Dorrit í dýrindis skautbúningi Dorrit Moussaieff forsetafrú mun klæðast forláta skautbúningi við embættistöku forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar í dag. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofu kemur fram að búningurinn hafi verið saumaður árið 1938 af Jakobínu Thorarensen, annálaðri hannyrðakonu. Hann var saumaður á Jósefínu Helgadóttur eiginkonu Skúla Guðmundssonar fyrrum alþingmanns, ráðherra og kaupfélagsstjóra í Húnavatnssýslu. 1.8.2008 11:03
Innanlandsflug gengur vel Hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að flug hafi gengið vel í morgun. Fjölmenni er samankomið í flugstöðvarbyggingu Reykjavíkurflugvallar og margir að bíða eftir flugi til Vestmannaeyja. 1.8.2008 10:07
Togari í eigu Samherja með 350 milljón kr. í lestinni Þýski togarinn Pólonus, sem er í eigu Deutsche Fisfang Union, dótturfélags Samherja á Akureyri, er nú á leið til Þýskalands af Svarbarðamiðum með 350 milljóna króna farm af frystum þorskflökum. 1.8.2008 09:58
Allt fullt í Húsafelli ,,Svæðinu er lokað," segir Sigríður Snorradóttir, staðarhaldari í Húsafelli, en þar er tjaldstæðið orðið yfirfullt og veður afar gott. Sigríður biður fólk um að leggja ekki land undir fót í Húsafell því vísa þarf fólki frá sem leitar eftir því að tjalda á svæðinu. 1.8.2008 09:45
Segir Samfylkinguna vinna gegn hagsmunum landsmanna Varaformaður Framsóknarflokksins segir Samfylkinguna vinna gegn hagsmunum með ákvörðun umhverfisráðherra að umhverfismat eigi að fara fram vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka. 1.8.2008 09:22
Ákvörðun umhverfisráðherra enn gagnrýnd Jón Gunnarsson þingmaður Sjáflstæðisflokksins sagði í viðtali við Ísland í bítið í morgun að ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að meta skuli umhverfisáhrif álvers við Húsavík og tengdra virkjana, í sameiningu, stangist á við grundvallaratriði í stefnu Sjáflstæðisflokksins. 1.8.2008 07:57
Ekið á sex ára dreng á Akureyri Ekið var á sex ára dreng á tjaldstæðinu að Hömrum á Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi og var hann þegar fluttur á sjúkrahúsið. 1.8.2008 07:24
Töluverð ölvun og erill hjá lögreglunni í Eyjum Töluverð ölvun var í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og alla nótt og erill hjá lögreglu, án þess að nokkuð stórvægilegt kæmi upp. 1.8.2008 07:23
Þyrla sótti höfuðkúpubrotinn sjómann Sjómaður um borð í togaranum Vilhelm Þorsteinssyni EA höfuðkúpubrotnaði þegar skipið var að veiðum suðaustur af landinu síðdegis í gær. 1.8.2008 07:17
Erlendur verkamaður stunginn í bakið á Hverfisgötu Erlendur karlmaður, sem starfar hér á landi, var stunginn djúpt i bakið þar sem hann var á gangi neðarlega á Hverfisgötu á móts við Arnarhól um klulkkan þrjú í nótt. 1.8.2008 07:04